Fréttablaðið - 08.02.2023, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 08.02.2023, Blaðsíða 24
Audi er með miklar áætlanir um að koma meira en 20 rafbílum á markað á næstu þremur árum. Meðal þess sem merkið kynnti sem hluta af þessum áætlunum er tilraunabíllinn Active sphere sem vel gæti endað sem framleiðslubíll árið 2027. njall@frettabladid.is Audi Activesphere er fjórði tilraunabíllinn með „sphere“- endingunni en hinir eru lúxus- bíllinn Grandsphere, sportbíllinn Skysphere og borgarjepplingurinn Urbansphere. Activesphere er hins vegar kúpulaga jepplingur af stærri gerðinni. Audi hefur sagt að merkið sé með bíl á prjónunum til að keppa við G-línu Mercedes og Land Rover Defender og Active- sphere gæti vel átt þar við þar sem um bíl er að ræða með mikla veghæð. Audi kann líka vel að framleiða bíla með fjórhjóladrifi eins og Quattro-línan ber vitni um. Audi vill hins vegar ekki smíða bíl sem lítur út eins og gamaldags jeppi, eða eins og aðalhönnuður Audi sagði nýlega í viðtali við Auto Express: „Við viljum ekki búa til eftirlíkingu af Defender eða G- línunni.“ Útlit Activesphere er dálítið sér- stakt, með kúpulaga þaki yfir fjög- urra dyra bílnum. Afturendinn er dropalaga og getur afturendinn virkað eins og pallur á pallbíl, en glerið yfir farangursrýminu rennur yfir þakið, og rafdrifinn gluggi lokar þá farþegarýminu frá farangursrýminu. Talsvert er um undirakstursvarnir á bílnum og með því að ýta á einn takka er hægt að hækka bílinn upp um 80 mm. Bíllinn er tæpir fimm metrar að lengd og notar PPE-raf bílaundir- vagninn sem gefur möguleika á framleiðslu. Einn rafmótor er á hverju hjóli sem samtals skila 436 hestöflum og 720 Nm togi. Bíllinn er með 100 kWst rafhlöðu og er drægi hans 600 kílómetrar, en bíll- inn er með 800 volta rafkerfi og ræður við allt að 270 kW hleðslu. n Audi Activesphere verður framleiddur árið 2027 njall@frettabladid.is Range Rover Velar kom fram á sjónarsviðið árið 2017 og því var orðið tímabært að koma með tals- verða uppfærslu á bílnum. Hann fékk reyndar tengiltvinnútfærslu 2020 en P400e-tengiltvinnútgáfan hefur fengið stærri rafhlöðu, sem fer úr 13,6 kWst í 19,2 kWst. Það þýðir að Range Rover Velar kemst nú 65 km á hleðslunni einni saman. Einnig er hleðsluhraði aukinn í 50 kW sem þýðir að hann verður með fljótari tengiltvinn- bílum að fullhlaða rafhlöðuna. Velar P400e er áfram með 398 hestafla vélbúnaði en útlits- lega fær bíllinn endurhönnuð díóðuljós, nýtt grill og endur- formaðan afturstuðara. Að innan fær bíllinn sömu innréttingu og í nýjum Range Rover-bílum þar sem aðaláherslan er á 11,4 tommu „fljótandi“ upplýsingaskjá í miðjustokki. n Range Rover Velar í nýrri útgáfu Eins og sést vel á þessari mynd getur stýrið fallið inn í innréttinguna. Activesphere er öðruvísi nálgun á jeppa en við eigum að venjast en hann sameinar kosti kúpulaga jeppa og pallbíls. MYNDIR/AUDI Afturendinn er dropalaga og getur virkað eins og pallur á pallbíl þegar glerinu á farangursrýminu er rennt upp yfir þakið á bílnum. Tengiltvinnútgáfan hefur fengið stærri rafhlöðu og kemst hann nú 65 kílómetra á raf- hleðslunni einni saman. Komin er sama innrétting og í nýjustu útfærslum Range Rover. Breytingar að framan einskorðast við grill og aðalljós en komin er stærri raf- hlaða fyrir tengiltvinnútgáfuna. MYNDIR/LAND ROVER Talsverður dulbúningur huldi bílinn sem náðist á mynd við prófanir í Kína á dögunum. MYND/COCHESPIAS njall@frettabladid.is Volvo er um þessar mundir að hefja prófanir á EX30-jepplingnum en merkið birti skuggamynd af bílnum fyrst í nóvember í fyrra. Þar sást aðeins að bíllinn hefur svipaðan afturenda og EX90 með svipuðum afturljósum. Nýjar njósnamyndir af bílnum við prófanir í Kína virðast renna stoðum undir það að útlitið verði eins og smækkuð útgáfa af EX90. Að vísu er bíllinn í miklum dul- búningi með svuntu yfir öllu nema gluggum. Samt sést gluggalínan vel og það sést votta fyrir innfelldum aðalljósum. Bíllinn byggir á sama SEA-undir- vagni og Smart #1 og því er tæknin að miklu leyti sú sama. Því má búast við 268 hestafla afturhjóla- drifinni útgáfu eða 420 hestafla með fjórhjóladrifi. Með 68 kWst rafhlöðu ætti rúmlega 400 km drægið að duga flestum. Búast má við að bíllinn verði frumsýndur seinna á þessu ári. n Njósnamyndir af Volvo EX30 MgB ISGLÝSÍN A T Léttari lund, alla daga vinnur gegn streitu og skerpir hugsun MAG-YOUR-MIND® Schisandra 75 mg 300 mg 5 mg 100 mg 200 mcg B6 vítamín Burnirót B9 (fólinsýra)bisglýsínat Magnesíum Nettó, Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni, Lyf og heilsu og á goodroutine.is fæst í Apótekaranum, GOOD ROUTINE® K AV IT A 10 BÍ L A BL A ÐI Ð 8. febrúar 2023 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.