Rökkur - 01.06.1950, Blaðsíða 45

Rökkur - 01.06.1950, Blaðsíða 45
ROKKUR 93 til gamals viðskiptavinar, aö greiða fyrir hann skatta og skyldur, til þess að firra hann óhyggjum. Nú vill hann fá vitneskju um, hvort nokkur vilji taka á sig alla ábyrgðina, þegar Phelim deyr, en það virðist ekki langt undan. Hann segir, að það verði hægt að selja landið fyrir dálitla upp- hæð, þegar Phelim sé látinn — ef til vill verði nokkur þús- und dalir eftir, þegar búið er að greiða allt, sem greiða þarf. Hann biður um umboð Brians O’Donnell, sé hann á lífi, eða erfingja hans, til að ganga frá öllu. Hann ætlar sér raunverulega að verða skiptaráðandi, hafa vald til að ráðstafa dánarbúinu. Er það ljóst?“ „Eins ljóst og þokan, sem'grúfir yfir Corribvatni í skammdeginu,“ sagði Maureen. „Þið af O’DonnelIættinni hafið aldrei haft neitt viðsldpta- vit. Nú, eg væri ekki frá því, að láta þennan Moxx fá téð umboð, ef hann er heiðarlegur maður, — en hvernig get eg vitað, að hann sé það? Hafi Phelim gert erfðaskrá er það óþarft. En setjum svo, að Phelim hafi enga erfða- skrá gert og Moxx sé bófi. Hvar erum við þá stödd?“ „Það veit eg ekki,“ játaði Maureen. „Af þvi að þú ert heiðarleg, írsk stúlka, eygir þú ekki neitt illt, er þú lest þetta bréf. Það er löng leið frá Galway til þessarar herjans eyjar, hvað sem hún nú heitir — eg get aldrei munað það — en gamli Simon Murdoch sér alla leið þangað — eða heldur, að hann sjái þangað. Og hon- um geðjast ekki að þvi, sem hann sér.“ „Og hvað sérðu?“ „Eg er kannske gamall asni. Eg skal segja þér hvað eg sé. Eg sé þorpara, sem liugsar um það eitt að fylla vasa sína fé. Hvers vegna skyldi frændi þinn hafa haldið í þessa eign sína, ef hún er verðlaus með öllu? Svaraðu mér þvi.“ „Eg veit það ekki.“ „Hvers vegna skyldi hann greiða skógverndarskatt og timburframleiðsluskatt af lendum sinum, ef þær eru einskis virði? Faðir þinn sagði mér, að hann liefði grætt mikið fé á timburframleiðslu, þegar hann var ungur. Ef tiJ vill hefir fjárhagur Phelims gengið saman, en hann

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.