Fréttablaðið - 08.02.2023, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.02.2023, Blaðsíða 8
Ég er ekki viss um að það leysi alfarið vanda einkarekinna fjölmiðla að taka RÚV af auglýs- ingamarkaði. Almenn- ingur þarf að átta sig á mikil- vægi þess að inn- lendir fjölmiðlar nái styrk sínum. FRÉTTAVIÐTAL Skattheimta af erlendum efnisveitum er til skoðunar svo hægt verði að bæta upp tekjutap út fyrir landsteinana. Einkareknir fjölmiðlar eru í sögulegri rekstrarkreppu og varðar miklu að sporna við, segir menningarráðherra. Lilja Alfreðsdóttir, viðskipta- og menningarráðherra, boðar rót- tækar aðgerðir sem ætlað er að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjöl- miðla. Hún vill ekki upplýsa hvaða breytingar kunni að vera í vændum en samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er til skoðunar hvort ríkis- stjórnin leggi fram frumvarp um að ákveðin prósenta af auglýsinga- tekjum alþjóðlegra efnisveitna svo sem Google og Facebook verði skatt- lögð hér á landi. Að minnsta kosti sumir ráðherrar ríkisstjórnarinnar sjá fyrir sér að hluti fjárins sem kæmi í ríkiskass- ann ef erlendu efnisveiturnar verði skattlagðar myndi renna í vasa einkarekinna íslenskra fjölmiðla. Með því yrði hluti tekjuflæðisins út fyrir landsteinana stöðvaður. „Ég er ekki viss um að það leysi alfarið vanda einkarekinna fjöl- miðla að taka RÚV af auglýsinga- markaði,“ segir Lilja. „Það myndi kannski hjálpa eitt- hvað, en útflæðið er fyrst og fremst á þessum alþjóðlegu miðlum, Face- book og Google.“ Síðasti út slökkvi ljósin Um áramótin 2020 birti Hagstofan gögn sem sýndu að starfandi fjöl- miðlafólki fækkaði frá 2018 til 2020 um 731 Íslending. Að óbreyttu blasir við að síðasti maður út slökkvi ljósin. Þjóðir heims hafa með mis- munandi hætti brugðist við rekstr- arvanda sem bæst hefur við fyrri áskoranir. Sú síðasta er að opinberar stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar auglýsi í stórum stíl á alþjóðlegum efnisveitum í stað innlendra miðla. Danir eru meðal þeirra sem Boðar róttækar umbætur á hag fjölmiðla Lilja Alfreðs- dóttir, við- skipta- og menningar- ráðherra, boðar róttækar breytingar sem muni gagnast einkareknum fjölmiðlum. Rekstur fjöl- miðla á undir högg að sækja og beina stjórn- völd spjótum sínum að alþjóðlegum efnisveitum. FRÉTTAbLAÐIÐ/ eRnIR hyggjast setja á frekari gjaldheimtu til að styðja við fjölmiðla. „Þeir hafa í huga að skattleggja þessar erlendu efnisveitur og beina tekjunum sem skapast til f jöl- miðlanna. Það væri hægt að vera með svipaðar ívilnanir hér,“ segir Lilja. Ef sú leið verður farin liggur fyrir að slíkt frumvarp myndi enda á borði Bjarna Benediktssonar, þar sem fjármálaráðherra fer með skattamál. „Ef við lítum svo á það sem Frakkar eru að gera, þá leggja þeir á svokallað menningarframlag sem er 5,15 prósent. Í Frakklandi er streymisveitum gert að greiða frá þeirri fjárhæð í skatt og allt upp í 15 prósent ef efnið er ofbeldisfullt,“ segir Lilja. Umpólun á rekstrarumhverfi Lilja segir að ofboðsleg kerfisbreyt- ing hafi átt sér stað. „Við erum stödd í miðri tæknium- byltingu, hlutir breytast svo hratt að það er mikil áskorun að ná utan um þessa hröðu þróun.“ Í Svíþjóð fara nú 72 prósent af öllum auglýsingatekjum til erlendra miðla. „Þeirra „RÚV“ er samt ekki á auglýsingamarkaði,“ segir Lilja. Hún segir því raunverulega hættu á að útflæði auglýsingafjár aukist áfram þótt Ríkisútvarpið yrði tekið af aug- lýsingamarkaði. „Í mínum huga býr það grund- vallarsjónarmið að RÚV ætti ekki að vera á auglýsingamarkaði. En í ljósi reynslu sumra annarra þjóða held ég að þótt við tækjum RÚV af auglýsingamarkaði myndi það aðeins skapa takmarkað súrefni fyrir einkamiðlana.“ Lilja segir að af þessum sökum hafi hún beðið með að útfæra þá róttæku hugmynd að svipta RÚV auglýsingatekjum. „Ég tel vænlegri leið að reyna að ná í tekjur frá alþjóðlegum fyrir- tækjum. Við þurfum í raun að fara í röð aðgerða.“ Dauði N4 ýtir við fólki Dauði sjónvarpsstöðvarinnar N4 hefur vakið landsmenn upp af værum blundi. Fæstir virðast til- búnir lengur að greiða fyrir fréttir. N4 hafði þó ekki f lutt fréttir um langt skeið heldur leitaði stöðin annarra leiða til að skapa tekjur áður en yfir lauk. Áður þrifust fjölmiðlar ekki síður á áskriftartekjum en auglýsingum. Ofan á þetta ástand koma svo alþjóðlegu efnisveiturnar og soga til sín helming alls fjármagns sem fellur til árlega á auglýsingamark- aði. Í fyrra voru heildarauglýsinga- tekjur um 20 milljarðar, þar af fóru um 50 prósent, eða 9,8 milljarðar, til alþjóðlegra efnisveitna. Ómælt mikilvægi fjölmiðla Lilja segir engum vafa undirorpið að mikilvægi einkarekinna miðla hér á landi sé gríðarlegt. Mikilvægið snúi að margvíslegri lýðræðislegri umfjöllun, stjórnmálaumræðu, menningu og öðru sem skipti máli í samfélaginu. „Ísland hefur mjög sterka og mik- ilvæga sögulega hefð hvað varðar fjölmiðla. Það voru fjölmiðlarnir á 19. öldinni, mennta- og menning- arfólk á fjölmiðlum, sem beitti sér í sjálfstæðisbaráttunni í gegnum fjölmiðla og vöktu fólk. Hún nefnir Þjóðólf, Ísafold og f leiri rit sem hafi skipt sköpum. „Fjölmiðlarnir breyttu sögunni, fjölmiðlarnir skópu framþróun og umbætur.“ Mikilvægi fjölmiðla í tungumál- inu, íslenskunni, er einnig óendan- lega mikið að sögn Lilju. Nægi að nefna þverrandi lesskilning, sífellt f leiri glompur í fagorðaforða og annað sem komi í veg fyrir að börn skilji merkingu og inntak texta. „Almenningur þarf að átta sig á mikilvægi þess að innlendir fjöl- miðlar nái styrk sínum, enda er hlutverk þeirra afar mikilvægt,“ segir Lilja Alfreðsdóttir. n Björn Þorláksson bth @frettabladid.is Fjölmiðlarekstur hefur lengst af verið snúin glíma. Mynd/HeIÐA HeLgAdóTTIR 8 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 8. FeBRúAR 2023 MiÐViKUDAGUr

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.