Fréttablaðið - 14.02.2023, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 14.02.2023, Blaðsíða 14
Mikilvægt er að við í VR réttum út hönd og liðsinnum félögum okkar sem vita ekki hvert á að leita – og hverju hægt er að leita að. Skollið er á með verkfalli hjá Íslandshótelum, sem reka einnig Fosshótel. Um er að ræða Eflingar- félaga sem sjá um þrif og framreiða morgunverð hjá hótelunum. VR- félagar, sem manna gestamóttökur þessara hótela, eru hins vegar ekki í verkfalli. Í samtölum mínum við félaga mína í VR sem vinna hjá hótelkeðj- unni hefur komið fram hjá þeim óvissa um stöðu þeirra. Orðrómur er um að eigendur Íslandshótela telji að VR-félagar skuli ganga í störf þeirra sem eru í verkfalli, meðan Samtök atvinnulífsins hafa gefið út að þar á bæ íhugi menn verk- bann á þá sem starfa á hótelunum eftir kjarasamningi VR. Hvort sem er setur VR-félaga í verulega erfiða stöðu. Lítið berst frá VR um stöðu okkar fólks. Upplýsingarnar koma úr ann- arri átt. Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfs- son, hefur reynst gífurlega öflugur talsmaður félagsins í fjölmiðlum. Nokkuð sem vel er tekið eftir. Þá er vefsvæði VR einnig góð upplýsinga- veita, þ.e.a.s. fyrir þá sem kunna að leita upplýsinganna. Alltof margir vita hins vegar ekkert hverju, eða hvernig, á að leita – og gefast því fljótt upp. Leita svara annars staðar. Mikilvægt er að við í VR réttum út hönd og liðsinnum félögum okkar sem vita ekki hvert á að leita – og hverju hægt er að leita að. Nálgumst þá t.d. með heimsóknum á vinnu- staði þeirra, þar sem hægt er að eiga samtalið um mikilvægi kjarasamn- inga. Ekki bara um laun, heldur þau fjölmörgu réttindi sem áunnist hafa í áranna rás. Slík fræðsla er ekki bara til hagsbóta fyrir starfsfólkið heldur einnig fyrir verkalýðshreyf- inguna og atvinnurekendur. Rétt- indi þau sem áunnist hafa, eins og orlof, aðild að sjúkrasjóðum og líf- eyristryggingum er enda ávöxtur samninga milli aðila um bætt kjör – en ekki bara laun. Vinnuskólar sveitarfélaganna, sem starfræktir eru yfir sumar- mánuðina, hafa reyndar margir innleitt kennslu um atvinnu- þátttöku; réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Það eru þó ekki öll ungmenni sem starfa sumar- langt í vinnuskólanum – og fá því kannski ekki þessa mikilvægu fræðslu. Þá eru auðvitað margir sem hafa komið nýir til Íslands og þekkja ekki íslenskan vinnu- markað í þaula. Allt að einu kallar þetta á nýja nálgun á miðlun upp- lýsinga – sem er þó auðvitað ekki ný af nálinni, enda byggir hún bara á hinu fornkveðna; að eiga samtal fólks á milli. Nokkuð sem miðlun upplýsinga í gegnum fréttaveitur eða samfélagsmiðla kemur aldrei í staðinn fyrir. Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í kjöri til stjórnar VR og vonast til að koma ný inn í stjórnina – með nýjar áherslur. Þessar nýju áherslur snúa fyrst og fremst að því að auka jafningja- fræðslu innan félagsins, sérstak- lega þegar kemur að starfsfólki sem er að hefja atvinnuþátttöku sína á íslenskum vinnumarkaði. Það mun skila sér í auknum skilningi á bæði réttindum og skyldum á íslenskum vinnumarkaði – og auka samstöðu til frambúðar um þann samfélags- sáttmála sem við höfum hér þróað og viljum búa við. Í samtölum sem ég hef átt að und- anförnu við félaga mína í VR sem vinna hjá Íslandshótelum og Foss- hótelkeðjunni hefur komið í ljós að þeir búa við mikla óvissu vegna þess verkfalls sem nú er hafið. Verkfalls sem VR á ekki aðild að, en snertir þó félaga okkar. Snertir okkar nánasta samstarfsfólk sem við viljum sýna samstöðu með, bæði í hug og verki. Mikilvægt er að réttar upplýsingar berist frá stéttarfélaginu til okkar félaga sem vinna í gestamóttökum hótelanna og ekki eru í verkfalli. Þó meirihluti þeirra sem starfar við gestamóttöku sé fæddur hér á landi er staðreyndin sú að vart væri hægt að halda úti jafn öflugri ferðaþjón- ustu og raunin er, ef ekki kæmi til erlent vinnuafl. Það starfsfólk – og félaga okkar í VR – þarf að nálgast sérstaklega, með samtali. n VR og verkfall Íslandshótela Jóhanna Gunnarsdóttir er í framboði til stjórnar VR Fyrirtæki Losunarsv. 1 Losunarsv. 2 Losunarsv. 3 Samtals losun Samtals losun Kolefnisbinding Hagnaður fyrir skatt tCo2í tCo2í tCo2í tCO2í í tonnum í milljörðum kr. Alcoa 530.714 50.476 130 581.320 580.570 750 18.874 Norðurál 528.455 49.025 177 577.656 577.656 0 12.591 Icelandair 486.064 213 68 486.345 485.845 500 -16.524 Elkem 456.544 10.868 85 467.496 467.496 0 8.137 Isal 312.719 27.877 50 340.646 340.646 0 15.888 Samskip 297.900 294 111.100 409.294 409.294 0 713 Eimskip 296.684 1.102 202 297.988 297.988 0 7.909 HS-Orka 86.482 0 1.271 87.753 87.753 0 2.816 Brim 71.461 305 21.067 92.833 92.833 0 14.221 Síldarvinnslan 53.385 987 256 54.628 54.628 0 13.172 Orkuveita Rvk. 47.500 0 1.100 48.600 40.750 7.850 16.192 Landsvirkjun 40.249 8 10.726 50.983 16.583 34.400 28.748 Play 25.160 8 5.800 30.968 30.968 0 -3.618 Eskja 23.574 357 9.458 33.389 33.389 0 5.020 Fisk 21.234 72 5.031 26.337 26.337 0 4.531 Útgerðarfélag Reykjavíkur 18.738 150 25.027 43.915 43.915 0 4.037 Skinney-Þinganes 17.209 163 5.185 22.557 22.557 0 3.483 Fyrirtæki 3.314.073 141.905 196.732 3.652.709 3.609.209 43.500 136.190 Hlutfall losunarsviða 91% 4% 5% Tölur í losunarsviðum 1 til 3 eru fengnar úr sjálfbærniskýrslum fyrirtækjanna. Einnig kolefnisbinding. Taflan sýnir stöðuna fyrir árið 2021 og veldur hún mér kvíða, loftslagskvíða. Í töfluna vantar losun frá kísilverinu á Bakka og Samherja. Þorskstofninn í hættu vegna lofts- lagsbreytinga en möguleg tækifæri í sardínum og makríl er frétt á for- síðu Fréttablaðsins 9. desember 2022. Ráðast þarf að rót vanda- málsins, stoppa losun GHL. Slæmu fréttirnar þegar mælingar á losun í virðiskeðju fyrirtækja eru að risarnir í losun eru ekki að vinna neitt í losunarsviði 3, nema orku- fyrirtækin tvö, LV or OR. Hlutfallið í losunarsviði 3 er 5% en viðmið MSCI vísitölunnar er 88%. Mælingar í virðiskeðjunni eru nauðsynlegar til að fyrirtæki skilji rekstur sinn og ábyrgð. Lykilatriði til að ná kolefnishlutleysi (Net Zero emissions). Staðan eða kortlagning hjá fyrirtækjunum minnir mig á landakort sem Christopher Col- umbus hafði árið 1492 þegar hann ætlaði að sigla til Asíu en endaði í Ameríku! Engin losun reiknuð við f lutning hráefnis og vöru hjá álverum. Einn- ig hvernig hráefnis er af lað. Það vantar fallega framtíðarsýn eins og CarbFix hefur um að fanga CO2 úr andrúmslofti og farga neðan- jarðar sé f lutt í skipum með vist- vænu eldsneyti. Í töf lunni eru stærstu kolefnis- losunarvaldar Íslands og raðað eftir beinni losun (grái dálkurinn). Fyrsti dálkurinn er hagnaður fyrir skatta 2021 og fengin úr bókinni 300 stærstu. Síðan koma losunar- sviðin og mótvægisaðgerðin, kol- efnisbinding. Athygli vekur að hagnaður gráu fyrirtækjanna 18 er 136 milljarðar fyrir skatta og ef þau væru skylduð skv. mengunar- bótareglunni til að kolefnisjafna losun í dag og greiða þrjú þúsund krónur (20 EUR) fyrir tonnið af CO2 væri kostnaður um 10 millj- arðar eða rúm 7% af hagnaði fyrir skatta. Sorglegt að sjá að fyrirtækin fjárfesti ekki meira í grænum fjár- festingum, orkuskiptum, hring- rásarhugsun, þekkingaröf lun og nýsköpun í loftslagsmálum í góð- ærinu. Heildarlosun gráu fyrirtækjanna er 3,3 milljón tonn CO2 eða rúm- lega 73% af losun landsins fyrir utan landnotkun. Almenningur, sveitarfélög og hin 20.000 fyrir- tækin eiga 27%! Til samanburðar er losun gróðurhúsalofttegunda sem er á beinni ábyrgð Íslands 2,7 milljón tonn. Orkufyrirtækin með yfirburði í kolefnisbindingu en margt spenn- andi í farvatninu á komandi árum ef staðið verður við framtíðarsýn fyrirtækjanna í sjálfbærniskýrslum. En aðeins rúmlega 1% af losun er kolefnisjöfnuð. Aðeins Landsvirkjun nær að upp- fylla kröfur um kolefnishlutleysi en búið er að lögfesta að Ísland ætlar að ná markmiði um kolefnishlutleysi eigi síðar en 2040. Einnig er í hættu að Ísland nái markmiði Parísarsamkomulagsins 2030 með þessu aðgerðaleysi. Stóru losunarfyrirtækin eru ekki að standa sig og sýna litla ábyrgð, stjórnvöld þurfa að taka frum- kvæðið með réttlátum umskiptum í loftslagsmálum, setja þarf neyðar- lög og skylda fyrirtækin til að gera metnaðarfulla neyðaráætlun. ETS – Viðskiptakerfi ESB heldur um iðnað, flug og sjóflutninga. Um kerfið gilda sérstakar reglur en þrátt fyrir það þá öndum við að okkur sama loftinu og við þurfum að gera strangar kröfur til risanna í losun. Mögulegt er að losunartölurnar sem álverin birta í sjálf bærniskýrslum séu mun lægri en losunin er í raun og veru. Nú er að hefjast nýtt uppgjörsár og vonandi verða þessar upp- lýsingar til þess að fyrirtæki setji meiri metnað í mælingar á virðis- keðjunni. Það skiptir miklu máli að finna hvaða losunarþáttur og hvar mest ábyrgðin liggur. Forgangsraða og setja mestan tíma í stærstu lofts- lagsvænu aðgerðina. Íslensk fyrirtæki þurfa að spýta í lófana og vera góð fyrirmynd, til að sviðsmyndin – þorskstofninn hverfi úr lögsögunni – raungerist ekki. n Kolefnismælingar og hagnaður Sigurpáll Ingibergsson gæðastjóri 14 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 14. FeBRúAR 2023 ÞRIðJuDAGuR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.