Fréttablaðið - 08.02.2023, Page 11
Það er áskorun í sjálfu
sér að vita ekki alveg
hvað er fram undan.
Svipmynd |
Þóranna hefur áratuga reynslu af
markaðsmálum og hefur að und-
anförnu unnið að því að setja upp
starfsemi Entravision á Íslandi sem
vottaðs sölu- og þjónustuaðila fyrir
Meta.Hún segir það hafa verið eitt
hennar mest krefjandi verkefni til
þessa.
Utan vinnu hefur Þóranna meðal
annars unun af lestri góðra bóka.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Söngur og góðar sögur á hvaða
formi sem er. Að skíða finnst mér
líka afskaplega gaman, en ég væri
einmitt til í að komast miklu oftar
í brekkurnar. Svo er ég mikil fjöl-
skyldumanneskja og líður alltaf
best í faðmi hennar.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Það tók mig langan tíma að hugsa
um þetta. Það er kannski svolítið
sjálfhverft en þær bækur sem hafa
haft mest áhrif á mig eru bókasería
sem ég skrifaði um markaðsmál.
Ekki að inntakið hafi haft svo
mikil áhrif (ég kunni þetta jú),
heldur reynslan, lærdómurinn og
afrekið að skrifa og gefa sjálf út sex
bóka seríu og uppgötva hvers megn-
ug kona ég virkilega er.
Svo er ég reyndar eins og iðnaðar-
mennirnir heima hjá sér og hef ekki
gefið mér tíma til að markaðssetja
þessar bækur, en afrekið verður
engu að síður aldrei tekið af mér.
Hver hafa verið mest krefjandi
verkefnin á undanförnum miss-
erum?
Það hefur verið krefjandi en líka
lærdómsríkt að setja upp starfsemi
Entravision á Íslandi sem vottaðs
sölu- og þjónustuaðila fyrir Meta.
Núna þegar sér fyrir endann á
þessu verkefni er ég líka stolt af
afrekinu og hlakka til að sjá hvern-
ig þessu reiðir af.
Hvaða á skoranir e r u f ram
undan?
Akkúrat á þessari stundu veit
ég það ekki alveg. Nú þegar Meta-
verkefninu hefur verið hleypt af
stokkunum breytast þær áskor-
anir sem felast í því verkefni. Ég
fylgi því eftir í núverandi hlutverki
eitthvað fram á vorið og svo koma
hlutirnir í ljós.
Það er áskorun í sjálfu sér að vita
ekki alveg hvað er fram undan – en
líka spennandi og í því felast ýmis
tækifæri.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
Ég bara veit það ekki. Ég hef
reynt í gegnum tíðina að plana
framtíðina en lært það að fyrir mig
er best að hafa einhverja smá hug-
mynd um hvert mig langar til að
fara en annars að vera sveigjanleg
og „go with the f low“. Að gera það
hefur fært mér ýmis tækifæri og
ævintýri sem ég hefði ekki viljað
missa af og það er borðleggjandi að
ef ævisagan mín verður nokkurn
tímann skrifuð á hún svo sannar-
lega eftir að vera hið áhugaverð-
asta lesefni. n
Eigin bókasería haft mest áhrif
Þóranna Kristín Jónsdóttir
Nám:
MBA með áherslu á strategíska
markaðssetningu.
Störf:
Unnið í markaðsmálum fyrir
hin ýmsu fyrirtæki og stofn-
anir í um 20 ár.
Fjölskylduhagir:
30 ára samband og 22 ára
hjónaband með manninum
mínum og við hjónin eigum 18
ára stelpu og 14 ára strák.
Flughermar Icelandair eru mjög eftirsóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þóranna Kristín Jónsdóttir segir ævisögu sína verða hið áhugaverðasta les-
efni, verði hún einhvern tíma skrifuð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Flugfreyjustarfið er
náttúrulega krefjandi
starf en við finnum
alltaf fyrir miklum
áhuga.
Elísabet Helgadóttir, fram-
kvæmdastjóri mannauðssviðs
Icelandair
Icelandair upplifir nú stærsta
ráðningarferli í sögu fyrir-
tækisins. Verið er að stækka
þjálfunarsetur Icelandair á
Flugvöllum og flugfélög víðs
vegar um heiminn gera sér
sérstakar ferðir til Íslands til
að nota flugherma Icelandair.
helgisteinar@frettabladid.is
Icelandair stendur frammi fyrir
mikla aukningu í þjálfunarferli
félagsins. Framkvæmdir eiga sér
einnig stað við nýjar höfuðstöðvar
félagsins á Flugvöllum í Hafnarfirði
þar sem Icelandair áætlar að sam-
eina stóran hluta af starfsemi sinni
á höfuðborgarsvæðinu. Þegar því
ferli lýkur munu 600 manns starfa
undir sama þaki.
Í lok árs 2022 voru starfsmenn
Icelandair 3.100 talsins en í heims-
faraldrinum náði starfsmannafjöldi
félagsins sögulegu lágmarki. Í sumar
áætlar Icelandair að starfsfólk
félagsins verði nálægt 5.000 talsins.
Guðmundur Tómas Sigurðsson,
f lugstjóri og ábyrgðarmaður þjálf-
unar áhafna hjá Icelandair, segir
núverandi ráðningar- og þjálfunar-
ferli fyrir komandi sumar vera það
stærsta í 85 ára sögu félagsins. Hann
segir þjálfunarsetur Icelandair og
flugherma félagsins vera með þeim
betri sem finnast í heiminum.
„Við þjálfum alla okkar flugmenn
í hermunum en einnig koma önnur
f lugfélög sem vilja koma hingað
mjög langar vegalengdir og þjálfa í
flughermunum. Við erum til dæmis
með nýjasta Boeing 757 flugherm-
inn í heiminum og fólk kemur hing-
að ekki bara einu sinni eða tvisvar
heldur sækir það alla sína þjónustu
hingað,“ segir Guðmundur.
Hann segir að þær ferðir skapi
mikið verðmæti fyrir landið og
myndast rúmlega 3.000 hótelgist-
ingar á ári í tengslum við notkun
flughermanna.
Nánast allt starfsfólk Icelandair
fer í gegnum árlega þjálfun og segir
félagið að umfang fræðslu og þjálf-
unarstarfs eigi sér enga hliðstæðu á
meðal íslenskra fyrirtækja. Rúmlega
100 starfsmenn koma að þjálfun og
yfir háannatímann fer kennsla fram
allan sólarhringinn.
Sigrún Stefanía Kolsöe, forstöðu-
maður þjálfunar hjá Icelandair,
segir að allir starfsmenn taki þátt
í svipaðri almennri nýliðaþjálfun
óháð stöðu. „Það er mjög skemmti-
legt og er gert til að tengja okkur öll
við flugið. Hvort sem þú ert að vinna
á bak við skrifborð, ert upplýsinga-
fulltrúi eða forritari.“
Hún segir að Icelandair þjálfi nú
í kringum 300 nýliða í f lugfreyju-
og f lugþjónastöður fyrir komandi
sumar. Þjálfunin fer mikið fram
að kvöldi til og um helgar þar sem
margir nýliðar eru í skóla og að
náminu loknu munu nýliðarnir
bætast við 1.000 manna áhafna-
teymi Icelandair.
Hátæknibúnaður er mikið not-
aður við þjálfunina og hefur starfs-
fólk til að mynda aðgang að sýndar-
veruleikagleraugum sem þjálfa það
fyrir mismunandi aðstæður. Í þjálf-
unarrými er einnig niðursagaður
skrokkur af gamalli f lugvél sem
er búinn tölvuskjáum við glugga
vélarinnar þar sem starfsmenn geta
til dæmis æft fyrir lendingar á vatni.
Elísabet Helgadóttir, f ram-
k væmdastjóri mannauðssviðs,
segir einnig að mikilvægt sé að
taka reglulegar mælingar á starfs-
anda innan hópsins. Hún segir að
mikið vatn hafi runnið til sjávar
síðan kjaradeilur Flugfreyjufélags
Íslands og Icelandair stóðu yfir og
að mælingar sýni almenna ánægju
meðal starfsfólks Icelandair.
„Flugfreyjustarfið er náttúrulega
krefjandi starf en við finnum alltaf
fyrir miklum áhuga og fáum vel
yfir þúsund umsóknir á hverju ári.
Starfið er unnið á vöktum á ýmsum
tímum sólarhrings og ég held að fólk
geri sér alveg grein fyrir því að þetta
er ekki fyrir alla, en þetta er samt
sem áður mjög skemmtilegt starf,“
segir Elísabet. n
Icelandair aldrei ráðið jafn marga starfsmenn
Guðmundur Tómas Sigurðsson, Sigrún Stefanía Kolsöe og Elísabet Helgadóttir segja að þjálfunarsetur Icelandair í
Hafnarfirði sé mögulega eini skólinn í landinu sem er rekinn allan sólarhringinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Fréttablaðið markaðurInn 118. Febrúar 2023
mIðVIkuDaGur