Rökkur - 01.06.1945, Blaðsíða 16
176
RÖKKUR
á ferð í Goma, kleif hann eldfjallið Nyamlagira,
sem er á fjórða þúsund metra. En hann beið bana,
er hann var að klífa klettatind, sem var aðeins
nokkur hundruð metra.
Þann 17. febrúar 1934 átti Alhert konungur að
koma opinberlega fram þá um kvöldið í Brússel,
en snemma morguns datt það í hann, þar sem hann
liafði allmargar frístundir til frjálsra nota, að hressa
sig upp á því, að dveljast um stund undir beru lofti.
Snæddi hann árbít fyrr en vanalega og lagði af stað
í einni bifreið sinni, ásamt tryggum þjóni, Yan
Dyck, og brátt óku þeir hratt eftir þjóðveginum
til ljómandi fagurs smáþorps, Marche-les-Dames, er
liggur við rætur hinna skógi þöktu Ardenne-hæða,
um 8 kílómetra frá Namur.
Alpaklúbburinn belgiski hafði um nokkra liríð
hvatt menn til þess að fara í fjallgöngur í Belgíu,
og enginn studdi félagið í þessari viðleitni af meiri
áhuga en Albert konungur.
1 þetta sinn ákvað hann að klífa klettatindinn
Vorneille á bökkum Meuse, en tindur þessi er að-
eins um 80 metra hár.
Tindur þessi er þó alls ekki auðklifinn, vegna
þess að viða er sandsteinn og fótfestan víða óörugg.
Ekki er þó hægt að segja, að það geti áhættu-
samt talizt fyrir jafn vanan fjallgöngumann og kon-
ungur var, að klifa þennan tind.
En þarna var fyrirtaks tækifæri fyrir fjallgöngu-
mann, sem hafði lítinn tíma til umráða, að svala
fjallaþrá sinni.
Etgefandi: Axel Thorsteinson
Verð árg. 10 kr. Gjalddagi 1. mai ár hvert.
Afgreiðsla: Rauðarárstíg 36. Opin kl. 1—3.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN H.F.