Fréttablaðið - 25.01.2023, Side 12
Þegar þú pantar þér
mozzarella ostastangir
hérna á Íslandi þá eru
þær á stærð við títu-
prjón.
Íslenskur sósuframleiðandi
sem sérhæfir sig sterkum
sósum fyrir kjúklingavængi
áætlar að auka framleiðslu
með fleiri vörutegundum.
Hann vill bjóða upp á safa-
ríkari bar-mat á Íslandi og
segir eftirspurnina gríðarlega
í kringum bandarísku Ofur-
skálina.
Eggert Smári Sigurðsson, stofnandi
Smári’s Volcano Sauce, stendur
frammi fyrir mikilli útrás í heimi
kjúklingavængja á Íslandi. Frá 2020
hefur hann selt sterkar vængja-
sósur með þremur mismunandi
styrkleikum og vonast nú til að
geta bráðum selt eigin ostastangir
og kryddaða vængi í verslunum
Hagkaups.
„Vængirnir eru kryddaðir með
sérstakri kryddblöndu sem er
aðeins vægari en vægasta sósan
sem við seljum. Kryddið ber heitið
Grímsnes og passar vel við allar
sósurnar við seljum nú þegar,“
segir Eggert en allar sósurnar eru
nefndar eftir íslenskum eldgosum.
Styrkleiki hverrar sósu samsvarar
stærð eldgosanna og heita þær
Askja, Hekla og Katla.
Hugmyndin um að tengja sós-
urnar við íslensk eldgos kom frá
sænska hönnuðinum Ted Karlsson
sem hannaði bæði vörumerkin og
alla límmiðana. „Þetta er maður
sem dýrkar Ísland en hann segir að
það sé of dýrt og of kalt til að búa
hérna,“ segir Eggert.
Eggert Smári kynntist fyrst sterk-
um sósum á meðan hann bjó bæði í
Atlanta í Georgíu-fylki og í banda-
rísku borginni Montgomery í Ala-
bama. Eftir að hafa komið aftur
til Íslands segist hann hafa orðið
leiður á þeim sterku sósum sem
stóðu til boða hér og fannst vanta
meiri styrkleika á markaðinn. Egg-
ert byrjaði að prufa sig áfram með
ýmsar kryddtegundir og var f ljót-
lega farinn að búa til sínar eigin
sósur.
Þrátt fyrir hógværa stærð fram-
leiðslunnar segir Eggert eftirspurn-
ina vera mikla og þá sérstaklega í
kringum bandarísku Ofurskálina.
Yfir þeim leik er algengt að áhorf-
endur víða um heim gæði sér á
hefðbundnum bandarískum mat
og þá sérstaklega sterkum kjúkl-
ingavængjum. Eggert ákvað að
bjóða einnig upp á kjúklingavængi
yfir þann tíma en náði varla að
mæta eftirspurninni.
„Ég pantaði fyrst um 25 kíló af
vængjum en ég fékk sjálfur svo
mikið af pöntunum að ég endaði á
því að klára allar birgðir hjá bæði
Matfugli og Holta í Reykjavík. Ég
neyddist svo til að keyra alla leið
upp á Hellu til að fullnægja öllum
pöntununum og ég held að ég hafi
meira að segja klárað allar birgð-
irnar hjá þeim líka.“
Eggert segist vera mikill aðdá-
andi bandarískra íþrótta og hefur
jafnvel selt sósur sínar á meðan
hann fylgist með sunnudagsleikj-
um á veitingastaðnum American
Bar við Austurstræti.
„Ég var orðinn þreyttur á þessum
sömu sósum sem virðast alltaf fylgja
kjúklingavængjum á nánast öllum
veitingastöðum. Þannig að ég byrj-
aði að taka mínar eigin sósur með
og bað bara um þurra vængi með
engri sósu og það fór að vekja smá
athygli. Fólk fór að spyrja mig út í
sósuna og sumir sem smökkuðu
voru það hrifnir að þeir einfaldlega
keyptu bara af mér hálfa flöskuna.“
Eggert segir að einn þeirra hafi
verið bareigandi frá borginni Fíla-
delfíu í Bandaríkjunum. Hann hafi
keypt sósuna og haft samband við
Eggert nokkrum vikum seinna til
að panta sex f löskur af hverri teg-
und. „Þeir höfðu svo samband við
mig núna um jólin og sögðu mér
að sósan væri að slá í gegn hjá við-
skiptavinum þeirra.“
Netsala á Volcano sósunni erlend-
is hefur einnig færst í aukana og segir
Eggert að mest sé pantað frá Dan-
mörku og Bandaríkjunum. Rúmlega
30 flöskur hafi farið til Bandaríkj-
anna um jólin og segir Eggert að þær
sendingar hafi að öllum líkindum
verið jólagjafir. Hann segir að það
sé mjög vinsælt meðal áhugamanna
um sterkar sósur að eiga tegundir frá
mismunandi heimshornum.
Eggert telur framtíð fyrirtækisins
bjarta enda segir hann mikla þörf
vera á því sem hann kallar „alvöru
íþrótta-barsnarli“ á Íslandi. Sam-
hliða sölu á sterkum sósum segist
hann vilja selja eins mikið af hefð-
bundnum matvörum sem finnast á
börum úti í heimi og henta fullkom-
lega fyrir íþróttaáhorf.
„Þegar þú pantar þér mozzarella-
ostastangir hérna á Íslandi þá eru
þær á stærð við títuprjón. Þær eru í
rauninni bara jafn stórar og franskar
kartöflur sem þú myndir fá á sport-
bar í Bandaríkjum. Við erum farin
að horfa á sömu íþróttir og þeir, af
hverju ekki að bjóða upp á jafn safa-
ríkan mat líka?“ n
Tekur sínar eigin sósur með á veitingastaði
Eggert Smári
kynntist fyrst
sterkum
vængjasósum á
meðan hann bjó
í suðurríkjum
Bandaríkjanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Helgi Steinar
Gunnlaugsson
helgisteinar
@frettabladid.is
helgisteinar@frettabladid.is
Verðbólgan í Bretlandi mældist
rétt undir þeim 10,7 prósentum
sem hagfræðingar höfðu spáð fyrir
nóvember síðastliðinn.
Lækkandi eldsneytisverð hjálp-
aði til við að koma til móts við
hækkun á verðbólgu en hækkandi
kostnaður við kyndingu og mat
heldur áfram að íþyngja heimil-
unum í landinu.
Samkvæmt fréttastofunni Reu-
ters voru verðbólguspár hagfræð-
inga fyrir nóvember 10,9 prósent.
Verðbólgan mældist 11,1 prósent
mánuðinn þar á undan og hafði
hún ekki verið það há í 41 ár.
Seðlabanki Englands mun kynna
nýja peningamálastefnu á fimmtu-
daginn og er almennt búist við 50
punkta vaxtahækkun.
Bretar glímdu einnig við mikið af
verkföllum yfir hátíðarnar þar sem
verkamenn börðust fyrir bættum
vinnuaðstæðum og launahækk-
unum í samræmi við verðbólgu-
hækkanir.
Ein af f jármálaeftirlitsstofn-
unum breska ríkisins, Office for
Budget Responsibility, hefur spáð
því að Bretar standa frammi fyrir
stærstu lífskjaraskerðingu síðan
mælingar hófust. Búist er við að
rauntekjur heimila í landinu muni
lækka um 4,3 prósent á árinu í ljósi
lengstu kreppu í breskri sögu.
Fjár málaráðher ra Bretlands
tilkynnti í síðasta mánuði fjölda
skattahæk kana, niðursk urð á
útgjöldum og 55 milljarða punda
ríkisfjármálaáætlun.
Hingað til hafa aðgerðir stjórn-
valda ekki haft tilætluð áhrif á
verðbólgu en sérfræðingar vonast
til að sjá áhrifin þokast í rétta átt.
„Við búumst ekki við mikilli
lækkun á næstunni,“ segir Richard
Carter hjá fjárfestingarfyrirtækinu
Quilter Cheviot. n
Stærstu lífskjaraskerðingar síðan mælingar hófust
Verðbólgan
í Bretlandi
fyrir nóvember
mældist rétt
undir spám.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
12 markaðurinn FRÉTTABLAÐIÐ 25. jAnúAR 2023
miðVikuDaGur