Fréttablaðið - 14.02.2023, Blaðsíða 28
og 2006, 23 árum síðar, þegar Radio
Times tók saman lista yfir verstu
sjónvarpsþætti sögunnar þá náði
Minipops 2. sæti.
Þættirnir voru því kannski eðli-
lega slegnir af eftir eina þáttaröð en
hópurinn hélt áfram, gaf út sex plöt-
ur í viðbót og naut sérlega mikilla
vinsælda í Kanada þangað sem þau
fóru í þriggja vikna tónleikaferð.
Engin eftirsjá
Ósagt skal látið hvort Channel 4 hafi
viljað bæta fyrir gamlar syndir með
sýningu heimildamyndarinnar
Whatever Happened to the Mini-
pops? 2005 en þar steig Joanna
Fischer, sú yngsta í hópnum fram,
og sagðist fullorðin ekki sjá eftir
neinu.
Hún var fimm ára þegar hug-
myndafræðingur hópsins, Martin
Wyatt, sá hana dansa á barnadiskó-
teki og spurði hana hvort hún vildi
vera í poppsveit. Hún var ekki
aðeins yngst, heldur entist hún
lengst og var miðpunktur umdeild-
ustu augnablikanna.
„Þetta var svo ótrúleg lífsreynsla,“
sagði Fischer og nefndi sérstak-
lega að þau hefðu fengið að hitta og
syngja með öllum stórstjörnunum
sem þau stældu. Þá minntist hún
„ótrúlegustu upplifunar sem nokk-
ur krakki getur hugsað sér“, að hafa
komið fram fyrir 20.000 manns á
tónleikum í Kanada.
„Ég var sjö eða átta ára. Heldurðu
að mér hafi ekki verið sama?“ var
svar hennar við því hvort harka-
leg viðbrögðin við þættinum hafi
truflað hana á sínum tíma. Hún hafi
þó grunsemdir um að Channel 4
hafi síður en svo þótt miður hversu
alræmdur þátturinn varð þar sem
þau trekktu að tvær milljónir áhorf-
enda.
„Það er ekkert til sem heitir slæm
umfjöllun. Ef þetta hefði þótt stór-
kostlegt hefði fólk sennilega ekki
nennt að horfa.“ n
Ég var sjö eða átta ára.
Heldurðu að mér hafi
ekki verið sama?
Joanna Fischer
Pínu erfitt að vera frægt barn
Minipops nutu mikilla vinsælda
hér á klakanum og örfáum árum
eftir að þau risu hér sem hæst
spruttu Rokklingarnir, alíslenskt
svar við Minipops, fram á sjónar-
sviðið þegar hljómlistarmaðurinn
Birgir Gunnlaugsson svaraði kalli
tíðarandans.
„Ég held örugglega að fyrsta
Rokklingaplatan hafi komið út
1989,“ segir Bragi Þór Valsson,
stofnandi kórsins Himnasmiður
og doktor í kórstjórn, sem var
einn Rokklinganna, sem tóku
sínum tökum þekkt íslensk lög á
borð við Týnda kynslóðin, Rabar-
bara Rúna, Ég er á leiðinni, Eina
ósk og Sagan af Nínu og Geira.
Bragi Þór segir Minipops-teng-
inguna hafa verið það sterka að
framan á fyrsta handritinu, sem
hann eigi enn einhvers staðar,
standi einfaldlega Minipops.
„Þetta var það mikil tenging
og Rokklinganafnið var ekkert
komið. Ætli nafnið hafi ekki fund-
ist með einhverri auglýsingastofu
einhverjum vikum eða mánuðum
eftir upptökurnar.“
Bragi Þór neitar því ekki, að-
spurður, að það hafi verið gaman
að vera Rokklingur þótt athyglin
hafi verið mikil. „Þessi kjarna-
hópur var rosalega bissí þessi
þrjú ár sem stóru plöturnar voru í
gangi. Og jú, það var pínu erfitt að
vera frægur sem barn vegna þess
að þetta var svo brjálæðislega
vinsælt. Ég held örugglega að ein-
hvern tímann á bilinu 1989 -1991
höfum við verið á toppnum í sölu.
Fyrir ofan Todmobile og Bubba og
það allt,“ segir Bragi án ábyrgðar.
„Og myndböndin og allt þetta.
Það er pínu erfitt að vera krakki
þegar allir þekkja mann.“
Bragi Þór segist ekki vita betur
en hann sé einn fárra Rokklinga
sem starfi að tónlist í fullri at-
vinnumennsku og ljóst að lengi
býr hann að fyrstu gerð.
„Ég fylgdist svo vel með í stúd-
íóinu sem gerði það að verkum
að ég náði að læra rosalega mörg
handtök í stúdíói sem hefur nýst
mér svakalega vel á öllum mínum
ferli. Ég er sjálfur alltaf að taka
upp og hef tekið upp einn alveg
heilu plöturnar með kórum og alls
konar. Og það byrjaði þarna.
Að ég tali ekki um, hérna, þú
veist, sjónvarpsmyndavélar og
allt þetta stöff sem maður dílar
alltaf við öðru hvoru þegar maður
vinnur sem tónlistarmaður. Þetta
var allt rosa fín þjálfun.“
Breskir fjölmiðlar gengu af
göflunum yfir Minipops fyrir
sléttum 40 árum og sáu ýmis-
legt athugavert við kynferðis-
lega undirtóna í söng stríðs-
málaðra barna í þokkafullum
búningum. Nokkrum árum
síðar fengu Rokklingarnir þó
góðan byr í seglin á Íslands-
miðum enda þau Nína og
Geiri nokkuð óumdeild.
toti@frettabladid.is
Á fimmtudaginn voru 40 ár liðin
síðan breska sjónvarpsstöðin Chan-
nel 4 sýndi fyrsta Minipops-þáttinn
sem spratt upp úr vinsældum hóps
barna og frumgelgja sem slógu ári
áður í gegn með hljómplötunni
Minipops þar sem þau sungu vinsæl
popplög og sígilda slagara í bland.
Sjónvarpsþátturinn reis hátt
á hneykslunar- og reiðiöldu sem
skilaði hópnum tveimur milljónum
áhorfenda þegar best lét. Þetta þótti
býsna gott í þá daga en þó að margt,
sem þykir með öllu ótækt í dag, hafi
gengið á níunda áratugnum þótti
fulllangt gengið að skella börnum í
munúðarfulla poppstjörnubúninga
og kyrja ástarsöngva með kynferð-
islegum undirtónum.
Fyrsta Minipops-platan var tekin
upp í Abbey Road 1981 og náði gull-
plötusölu þegar hún kom út 1982.
Platan seldist einnig vel víðs vegar
um Evrópu og Ísland var þar engin
undantekning. Þá var krökkunum
tekið sérlega vel í Frakklandi þar
sem ábreiða þeirra af laginu Stupid
Cupid náði 1. sæti og ruddi þá ekki
ómerkari spámönnum en Paul
McCartney og Michael Jackson af
toppnum þar sem þeir höfðu trónað
með Ebony and Ivory.
Börn á háum hælum
Vinsældirnar og athyglin sem hóp-
urinn vakti með plötunni urðu til
þess að ákveðið var að leggja heilan
sjónvarpsþátt undir krakkana með
það að uppleggi að gefa barnungu
hæfileikafólki tækifæri til þess að
sýna hvað í þeim býr með því að
syngja ábreiður vinsælla popplaga.
Þátturinn var hugsaður sem sak-
laus skemmtun fyrir krakka á sama
reiki og flytjendurnir en sakleysið
gufaði þó upp þegar krakkarnir
stigu fram og sungu oftar en ekki lög
með kynósa undirtónum. Stelpurn-
ar, sem voru allt niður í sjö til átta
ára, voru meikaðar í drasl og meðal
annars klæddar upp í þunna siffon-
náttkjóla, stutt pils og háhælastígvél
á meðan strákarnir voru oft berir að
ofan í leðri og denim.
Harkalegt bakslag
Breska pressan reiddi hátt til höggs
og The Observer varpaði fram
spurningunni um hvort það væri
bara tepruskapur að verða óglatt
af því að horfa upp á grunnskóla-
stelpur með kinnalit, andlitsmáln-
ingu og varalitagloss dilla sér og góla
ástarsöngva.
The Sunday Times afgreiddi þetta
með einfaldri fullyrðingu um að
það væri eins og þessi börn hefðu á
einu augabragði verið svipt bernsk-
unni. The Guardian lýsir Minipops
sem slíkum lágpunkti vansæmdar
í sjónvarpi að þátturinn sé orðinn
goðsögn í hræðilegheitum sínum
Rokklingapabbinn
lítur um öxl
Svo skemmti-
lega vill til að
Birgir Gunn-
laugsson, hug-
myndafræð-
ingurinn að
baki íslensku
Rokklingunum,
fór yfir upp-
runa og afrek
Rokklinganna
á Facebook á föstudaginn,
40 árum og einum degi eftir
að Minipops komu fram á
sjónarsviðið í Bretlandi.
„Einn alvinsælasti barna-
sönghópur allra tíma á Íslandi
voru Rokklingarnir. Ég stóð
fyrir þessu verkefni og mynd-
aði hópinn enda lengi verið
kallaður Rokklingapabbinn,“
skrifar Birgir og víkur síðan
að fólki sem hann fékk til liðs
við sig.
„Í samstarfi við félaga mína
í hljómsveitinni og annað
gott fólk eins og Leópold
Sveinsson hjá Fljótt Fljótt
auglýsingastofu og Dóru
Einars búningahönnuð og
Svein Sveinsson hjá Plús film
settum við saman ótrúlega
flott „concept“ sem selt hefur
tugi þúsunda platna, fjölda
vídeóa og verið dreift um
allan heim.“
Þá lætur hann fljóta með
að þessi hópur hafi gefið út
þrjár plötur og ellefu tón-
listarmyndbönd og heldur
því síðan til haga að Rokk-
lingarnir hafi látið margt gott
af sér leiða og meðal annars
styrkt Barnaheill og íslenska
talsetningu barnaefnis á Stöð
2.
„Stofnuðum aðdáenda-
klúbb sem fékk rétt um 10
þúsund bréf frá aðdáendum
og rákum síðan Rokklinga-
skólann sem hátt í 5.000 börn
sóttu og spreyttu sig.“
Útgáfa Birgis, BG útgáfan,
stóð fyrir þessu öllu saman
en gaf einnig út fjölbreytilegt
afþreyingarefni þar sem börn
sungu fyrir börn. „Til dæmis
Barnaleiki, Barnasögur svo
eitthvað sé nefnt,“ skrifar
Birgir á Facebook.
„Þetta voru yndislegir
tímar, ég hef reynt að halda
sambandi við eða fylgjast
með flestum börnunum sem
voru í þessum sönghópum
enda finnst mér ég eiga svo-
lítið í þeim öllum. Eigið sem
yndislegastan dag.“
The Mini Pops (1982)
Heilum haug af vinsælum
lögum, nýjum í bland við sígilda
smelli, var troðið á fyrstu
Minipops plötuna með því að
þjappa í syrpur. Video Killed
The Radio Star var fyrsta lagið
á A-hlið en síðan var skautað
yfir lög eins og Nine To Five, My
Guy og My Boy Lollipop í kippu
sem fylgt var eftir með hressri
ABBA-syrpu með Gimme
Gimme Gimme (A Man After
Midnight), Knowing Me, Know-
ing You, Super Trouper, Money,
Money, Money, Mamma Mia,
S.O.S., Waterloo og Dancing
Queen.
Diskósyrpa kom síðan í lóð-
beinu og rökréttu framhaldi
með D.I.S.C.O., Y.M.C.A., In The
Navy, Go West, Celebration,
Happy Birthday, Una Paloma
Blanca, Brown Girl In The Ring,
Daddy Cool, Swinging On A Star
og Loop De Loop.
Fyrri hliðinni lauk síðan með
Fuglasöngnum enda sjálfsagt
ekkert veitt af því að kæla
hlustendur og flytjendur að-
eins niður eftir funheitt diskóið
og minna á að um barnaplötu
væri að ræða þar sem lagt var
upp með að láta börn syngja
fyrir börn: „Bíbí´bí og dirrindí
fuglinn flýgur upp í ský fimur
dillar stélinu. Út í snjónum tístir
hátt og hann flögrar hátt og
lágt undan hríðarélinu.“
B-hliðin hófst á Stupid Cupid
en síðan tók við syrpa af nýju
vinsældapoppi með til dæmis
Shakin Stevens-lögunum Green
Door og You Drive Me Crazy og
Madness-slagaranum Baggy
Trousers.
Síðan var rokkað og rólað í
næstu halarófu með Hound
Dog og Rock Around The Clock.
Þá var Blondie teflt út með
syrpu laganna Call Me, Sunday
Girl og Denis áður en plötunni
var slúttað með I'm Gonna
Knock On Your Door og Can
Can. Voða gaman!
Fyrsta Minipops platan gerði lukku á Íslandi eins og víðar þótt útgangurinn og undirtónarnir í sumum söngvum krakk-
anna hafi þótt í besta falli óheppileg. En þau mega eiga það, blessuð börnin, að þau kveiktu neista Rokklinganna.
Bragi Þór
Valsson
Birgir
Gunnlaugsson
40 ár frá Minipops
tryllingnum
24 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 14. FeBRúAR 2023
ÞRiðJUDAGUR