Fréttablaðið - 25.01.2023, Blaðsíða 4
Við í Framsókn teljum
þó ekki rétt að ná þeim
markmiðum með því
að leggja niður sýslu-
mannsembættin og
veikja þar með stjórn-
sýslu í heimahéraði.
Ingibjörg
Isaksen,
þingmaður
Framsóknar-
flokksins
bth@frettabladid.is
Flugmál Berglind Kristófersdóttir,
formaður Flugfreyjufélags Íslands,
segir að f lugfreyjur og f lugþjónar
hafi unnið þrekvirki er fárviðri
gerði áhöfn og farþegum um borð í
vélum Ice land air lífið leitt á sunnu
dag.
Dæmi eru um að áhafnir og far
þegar hafi verið innilokuð í f lugvél
í 17 klukkustundir frá brottför í
Ameríku uns yfir lauk. Of hvasst
var til að ferja farþegana frá borði.
Berglind segir ákvæði í samn
ingum sem tryggi að f lugfreyjur
fái greitt fyrir hina löngu vakt. Lög
bundinn hvíldartími verði virtur.
„Þetta voru hræðilegar aðstæður,
mjög erfiðar fyrir alla,“ segir Berg
lind. „Það eru margir farþegar með
alls konar vandamál, en f lugfreyjur
og f lugþjónar eru frábær hópur sem
hefur verið þjálfaður sérstaklega
Hræðilegar aðstæður um borð í flugvélunum
Berglind
Kristófersdóttir,
formaður Flug-
freyjufélags
Íslands
Framsóknarmenn telja óráð
að leggja niður sýslumanns
embætti víða um land.
Mótstaða við frumvarp Jóns
Gunnarssonar kemur að
líkindum í veg fyrir að frum
varpið geti orðið að lögum.
bth@frettabladid.is
StjórnSýSla Frumvarp Jóns Gunn
arssonar dómsmálaráðherra um
fækkun sýslumanna sætir viðamik
illi gagnrýni. Ólíklegt er að Fram
sóknarflokkurinn muni styðja frum
varpið. Ný þingmálaskrá var lögð
fram í gær. Sameining sýslumanns
embætta er ekki lengur á dagskrá.
Fréttablaðið sagði fyrst fjölmiðla
frá því í fyrrasumar að Jón Gunn
arsson hygðist gera grundvallar
breytingu á skipulagi sýslumanns
embætta víða um land og fækka
embættum úr níu í eitt.
Nokkru síðar lagði dómsmála
ráðherra frumvarp fram um málið.
Framgangur þess hefur verið hægur
sem kann að skýrast af andstöðu
stjórnarþingmanna í samstarfs
flokkum Sjálfstæðismanna.
Ingibjörg Isaksen, þingmaður og
oddviti Framsóknarmanna í Norð
austurkjördæmi, segir að sumt sé
gott í frumvarpinu svo sem efling
starfsstöðva á landinu með flutningi
verkefna og bættri þjónustu.
„Við í Framsókn teljum þó ekki
rétt að ná þeim markmiðum með
því að leggja niður sýslumannsemb
ættin og veikja þar með stjórnsýslu
í heimahéraði. Þingflokkurinn telur
þörf á að efla og styrkja embættin
víðs vegar um landið en það þurfi að
gera innan þess fyrirkomulags sem
er í dag,“ segir Ingibjörg.
„Hér er einfaldlega um að ræða
mál sem þarfnast frekari umræðu og
yfirlegu,“ segir Ingibjörg. Hún segir
að frumvarpið sé enn til umræðu
innan þingflokksins.
Ljóst er að andstaðan við breyt
ingarnar er veigamikil. Byggða
Sýslumannsfrumvarp Jóns í uppnámi
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
stofnun segir í umsögn sinni um
frumvarpið að um stóra kerfis
breytingu sé að ræða með gagn
gerri endurskoðun skipulags, „sem
framselur vald úr héraðsbundnum
stjórnsýslueiningum sýslumanna
inn í miðstýrða einingu“. Ekki
verði séð með augljósum hætti að
nauðsyn sé á þessum miklu stjórn
sýslubreytingum til að ná kynntum
markmiðum um bætta þjónustu og
fjölgun verkefna í landsbyggðunum.
Þá telur Byggðastofnun ástæðu til
að minna á að „bæði í þjónustulegu
og byggðalegu tilliti gætir tortryggni
gagnvart samþjöppun starfsein
inga“. Þegar sýslumönnum hafi verið
fækkað úr 24 í níu hafi fyrirheit ekki
gengið eftir.
Stjórn Sýslumannafélags Íslands
gagnrýnir einnig frumvarpið harð
lega, enda sé það ekki unnið á fag
legum forsendum.
„Bent er á að verði frumvarpið
að lögum felur það í sér umtalsvert
framsal á valdi frá löggjafanum til
ráðherra. Aukinheldur verður ekki
annað séð en að um mikilvægt
byggðamál sé að ræða og að frum
varpið hafi mikil áhrif á réttindi og
kjör starfsmanna sýslumanna, starf
semi embættanna og þjónustu.“
Þá liggi nákvæm fjárhagsáætlun
eða langtímaáætlun ekki fyrir og
fullkomin óvissa sé uppi um rekstr
argrundvöll og störf um land allt.
Í umsögn Vestmannaeyjabæjar
segir: „Bæjarstjórn Vestmannaeyja
mótmælir þessum áformum harð
lega.“
Einnig segir að Vestmannaeyja
bær muni „gera allt sem í okkar valdi
stendur til þess að reka ráðherrann
til baka með áform sín“. n
kristinnhaukur@frettabaldid.is
menning Ísadóra Bjarkardóttir
Barney, hin tvítuga dóttir tónlistar
konunnar Bjarkar Guðmundsdótt
ur, gaf nýlega út sitt fyrsta lag. Lagið
heitir Bergmál og er á safnplötunni
Drullu mall 4. Breska tónlistartíma
ritið NME greinir frá þessu.
Ísadóra hefur áður komið að laga
smíðum, það er ásamt móður sinni
í laginu Her Mother’s House, sem er
lokalag Bjarkarplötunnar Fossora
sem kom út í haust. Hún lék einnig
lítið hlutverk í kvikmyndinni The
Northman, sem Björk lék einnig í. n
Dóttir Bjarkar
með fyrsta lagið
ragnarjon@frettabladid.is
menning „Ég ætla með manninum
mínum, Ethan Clarke, sem vann
að myndinni með mér,“ segir Sara
Gunnarsdóttir, um það hvern hún
tekur með sér á Óskarsverðlauna
hátíðina. Mynd Söru, My Year of
Dicks, er tilnefnd til verðlauna í
f lokki stuttra teiknimynda.
Mynd Söru byggir á bók Pamelu
Ribon, Notes to Boys: And Ot her
Things I Shouldn’t Share in Pu blic
og segir frá persónunni Pam og til
raunum til að missa meydóminn og
leitinni að hinum sanna elskhuga.
Sara hefur starfað við gerð teikni
mynda í Bandaríkjunum og hefur
komið að gerð tónlistarmyndbanda
og annarri kvikmyndagerð. Hún
kom að gerð heimildarþáttanna The
Case Against Adnan Syed sem hlutu
Emmytilnefningu.
Sara er annar Íslendingurinn
sem tilnefndur er til Óskarsverð
launa sem leikstjóri í f lokki stuttra
teiknimynda en Gísli Darri Hall
dórsson var tilnefndur 2021. Sara
á því möguleika á að verða annar
Íslendingurinn sem vinnur til verð
launanna en Hildur Guðnadóttir
vann 2019 fyrir tónlist í Joker. n
Sara og Ethan ætla saman á Óskarinn
Skjáskot úr
teiknimynd
Söru.
Mynd/aðsend
Sara Gunnars-
dóttir, leikstjóri
til að takast á við svona ástand. Ég
hef ekki heyrt annað en að allt hafi
gengið vel.“
Berglind segist ekki hafa for
sendur til að meta hvort vistir um
borð í vélunum þrutu eða ekki. Um
það ber yfirstjórn Icelandair og far
þegum ekki saman. Berglind segir
þessar uppákomur fátíðar.
„Svona ástand hefur komið upp,
en ég hef ekki heyrt af neinu viðlíka
í langan tíma.“ n
Jón Gunnars-
son, dómsmála-
ráðherra
Dómsnmála-
ráðherra leggur
til að embætti
sýslumanna
um landið verði
sameinuð í eitt
embætti. Frétta-
blaðið/Pjetur
helenaros@frettabladid.is
StjórnSýSla Drífa Hjartardóttir,
forseti Kirkjuþings, staðfestir að
kvörtun hafi borist frá Auði Björgu
Jónsdóttur, lögmanni séra Gunnars
Sigurjónssonar, þar sem lagalegt
umboð Agnesar M. Sigurðardóttur
sem biskups Íslands er dregið í efa
og að kvörtunin verði skoðuð.
Morgunblaðið sagði frá því í gær
að í erindi Auðar til Drífu kæmi fram
að Agnes hefði verið skipuð í emb
ætti biskups af forseta Íslands til
fimm ára 2012. Í lok þess skipunar
tíma hefði tíminn framlengst sjálf
krafa í önnur fimm ár, til loka júní
2022. Frá þeim tíma hefði hún ekki
verið endurkjörin og skorti því laga
legt umboð til að gegna embættinu.
Drífa hyggst boða forsætisnefnd
til fundar í dag eða á morgun vegna
málsins og segir að lögmaður verði
fenginn til að skoða málið.
Pétur G. Markan biskupsritari
vildi ekki tjá sig um málið í gær. n
Dregur umboð
biskupsins í efa
Drífa Hjartar-
dóttir, forseti
Kirkjuþings
Ísadóra Bjarkar-
dóttir Barney,
tónlistarkona
4 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 25. jAnúAR 2023
MiÐViKUDAGUr