Rökkur - 01.06.1945, Síða 13

Rökkur - 01.06.1945, Síða 13
RÖKKUR 173 Úr harmsögu belgisku konungs- fjölskyldunnar. örlaganornirnar eiga það til stundum, að vega eigi aðeins tvisvar, heldur oft í sama knérunn, og hefur það sannazt á belgisku konungsfjölskyld- unni. Belgíumenn hafa átt því láni að fagna, að eiga konunga, sem voru ríkir að mannúð, mikil- hæfa menn á marga lund og mikla glæsimenn, hæg- láta og virðulega. Þetta má í rauninni allt með full- um rökum segja um þá báða feðgana, Albert heit- in konung, sem reyndist sannur þjóðarleiðtogi og hlaut hylli allrar þjóðarinnar, ást hennar og aðdá- un, á hinum miklu þrengingarárum heimsstyrjald- arinnar fyrri og Leopold, sem eftir hið sviplega frá- fall hans, tók við völdum sem Leopold III. Leo- pold virtist hafa öll skilyrði til þess að verða þjóð sinni leiðtogi slíkur sem faðir hans var. Hann naut einnig ástar, aðdáunar og virðingar þjóðar sinnar allt fró blautu barnsbeini, og á styrjaldarárunum, er hann var kominn á unglingsár, dvaldist liann með föður sínum í herbúðum og á vígstöðvum. En miklar raunir biðu hins unga og glæsilega kon- ungs, og það átti fyrir honum að liggja, að vera fluttur seni fangi í óvinaland, og eru um það allt fáar áreiðanlegar fregnir fyrir hendi enn sem kom- ið er, og engan dóm er hægt upp að kveða með . neinni sanngirni um framkomu Leopolds í þessari styrjöld, og víst má telja, að margt eigi eftir að koma fram, sem leiðir í ljós, að þeir, sem rcynt hal'a að grýta hann varnarlausan, vissu eigi hvað þeir gerðu. Sú er að minnsta kosti skoðun mikilhæfra manna, sem vegna öryggis konungs og af öðrum ástæðum, verða að láta það kyrrt liggja, sem gerð- ist, og fæstum er um kunnugt enn sem komið er. * Belgiska þjóðin vottaði Lcopold mikla samúð í raun- um hans, en hinum unga konungi var og vottuð

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.