Rökkur - 01.06.1950, Síða 28

Rökkur - 01.06.1950, Síða 28
76 ROKKUR II. Þegar Catleigh fór frá Thunderbird Arms byggingunni var honum efst í hug að reyna að hverfa í þokunni. Hann vildi losna við lögreglumanninn fyrir fullt og allt. En liann heyrði þungt fótatak lögregluþjónsins að baki sér, er hann var kominn út á tröppurnar. Hann flýtti sér í felur, mundi í svip eftir, að súlurnar með útskornu Rauð- skinnamyndunum voru oft holar innan, til þess að þær væru auðveldari í flutningum, hentist að annari súlunni, og komst að raun um, að hún var hol innan, og faldi sig í henni. í sömu svifum kom lögregluþjónninn út á tröpp- urnar og kallaði nafn hans, en er ekkert svar barst, hélt lögregluþjónninn áfram eftir stígnúm frá lnisinu. — Catleigh heyrði ekkert liljóð, nema dropahljóðið, er lak af laufi sedrusviðartrjánna. Hann fór brátt úr felustaðn- um og læddist meðfram húsinu og ætlaði að lcomast aftur fyrir það og' út um einhverjar bakdyr þar. Hvað sem taut- aði vildi hann ekki -rekast á lögregluþjóninn aftur. Er hann fór fyrir horn nam hann skyndilega staðar. Ljós var í allmörgum gluggum á annari hæð. I þokunni var öll bakhliðin að sjá sem væri hún lýst. Catleigh mundi hvar íbúð Moxx var og var viss um, að birtan flóði úr gluggum á íbúð lians. Hann var í þann veginn að halda áfram, er hann sá, að hann var ekki einn þarna. Um það bil tuttugu fet frá veggnum stóð maður nokkur hreyfingarlaus og horfði upp í gluggana á íbúð Moxx. Maðurinn stóð alveg graf- kyrr og var að mestu hulinn greinum og laufi. En birtu lagði á andlit hans. Þetta andli kom honum liálfvegis kunnuglega fyrir sjónir. Maðurinn var kinnfiskasoginn, kjálkbeinin há, munnurinn smár, augun htil og dálítið skásett — eins og á Kínverja. .Tá, vitanlega. Það edtt villti hann, að andlitið virtist hvítara, af þvi að birtunni sló á það. Þetta var and- litið, sem hann sá fyrir innan káetuhurðina á fiskibátn- um fyrr um kvöldið. Catleigh fór ekki að verða um sel. Lögreglumaðurinn —-

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.