Fréttablaðið - 14.02.2023, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 14.02.2023, Blaðsíða 1
| f r e t t a b l a d i d . i s | Frítt 2 0 2 3 HALLDÓR | | 12 PONDUS | | 20 Colson Whitehead á Bókmennta hátíð 3 1 . t ö L U b L A ð | 2 3 . á R g A N g U R | Fréttir | | 10 Menning | | 22 LíFið | | 24 Tilgangslaust að hata Ekki aðdáendum að kenna Þ R I ð J U D A g U R 1 4 . f e b R ú A R| LOftSLAgSmáL Alcoa, Norðurál og Icelandair eru þau þrjú fyrirtæki sem losa mest kolefni hér á landi. Icelandair losaði árið 2021 486.000 tonn og er í þriðja sæti yfir mest mengandi fyrirtæki lands- ins.  Stóriðjufyrirtæki raða sér beggja vegna við, Alcoa losar mest, 530.000 tonn, Norðurál 528.000 tonn og Elkem 456.000 tonn. „Mengun vegna losunar á kolefni er að ganga frá eðlilegu lífi á jörð- inni,“ segir Sigurpáll Ingibergsson, sem hélt nýlega erindi á Loftslags- fundi Festu. Sigurpáll rýndi í sjálfbærniskýrsl- ur fyrirtækjanna og eru tölurnar um losun fengnar þaðan. Mörg stór sjávarútvegsfyrirtæki og orkufyrir- tæki elta helstu mengunarvaldana. „Hér er um líf eða dauða að tefla,“ segir Sigurpáll. Sláandi sé að í mörgum tilvikum séu tengsl milli góðrar fjárhagslegrar afkomu fyrir- tækjanna og mikillar mengunar. Sjálfbæran metnað segir hann vera lítinn sem engan. Sjá Síðu 8 og 14 Stóriðja og flugfélög menga mest Hér er um líf eða dauða að tefla. Sigurpáll Ingi- bergsson, sérfræðingur Þetta getur orðið ógnun við ríkisstjórn- arsamstarfið. Grétar Þór Eyþórsson, stjórn- málafræðiprófessor við HA LíFið | | 26 Fertug hneykslunarhella S tJ Ó R N m áL Samk væmt ný r r i könnun Prósents fyrir Fréttablaðið mælist fylgi Vinstri grænna 5,9 pró- sent. Flokkurinn hlaut 12,6 prósent í alþingiskosningunum árið 2021. Síðan þá hefur fylgið aðeins dalað. Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmála- fræðiprófessor við HA, segir fylgið búið að vera lítið lengi en staðan virðist aðeins versna. Óvíst sé hversu lengi þetta geti haldið áfram. „Þetta getur orðið ógnun við ríkis- stjórnarsamstarfið. Þetta er ekki til að bæta baráttuandann innan flokksins,“ segir hann. Nærtækt sé að skýra stöðu flokks- ins með ríkisstjórnarsamstarfinu. Í faraldrinum gekk það ágætlega en fjarað hafi undan Vinstri grænum. Takmörkuð ánægja sé innan flokks með útlendingafrumvarpið og fleiri umdeildar ákvarðanir. Þegar litið er til tekjudreifingar sést að Vinstri græn hafa aðeins 2 prósenta fylgi lágtekjufólks, minnst allra, en mest fylgi hefur flokkurinn hjá hátekjufólki, 10 prósent. „Með hressilegri einföldun er hægt að segja að f lokkurinn sé meira grænn en vinstri,“ segir Grét- ar. Bendir hann á að flokkurinn hafi lagt mikla áherslu á umhverfismál í samstarfinu. Sjá Síðu 4 Fylgi Vinstri grænna við hættumörk Tveir voru fluttir á bráðadeild Landspítalans eftir að gaskútur í Land Cruiser sprakk eftir hádegi í gær við bensín- stöð Olís í Álfheimum. Bíllinn stóð við metandælu bensínstöðvarinnar við hlið tveggja annarra bíla þegar kúturinn í honum sprakk. Sprengingin er til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu. FréttabLaðið/Sigtryggur ari Í APPI OG Á DOMINOS.IS ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI, EF ÞÚ SÆKIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.