Rökkur - 01.06.1950, Page 17

Rökkur - 01.06.1950, Page 17
RÖKKUR 65 vega aðaldyra voru risavaxnar súlur — frá Rauðskinna- ættkvislum komnar, útskornar og málaðar á glottandi andlit, vopn og fuglar. Moxx gekk inn i forsalinn og iagði svo leið sína inn i íbúð sina, sem var nr. 7. Moxx liafði fataskipti og þvoði vandlega skeinuna á enninu og setti plástur yfir hana. Þvi næst lét liann renna í baðkerið. Þegar Ling Phi, kinverski þjónninn hans, heyrði vatnsrennslið, mundi liann koma, því að þá vissi hann, að húsbóndi hans væri kominn lieim. Hann mundi bera inn i borðstofuna súpu og aðrar rjúkandi rétti, og ekki gleyma að hafa sherry á borðum. Ling Plii var sjötugur, nöldrari mikill, en vafalaust bezti einka- þjónninn i Port Albert. Hann var og húsbóndahollur tal- inn i bezta lagi. Moxx kom brátt inn í borðstofuna, hress eftir baðið, klæddur nýpressuðum fötum. „Nokkur bréf, Lingh Phi?“ „Nóg af bréfum, herra. Engin viðskipti. Kyennabréf. Þau anga, anga.“ Lingh Phi var jafnan stuttorður mjög og notaði fá tengi- orð, enda kunnátta hans í ensku takmörkuð. „Margir spurt um mig í síma?“ „Hambly. Kemur. A eftir súpunni. Borða fljótt. Hann kemur. Ef strax þér segið: Súpu? Nei, takk, segir hann. Sezt niður. Etur súpu. Eins og svín.“ Moxx brosti i kampinn, en hann fór ósjálfrátt að bend- ingu Lingh Phi og hafði hraðann ó. Hann furðaði sig á þvi, að Hambly skyld koma svona fljólt.Ef til vill beið hann með óþolinmæði fregna af viðræðum hans við irsku stúlk- una. Hann varð ygldur á svip, er hann hugsaði um, að hann yrði að segja honum, að i þetta skipti hefði sér al- gerlega mistekist. Hann var að ljúka við fiskréttinn, þegar hann hevrði bjölluhringingu í eldhúsinu. Lingh Phi opnaði fyrir Hambly, þvi að það var hann, sem kominn var. Þegar Hamblv var kominn inn í stofuna veitti Moxx þvi þegar a'.iygli, að hann var óvanalega fölur. 5

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.