Fréttablaðið - 14.02.2023, Blaðsíða 13
Ole Anton
Bieltvedt
samfélagsrýnir
Það verður því miður ekki annað séð
en að við jarðarbúar séum að sigla
inn í heim mikilla breytinga og vax-
andi óvissu og óöryggis.
Ég skrifa hér fyrst um horfur á
friði/ófriði 2023-2050. Næst mun ég
svo skrifa um þróun efnahagsmála,
gífurlegar breytingar sem þar er að
vænta, en efnahagslegur styrkur,
efnahagsmáttur, hinna ýmsu þjóða
og heimssvæða, mun breytast gífur-
lega og þar með staða og áhrifamátt-
ur þeirra í heiminum.
Friðurinn – Evrópa
Friðurinn er það dýrmætasta sem
þjóðir jarðar eiga, með honum má
byggja, breyta og bæta, án hans
hnígur og fellur allt.
Nú, í 74 ár, hafa ESB, evran og
NATO tryggt frið í Evrópu, segja
verður í Vestur Evrópu, eftir innrás
Pútíns í Úkraínu. Menn kunna að
undrast að ég vilji líka þakka evru
friðinn, en hún er staðfesting og inn-
sigli 26 evru-ríkja, á samstöðu, sam-
vinnu, bræðralagi og friði sín á milli.
Pútín ógnar ekki bara friði í
Austur-Evrópu, heldur í Evrópu allri,
trúlega líka í Mið-Asíu, en markmið
hans virðist vera að endurreisa Sov-
étríkin, ríkjasamband 290 milljóna
manna, en íbúar Rússlands eru 145
milljónir.
Ef Pútín verður ekki haminn,
honum haldið niðri í Úkraínu, og/
eða, ef til þess kemur, að Pútín beiti
kjarnorkuvopnum í Úkraínu, er
gífurleg hætta á útbreiðslu ófriðs,
víðtæku stríði, í Evrópu.
Kúnst Vesturveldanna er að styðja
Úkraínu svo dyggilega og vel að þeir
geti endanlega stöðvað innrás Rússa
og, helzt, hrakið þá af höndum sér,
sem mest til baka að alþjóðlega
virtum og löglegum landamærum,
án þess að Pútín grípi til kjarnorku-
vopna.
Ef laust verða Úkraínumenn
að gefa minnst Krímskaga eftir,
kannske líka þann hluta Austur-
Úkraínu, sem rússneskumælandi
fólk byggir. Úkraínumenn geta
aldrei unnið þetta stríð og án þess
að Pútín geti haldið andlitinu gagn-
vart rússnesku þjóðinni og umheim-
inum verður þessu stríði ekki lokið
með þeim hætti að framtíðaröryggi
Evrópu verði sæmilega tryggt.
Friðurinn – Asía
Kínverjar voru lengst af friðsamleg
þjóð, sem hafði sig hernaðarlega lítt
í frammi. Á síðustu öld og áratugum
hefur þetta breytzt. Nú, sérstaklega
með Xi. 1950/1951 innlimuðu þeir
Tíbet, og nú má ekki mikið út af
bregða til að þeir ráðist á Taívan, en
Biden hefur lýst því yfir að Banda-
ríkjamenn muni verja Taívan.
Nýlega festu Bandaríkjamenn
viðveru sína við Suður-Kínahaf í
sessi og tryggðu aukinn hernaðar-
mátt sinn á Filippseyjum. Fyrir eru
Bandaríkjamenn með sterka hern-
aðarlega viðveru við Austur-Kína-
haf, í Suður-Kóreu og Japan. Þar á
milli er Taívan-sund og Taívan.
Það virðist mikil hætta á að Xi
rjúfi hér friðinn, vilji taka Taívan,
sem þeir telja að tilheyri Kína, svip-
að og Rússar töldu Krímskaga hluta
Rússlands, og, að slík aðgerð ógni þá
Filippseyjum, Suður-Kóreu og Japan,
ekki bara bandalagsþjóðum Banda-
ríkjanna, heldur í raun verndar-
svæði Bandaríkjanna.
Til hliðar við þessa púðurtunnu
stendur svo Norður-Kórea með sínar
kjarnorkusprengjur og eldflaugar,
sem verða sífellt langdrægari og
ógna nú ekki aðeins öðrum Asíu-
ríkjum, heldur líka Norðu-Ameríku.
Því miður eru gífurlegar líkur á
að upp úr sjóði á þessu svæði innan
áratugar, alla vega fyrir 2050, jafnvel
miklu fyrr.
Í öllu falli verða Bandaríkin
í vaxandi mæli bundin af Asíu-
ógninni, sem um leið þýðir að þau
hafa síminnkandi efnahagslegt og
hernaðarlegt bolmagn til að verja
og tryggja frið og öryggi í Evrópu.
Enda heyrast þar raddir í vaxandi
mæli, einkum meðal Repúblikana,
sem krefjast þess, að Evrópa verji
sig sjálf.
Það stafar stórfelld ógn af þríeyk-
inu Pútín-Xi-Kim! Það eina, sem
getur hamið þá verður bezt lýst
með 1. friðarreglu rómverska keis-
arans Hadrian (76-138 e.K.) „Friður
með (hernaðar)styrk!“.
Von Evrópu
Órjúfandi samstaða og sjálfstæður
og fullnægjandi efnahagslegur
og hernaðarlegur máttur Evrópu
hefur því gífurlegt gildi fyrir fram-
tíðaröryggi og velferð Evrópu.
Til lengri tíma getum við, Evr-
ópubúar, ekki á aðra treyst en
okkur sjálf, en því miður er hættan
á nýjum eða vaxandi ófriði út frá
Pútín feikimikil; ég óttast sterklega
að friður verði aftur rofinn í Evrópu
á næstu árum, kannske áratugum,
ef hann heldur völdum.
Meginvonin og huggunin er í
raun sú að Þýzkaland, tæknivædd-
asta og efnahagslega öf lugasta
ríki ESB, er loks að endurhervæða
sig með gífurlegri fjárfestingu í
vörnum sínum og hernaðarmætti,
sem verða um leið grunnvarnir
Evrópu, en nokkrum dögum eftir
árás Pútíns á Úkraínu ákvað þýzka
ríkisstjórnin að setja aukafjárfram-
lag upp á 100 milljarða evra, 15.000
milljarða króna, stjarnfræðilega
fjárhæð, í enduruppbyggingu og
styrkingu síns hernaðarmáttar,
sem hefur setið á hakanum eftir
stríð.
Öll önnur Evrópuríki, einkum
Norðmenn, Danir, Svíar og Finnar,
líka Eystrasaltslöndin, Pólland,
Tékkland og Slóvakía, eru á svip-
aðan hátt að auka sín framlög til
varnarmála.
Evrópa þarf sennilega fimm ár til
að tryggja framtíðar varnir/öryggi
sitt. Vonandi fær hún þau.
Efnahagsþróunin 2023-2050
Sjö mestu efnahagsveldi heims
2050 verða Kína, Indland, Banda-
ríkin, Indónesía, Brasilía, Rússland
og Mexíkó. Indónesía, Brasilía og
Mexíkó munu fara fram úr Japan
og Þýzkalandi. Fjalla um þá þróun,
stórfelldu breytingar efnahags-
styrks og áhrifa, næst. n
Guð blessi börnin okkar og barnabörn
Aðalfundur Fly Play hf.
Aðalfundur Fly Play hf. verður haldinn þriðjudaginn 7. mars 2023 kl. 16:00 í Iðnó,
menningarhúsi við Tjörnina, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík.
flyPLAY.is
DRÖG AÐ DAGSKRÁ:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi liðins starfsárs.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýringum
endurskoðanda, lagður fram til samþykktar.
3. Atkvæðagreiðsla um hvernig fara skuli með rekstrarniðurstöðu
félagsins á árinu.
4. Kosning í stjórn félagsins.
5. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.
7. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
8. Önnur mál, löglega upp borin.
9. Þátttaka á fundinum verður bundin við þá sem mæta á staðinn.
Reglur um þátttöku og atkvæðagreiðslu á fundinum
Eitt atkvæði er fyrir hvern einnar krónu hlut. Á hluthafafundi ræður afl
atkvæða nema öðruvísi sé fyrir mælt í landslögum eða samþykktum.
Hluthöfum sem ekki sækja aðalfund stendur til boða að kjósa um
dagskrármál bréflega. Eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund þarf
beiðni hluthafa um slíka atkvæðagreiðslu að berast félaginu á netfangið
legal@flyplay.com. Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá og
leggja fram ályktunartillögur. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur
eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en fyrir
kl. 12:00 þann 21. febrúar 2023.
Hluthafi getur veitt umboðsmanni skriflegt umboð sem skal dagsett.
Umboð gildir aldrei lengur en eitt ár frá dagsetningu þess. Umboð má
hvenær sem er afturkalla. Slík umboð skulu berast félaginu áður en
aðalfundur hefst eða við skráningu á fundarstað. Umboðseyðublöð
verða aðgengileg á vefsíðu félagsins.
Aðrar upplýsingar
Endanleg dagskrá, tillögur stjórnar og fundarskjöl verða birt eigi síðar
en 21. febrúar á vefsíðu félagsins:
https://www.flyplay.com/corporate-governance.
Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum
félagsins að Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík, virka daga milli kl. 9:00
og 16:00.
Berist tillögur frá hluthöfum verða þær birtar a.m.k. þremur dögum
fyrir fundinn ásamt uppfærðri dagskrá.
Samkvæmt 63. gr. a. laga nr. 2/1995 um hlutafélög skal tilkynna um
framboð til stjórnar skriflega minnst fimm dögum fyrir aðalfund, eða
fyrir kl. 16:00 þann 2. mars 2023. Upplýsingar um frambjóðendur til
stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afgreidd frá kl. 15:00 á aðalfundardegi.
Reykjavík, 14. febrúar 2023
Stjórn Fly Play hf.
Fréttablaðið skoðun 1314. Febrúar 2023
ÞRIðJuDAGuR