Rökkur - 01.06.1950, Blaðsíða 19

Rökkur - 01.06.1950, Blaðsíða 19
R Ö K K U R 67 „Ertu viss um, að ekkert vanti?“ „Auðvitað er eg ekki viss um það, en eg liygg svo vera. Bréfin, sem þú skrifaðir til írlands, og svarbréfin, voru þar.“ „Hamingjunni sé lof að mildlvægustu skjölin, varðandi söluna, voru eldd þarna. Þau eru á öruggum stað, í geymsluhólfinu í bankanum.“ „Alveg rétt.“ „Varð lögreglan noklvurs visari?“ „Eg held ekki — en —“ Hambly sleikti þurrar varir sínar. „Hvað?“ „Mér hefir dottið dálítið í hug — líttu á stafina. Það er eins og notaður hafi verið lítill bursti, eins og Kínverjar nota til að skrifa stafi.“ Lingh Phi var allt í einu kominn að borðinu. Hann hélt á diski með grænmeti og fleiru. Þeir höfðu ekki orðið hans varir. Svo hljóðlega hafði liann komið. Hambly revndi að leyna gulnaða miðanum, en varð of seinn til. „Aha,“ sagði Lingh Phi, „þér lappa líka?“ Hann dró gulleitan samanbögglaðan miða upp úr vasa sinum og lagði á borðið. Miðinn var alveg eins á lítinn og jafnstór hinum miðanum. Munurinn sá einn, að kínverskir stafir voru dregnir á miða LiPgh Phis. „Eg miða líka, lierra Moxx. Mér sagt segja stóra hvíta húsbónda ekki koma Clonaleur annars honum stútað snarlega. Hvað gerir herra Moxx Clonaleur ?“ Það var komið fram á varir Moxx að segjh Ling Phi að skipta sér ekki af því sem honum kom ekki við. En hann hætti við það. Kinverski þjónninn hans gat orðið lionum að liði sem bandamaður — en reynst lionum hættulegur sem fjandmaður. „Við Hambly höfum áhuga fyrir timburlanfh þar. Að þvi er virðist hafa einhverjir aðrir áhuga fyrir að ná þessu landi. Veiztu hver sendi þessa miða Ling Phi?“ „Veit ekkert, herra Moxx.“ Ekkert varð lesið úr svip Kínverjans. Hann trítlaði burt. Undir eins og hann var farinn livislaði Hambly allæstur, 5*

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.