Rökkur - 01.06.1945, Side 4

Rökkur - 01.06.1945, Side 4
164 RÖKKUR ungs lávarðurinn Louis af Battenberg. — Fram hjá konungssnekkjunni fóru hin miklu herskip Breta hvert af öðru, sem mörg komu siðar mjög við sögu, svo sem Lion, Queen Marv, Iron Duke, New Zeeland, Lord Nelson, og mætti svo lengi telja. I hvert sinn er herskip sigldi framhjá konungssnekkjunni stóðu sjóliðar í röðum á þiljum, og hylltu konunginn. — Flotasýningin var hin stórkostlegasta og hlýtur að hafa haft óafmáanleg áhrif á Georg konung, sem var alinn upp að nokkru á sætrjám brezka flotans. Vafalaust hefir konungurinn oft, er hörmungar ó- friðarins dundu yfir, hugsað tij flotans, sem hann eitt sinn kallaði „skjöld Bretaveldis“. 1 Evrópu var um þessar mundir sem oft áður — einkennilega ástatt og margt á huldu. Flestar þjóðir voru bundnar að öllu eða hálfu leyti við á- kvæði samninga, sem gerðir voru — oft eftir margra ára stjórnmálalegt leynibrugg. Þýzkaland og Aust- urríki voru öruggar bandalagsþjóðir, og Italíá taldist til miðveldanna, sem frekar ótryggur aðili þrívelda- bandalagsins (miðveldanna). Bandalag var milli Breta og Frakka og Rússa. Belgía var hlutlaus — og stórveldin höfðu ábyrgzt hlutleysi hennar. -— Og hvemig varð þetta svo, er á reyndi: Þegar Austurríki sagði Serbiu stríð á hendur, leit- uðu Serbar ásjár Rússa. Rússar, ef til vill í því skyni aðeins, að beita áhrifum sínum í blekkingaleik, fyrirskipuðu takmarkaða hervæðingu. Þjóðverjar, bandamenn Austurríkismanna, sendu Rússum þá úr- slitakosti, og kröfðust svars innan 12 klukkustunda — en úrslitakostirnir náðu í rauninni einnig til Frakka, bandamanna Rússa. Austurríkismenn urðu að dragast með Þjóðverjum, sem nú höfðu tekið for- ystuna, en fram að þcssu höfðu Austurríkismenn ekki haft í hótunum við neina þjóð nema Serba. Italía lýsti þegar yfir hlutleysi sínu. Italir neit- uðu að láta knýja sig til þátttöku í styrjöld með Austurríkismönnum. Síðar, þegar Tyrkir gengu í

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.