Fréttablaðið - 08.02.2023, Qupperneq 28
Þjónusta
Búslóðaflutningar
Ert þú að flytja? Búslóðafl.,
fyrirtækjafl., píanófl. o.fl. Extra
stór bíll. Búslóðalyfta. Flutningaþj.
Mikaels. S. 894 4560 www.flytja.is
flytja@flytja.is
Nudd
Nudd Nudd Nudd
Slökunarnudd í miðbæ Reykjarvíkur.
Lausir tímar. Sími 694 7881, Janna.
Húsnæði
Geymsluhúsnæði
GEYMSLuR.IS
SíMI 555-3464
Suma hluti er betra að geyma.
Geymslur fyrir dánarbúið, allt að
20% afsláttur. www.geymslur.is
WWW.GEYMSLAEITT.IS
Sérgeymslur á mjög góðum
verðum. Frá 2-17 m2. S: 564-6500
SKIPULAGSAUGLÝSING
Í samræmi við 31. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 eru hér með auglýstar tillögur að breytingu
Aðalskipulags Borgarbyggðar 2010-2022 og að
breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Hraunsnef ( L134771) - Breyting á aðalskipulagi
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann
12.10.2022 að auglýsa tillögu að breytingu á
aðalskipulagi Borgarbyggðar í landi Hraunsnefs í
Borgarbyggð.
Niðurskógar – Húsafell 3 (L134495) – Breyting á
aðalskipulagi
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann
12.01.2023 að auglýsa tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 í landi
Húsafells 3 í Borgarbyggð.
Niðurskógar – Húsafell 3 (L134495) – Breyting á
deiliskipulagi
Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með
fullnaðarafgreiðsluvald sveitastjórnar samkvæmt
samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann
06.01.2023 að auglýsa tillögu að breytingu á
deiliskipulagi að því gefnu að sveitarstjórn samþykkti
auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi sem gerð er
samhliða.
Ofangreindar skipulagsáætlanir eru aðgengilegar á
heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 8.
febrúar til og með 23. mars 2023. Ef óskað er eftir
nánari kynningu á ofangreindum áætlunum þarf að
panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að
gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við
auglýstar skipulagstillögur og er frestur til að skila inn
athugasemdum til 23. mars 2023. Athugasemdum
skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar,
Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa
eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.
Borgarbyggð, 8. febrúar 2023.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga
lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem
kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu
skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
Auglýsing um skipulagsmál
í Sveitarfélaginu Árborg
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
eru auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:
Austurvegur 69 - Deiliskipulagsbreyting
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 1. febrúar 2023,
tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Austurveg 69
Selfossi.
Deiliskipulag fyrir lóðina Austurvegur 69, var upphaflega unnið
í mars 2004 m.s.br. Síðasta breyting var samþykkt í bæjarstjórn
Árborgar 13. maí 2015 og í sveitarstjórn Flóahrepps 4. mars 2015
og var samþykkt þessi birt í B-deild Stjórnartíðinda með aug-
lýsingu nr. 1001 þann 4. nóvember 2015. Austasti hluti reitsins er
innan marka Flóahrepps og samkvæmt samkomulagi sveitar-
félaganna er sá hluti skráður undir Árborg en lýtur skipulags-
legri forsögn beggja.
Deiliskipulag þetta er bæði í samræmi við Aðalskipulag Sveitar-
félagsins Árborgar 2020-2036 (reit VÞ6). og Aðalskipulag Flóa-
hrepps 2017-2029. Aðkoma að lóðinni frá vestri helst óbreytt
en frá austri mun hún breytast. Í stað þess að aka í boga frá
hringtogi inn á lóðina verður ekið í beinni stefnu til norðurs og
síðan beygt til vesturs inná lóðina. Samráð hefur verið viðhaft
við forsvarsmenn beggja sveitarfélaga um aðkomu frá austri og
nýja götu innan Flóahrepps.
Breytt aðkoma að austan mun geta tengst íbúðabyggð
Árbakkalands norðan Austurvegar 69. Jafnframt tengist hún
framtíðar atvinnusvæði (VÞ1) innan Flóahrepps en reikna má
með vaxandi uppbyggingu þar eftir að ný Ölfusárbrú mun rísa.
Einnig má reikna með að austurleiðin geti tengst atvinnusvæði
Mjólkurbús Flóamanna. Markmið deiliskipulagsbreytingar er að
nýta lóðina til frekari atvinnuuppbyggingar um leið og skapaðar
eru nýjar tengingar við nærliggjandi svæði innan Árborgar og
Flóahrepps.
Helstu breytingar frá fyrra deiliskipulagi eru eftirfarandi:
1. Hringtorg á Austurvegi helst óbreytt en aðkoma mun liggja
til norðurs og tengjast lóðunum með nýjum hætti. Vegur
þessi mun geta tengst framtíðar uppbyggingu við Árbakka-
land og eins svæðum innan Flóðahrepps. Lóðarmörk mót
norðri færast um 3m til norðurs og stækka viðkomandi lóðir
(69f og 69g) við þá færslu.
2. Lóð nr. 69 er brotin upp og minnkar til samræmis (sjá uppdr.).
Byggingareitur fær breytta lögun og bílast. breytast.
3. Lóð 69a er brotin upp og minnkar í samræmi við það (sjá
uppdrátt). Byggingareitur helst óbreyttur. 4. Lóð 69b er
stækkuð til suðurs og byggingareitur að sama skapi.
5. Lóð 69c er felld undir lóð 69b og stækkar lóð 69b við það.
6. Gerð er sérstök lóð um akveg sunnan við Austurveg 69 sem
fær lóðanúmerið 69c.
7. Stofnuð er ný lóð, 69e á austurhluta reits.
8. Stofnuð er ný lóð, 69f á norðurhluta reits.
9. Stofnuð er ný lóð, 69g á norðausturhluta reits.
10. Norðausturhorn lóðarinnar (L229186) er stækkun skv. sam-
þykkt Árborgar og Flóahrepps frá 2019, stærð, 1.971m². Þetta
þríhyrningslaga horn hefur áður verið sameinað lóð Austur-
vegar 69. Við endanlegt samþykki þessa deiliskipulags þarf
að breyti heiti þessa horns en það er í landeignaskrá nefnt
Austurvegur 69E sem verður þá rangt því önnur lóð hefur
fengið það heiti skv. deiliskipulaginu. Lóð á vesturhluta
lóðar, spennistöð nr. 69d, helst óbreytt.
Ofangreind skipulagstillaga liggjur frammi til kynningar á
skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki
er hægt að nálgast tillöguna á heimasíðu Sveitarfélagsins
Árborgar á vefslóðinni www.arborg.is
Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 8. febrúar
til og með 22. mars 2023.
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn
kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til
að skila inn athugasemdum til og með 22. mars 2023.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu
skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið
skipulag@arborg.is
Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun
stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu aug-
lýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson
skipulagsfulltrúi
Sýningarsalur
Draghálsi 4 - S: 535 1300
verslun@verslun.is
Umhverfisvæn endurvinnsla
á tækjum í endurvinnslu
Nú hafa Verslunartækni og Geiri ehf. ásamt Hringrás
hafið samstarf á endurvinnslu á ónýtum tækjum úr atvinnueldhúsum
og kælitækjum, Þú kemur einfaldlega með tækið til okkar að
Draghálsi 26 og við komum þeim til Hringrás til endurvinnslu
4 SMÁAUGLÝSINGAR 8. febrúar 2023 MIÐVIKUDAGUR550 5055
Afgreiðsla smáauglýsinga og sími
er opinn alla virka daga frá 9-16
Netfang: smaar@frettabladid.is
Smáauglýsingar
Umhverfismat framkvæmda
Umhverfismatsskýrsla í kynningu
Eldisgarður, eldisstöð á Reykjanesi,
Reykjanesbæ.
Samherji Fiskeldi hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna
umhverfismats Eldisgarðs, eldisstöðvar á Reykjanesi, Reykjanesbæ.
Kynning á umhverfismatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd
og umhverfismatsskýrsla liggur frammi til kynningar í Ráðhúsi Reykja-
nesbæjar og hjá Skipulagsstofnun frá 8. febrúar til 23. mars 2022.
Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á vefsíðu stofnunarinnar:
www.skipulag.is.
Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og lagt
fram umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23.
mars 2022 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða
með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.