Fréttablaðið - 08.02.2023, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 08.02.2023, Blaðsíða 22
Þægindi eru greini- lega eitthvað sem hönnuðir Hongqi kunna upp á sína tíu. Grunnverð: 11.990.000 kr. Hestöfl: 551 Tog: 670 Nm Hröðun 0-100 km: 4,9 sek. Hámarkshraði: 200 km Rafhlaða: 99 kWst Hleðslugeta DC/AC: 108/11 kW Drægi: 465 km L/B/H: 5.210/2.010/1.730 mm Hjólhaf: 3.110 mm Veghæð: 200 mm Eigin þyngd: 2.645 kg Hongqi E-HS9 KoStir n Sæti n Hljóðlátur n Afþreying gallar n Lítil endurhleðsla n Stilling hliðarspegla n Þyngd Reynsluakstur Njáll Gunnlaugsson njall @frettabladid.is Komið er á markað hjá BL nýtt bílamerki sem er kín- verska lúxusmerkið Hongqi. Fyrsti bíllinn frá merkinu í sölu er E-HS9 sem hefur hingað til aðeins verið seldur í Noregi. Hvað er stór kínverskur dreki sem er hugsaður fyrir kínverska elítu, að gera á Íslandi? Það er fyrsta spurningin sem manni dettur í hug þegar fréttist að lúxusbíllinn Hongqi sé kominn með umboð á Íslandi á Sævarhöfðanum. Reyndar þarf það kannski ekki að koma á óvart því að bíllinn er nokkuð vinsæll í Noregi og kínverskum bílum fjölgar ört á rafbílamarkaði. Hongqi er líka elsta bílamerki Kína með meira en 60 ára sögu á bak við sig, en merkið er nú í eigu FAW sem einnig smíðar bíla fyrir Toyota, Audi og Volkswagen fyrir heima- markaðinn. Hongqi ætlar sér stóra hluti í slagnum um kaupendur rafbíla og fyrsta skrefið er lúxus- bíllinn E-HS9. Þægindi eru greinilega eitthvað sem hönnuðir Hongqi kunna upp á sína tíu. Stórar hurðirnar opnast vel og þar sem bíllinn er hár þarf varla að beygja sig þegar sest er inn í stássstofuna. Hurðirnar lokast sjálfkrafa ef ekki er skellt nógu vel á eftir sér og þegar inn er komið tekur röð afþreyingarskjáa á móti manni. Upplýsingaskjárinn fyrir framan ökumann er sér á parti því að enginn sér á hann nema sá sem situr í ökumannssætinu. Sætin eru alveg sérkapítuli enda hægt að lengja í setu og stilla þau á marga vegu svo að þau verði sem þægilegust, svo ekki sé minnst á búnað eins og kælingu. Reyndar er svo einnig með aftursætin sem fá sömu meðferð og framsætin, enda eflaust gert ráð fyrir því að eigendur Hongqi E-HS9 sitji oft þar og láti aðra sjá um aksturinn. Kannski hefði verið best að prófa bílinn úr aftursætinu, og láta ein- hvern annan sjá um að keyra. Eins og svo oft í kínverskum bílum getur stjórnbúnaður verið óþarflega flókinn. Til dæmis er dáldið flókið að nota stýrikerfið Þrjú tonn af sándi Framendi Hongqi er ábúðarmikill og minnir nokkuð á Rolls Royce. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON Hægt er að leggja niður öftustu sætin með rafmagni frá farangurs­ rýminu. Dýrasta útgáfan er með sjö skjái og eru tveir þeirra fyrir aftan framsætin. Falleg viðar­ áferð er á miðjustokki og fleiri stöðum og efnisvalið gott. Hægt er að sjá hleðslu rafhlöðunnar á ljósum við afturhurðina. sem er alls ekki blátt áfram og langur vegur að sumum aðgerðum. Annað gott dæmi er stillingar á hliðarspeglum sem eiga ein- faldlega að vera aðgengilegar og auðlesanlegar. Því er ekki að heilsa í Hongqi því það þarf talsvert að hafa fyrir því að finna út úr því hvernig þær eru, og ekki hjálpar að handbókin er á kínversku. Þegar búið er að finna rétta takkann í stýrinu þarf annars vegar að nota flettitakka fyrir hægri/vinstri og hins vegar takka fyrir hljóðstyrk fyrir upp og niður. Annað sem kemur á óvart er að miðað við allt plássið sem er í bílnum eru hólf í minni kantinum. Það er ekki skrýtið að margir hafa líkt Hongqi E-HS9 við Rolls- Royce útlitslega enda fékk merkið Giles Taylor sem vann áður hjá Rolls-Royce til að sjá um hönnun- ina. Það má einnig líkja bílnum við járnbrautarlest því að framendinn er hár og áberandi. Þyngd hans er líka eitthvað sem fær mann til að hugsa um slíkt þar sem hann er ekki langt sunnan við þrjú tonn að þyngd. Það þarf því enga smá orku til að koma þessum járnklumpi úr kyrrstöðu í 100 kílómetra hraða á aðeins 4,9 sekúndum, en þangað fer hann að því er virðist án fyrir- hafnar. Það er svo annað mál þegar kemur að því að stöðva alla þessa þyngd, því að ekki er mikil mótor- bremsa í báðum rafmótorunum og því þarf að beita bremsu pedal- anum meira en maður er vanur í rafbílum. Aðeins meiri endur- hleðsla fæst ef bíllinn er settur í Eco-stillingu. Loftpúðafjöðrun sér um að láta bílinn líða yfir verstu ójöfnur, einnig þessar manngerðu, og heldur honum líka stöðugum á veginum þrátt fyrir þyngdina. Það kemur líka á óvart hversu lipur hann er þrátt fyrir stærðina en það er reyndar títt um rafbíla. Líkt og aðrir rafbílar er hann hljóðlátur á vegi og það eina sem heyrist er smá hvinur frá rafmótorunum. Grunnverðið á Hongqi E-HS9 er 11.990.000 krónur og þegar það er borið saman við keppinauta í lúxus í sama stærðarflokki er það bara nokkuð gott. Dæmi um keppinaut er Mercedes-Benz EQS SUV en grunnverð hans fer yfir 20 milljónir. Hvort kínverska merkið nái að stela kaupendum frá þýsku merkjunum er erfitt að segja og víst er merkið í beinni samkeppni við önnur merki BL eins og Range Rover og BMW. Eftirspurnin eftir lúxusgerðum rafbíla er hins vegar í hámarki og því má vera að merkið muni ná til sín sölu þar sem slíkir bílar eru oftast upppantaðir áður en þeir koma í sýningarsali. n 8 BÍ l a Bl a Ði Ð 8. febrúar 2023 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.