Fréttablaðið - 14.02.2023, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 14. febrúar 2023
elin@frettabladid.is
Valentínusardagurinn er í dag.
Það er hægt að gera sér glaðan dag
með einföldum pastarétti og skála
í prosecco. Hér er uppskrift að góðu
piparpasta sem er vinsæll réttur á
Ítalíu enda aðeins fjögur innihalds-
efni og bragðið sérlega gott.
Piparpasta
Fyrir tvo
200 g spagettí
25 g smjör
2 msk. heil piparkorn, marin eða 1
msk. nýmalaður pipar
50 g parmesan eða pecorino ostur,
rifinn
Sjóðið pasta tveimur mínútum
styttra en umbúðir segja í söltuðu
vatni. Bræðið smjör á pönnu á
lágum hita. Setjið piparinn út í
smjörið og hitið í nokkrar mínútur.
Þerrið pasta en geymið 200 ml af
pastavatninu. Pastað fer á pönnuna
ásamt 100 ml af vatni og hristið allt
saman, ekki hræra. Stráið rifnum
parmesan yfir. Látið bráðna í past-
anu. Bætið aðeins meira pastavatni
við eftir því sem þarf. Berið strax á
borð og malaður pipar yfir.
Prosecco og trönuber
Í tvö glös af kokteil þarf 150 ml
trönuberjasafa, 1 msk. grenadine,
50 ml vodka, 1 sneið af límónu, 4
hindber, prosecco og ísmola.
Hrærið saman trönuberjasafa,
grenadine og vodka með ís. Kreistið
límónusafa yfir. Hristið eða hrærið.
Setjið í kampavínsglas, fyllið upp
með prosecco og skreytið með
hindberjum. n
Fyrir ástina
Cacio e pepe eða piparpasta er vin-
sæll og einfaldur réttur.
Andrea Aldan býr í heillandi og litríkri íbúð í hjarta Reykjavíkur. Persónulegur stíll og litagleði Andreu gefa rýminu einstaklega skemmtilegan og fallegan blæ.
Fréttablaðið/Ernir
Regnboginn ældi yfir íbúðina
Andrea keypti 47 fermetra risíbúð á besta stað í miðbæ Reykjavíkur fyrir einu og hálfu ári
síðan. Með minni háttar fyrirhöfn og útgjöldum glæddi hún íbúðina lit og fegurð. 2
Austurmörk 21 • 810 Hveragerði
Hornsteinn
60 ára afmælissýning
11/02 – 20/08 2023
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is