Fréttablaðið - 14.02.2023, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 14.02.2023, Blaðsíða 20
Að fá þennan stuðning var bara unaðslegt og ástæðan fyrir því að maður er enn þá í þessu. Björgvin Páll Gústavsson lætur meiðsli sem hann varð fyrir í leik Vals gegn KA fyrir helgi ekki stoppa sig og mun taka þátt í mikilvægum leik gegn Benidorm í Evrópudeild- inni í kvöld. Hann er stoltur af félagi sínu fyrir framgönguna í Evrópukeppni það sem af er. Handbolti „Þetta leggst mjög vel í mig. Við erum búnir að spila vel síð- asta eina og hálfa árið og erum fullir sjálfstrausts. Við trúum því að við getum náð í tvö stig gegn góðu liði Benidorm,“ segir Björgvin Páll Gúst- avsson, markvörður Vals og íslenska landsliðsins, brattur fyrir stórleik- inn gegn Benidorm á heimavelli í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Valur situr í fjórða sæti af sex liðum í riðli sínum sem stendur. Efstu fjögur liðin fara einmitt áfram í 16-liða úrslit. Valur er með jafnmörg stig og Ferencvaros, sem er í fimmta sæti, og stigi á undan Benidorm fyrir leik kvöldsins, en öll lið eiga þrjá leiki eftir. Mikilvægi leiksins í kvöld er því gríðarmikið. „Ég er búinn að vera að spila úrslitaleiki með Val síðan ég mætti hingað. Það heldur bara áfram. Þessi leikur er stórkostlegur að því leytinu til að við erum með þetta í okkar höndum. Við getum tekið gott skref í átt að 16-liða úrslitum í þessari keppni með sigri. Það er auðvitað ótrúlegt fyrir félagið og íslenskan handbolta. Það eru sex- tán lið í Meistaradeildinni svo ef við komumst í 16-liða úrslit í þessari keppni erum við að stimpla okkur inn sem eitt af 32 bestu liðum í Evr- ópu. Okkur dreymir um að komast þangað en til þess þurfum við að vinna á morgun.“ Meiðslin engin hindrun Björgvin varð fyrir nokkuð ljótum meiðslum í síðasta deildarleik gegn KA. Það mun ekki hindra þátttöku reynsluboltans gegn Benidorm, þó svo að læknir Björgvins hafi ekki alveg verið á því að hann eigi að spila. „Ég fékk boltann í hlið puttans, skot sem ég hef aldrei fengið áður í mig. Það opnast á milli fingranna gat sem ég horfi bara ofan í,“ segir Björgvin um meiðslin en ljóst er að það var ekki fögur sjón sem blasti við kappanum þar. „Ég verð með. Það breytist ekkert. Þó svo að læknirinn hafi ekki mælt með því þá gaf hann mér grænt ljós á það. Það versta sem getur gerst er að saumarnir rifni upp og að ég þurfi að mæta aftur til hans. Ég tók mér frí á æfingu í gær og í dag en svo mæti ég bara í leikinn. Þetta mun ekki hamla mér frekar en fyrri daginn.“ Ljóst er að verkefnið gegn Beni- dorm í kvöld verður ekki auðvelt. Björgin bendir hins vegar á að Vals- arar séu einnig ansi erfiðir við að eiga. „Þetta eru tvö óþægileg lið. Ég held að við séum óþægilegir mótherjar. Það tala margir um hraðann hjá okkur, hvernig við vinnum leiki og að það sé óþægilegt að mæta okkur. Að sama skapi er Benidorm þann- ig líka en á allt annan hátt. Það eru aðrir hlutir sem þeir leggja áherslu á. Þeir spila 7-6 til dæmis stórkostlega. Þeir spila með skemmtilegar blok- keringar frá línumanni, eru með litla hraða leikmenn sem hoppa inn í allar eyður. Ef þeir skora ekki þá grípa þeir um andlitið og þykjast hafa meitt sig. Það er eitthvað sem dómararnir geta vonandi tekið fyrir á morgun. Þetta eru miklir hand- boltamenn og góðir í sínu en þetta er ljóður á þeirra leik, hvernig þeir grýta sér í jörðina.“ Mikill karakter er í liði Benidorm. „Þeir hafa lent 5-6 mörkum undir í leikjunum en samt náð að koma til baka og strítt flestum liðunum. Við unnum þá í síðasta leik og við trúum að við getum gert það aftur á heima- velli.“ Horfir inn á við Björgvin var að sjálfsögðu hluti af íslenska landsliðinu sem tók þátt á HM í janúar. Miklar væntingar voru gerðar til liðsins en að lokum fór það svo að Strákarnir okkar höfnuðu í tólfta sæti. Nú þegar nokkrar vikur eru liðnar frá mótinu var Björgvin beðinn um að horfa í baksýnis- spegilinn. „Það sem við gerum eftir svona mót er að líta í eigin barm. Það sem ég get gert er að líta á mig. Ég er í raun bara sáttur með einn leik hjá mér á mótinu. Það eru allir að skoða sjálfan sig og sjá hvað betur má fara. Það er eina leiðin fram á við. Þetta var auðvitað svekkjandi og í raun ömurlegt því það var skrifað í skýin að við myndum gera vel. Það var fullt af Íslendingum, þetta var í Svíþjóð, nánast á heimavelli.“ Björgin, sem og íslenska liðið, mun nýta mótið í ár þegar fram líða stundir. „Maður kom heim svolítið pirr- aður. Það var kannski það jákvæða. Maður mætti á æfingu 1-2 dögum seinna og var bara með næstu 352 daga í hausnum, fram að næsta móti. Maður notar þetta mótlæti til að skila enn þá betra verki í hús í framhaldinu, hvort sem það er að berjast um að vera í hópnum eða að komast á EM og skila því í hús sem við ætlum okkur.“ Gríðarlegur stuðningur myndað- ist á meðal Íslendinga á HM í Svíþjóð og lagði fjöldi manns land undir fót til að vera á staðnum. „Þetta snerist líka um það hjá okkur að það voru fjögur þúsund manns á leikjunum. Það er fólk sem við viljum halda og við vildum líka setja það þannig upp að við værum að safna áhorfendum. Við viljum að þessi þrjú til fjögur þúsund manns sem komu til Svíþjóðar komi líka til Þýskalands. Þannig að eins erfitt og það var að fagna sigrinum á móti Brasilíu eins og við gerðum þá var það hluti af ferlinu og að þakka þeim sem komu að styðja okkur. Ég er með gæsahúð núna að hugsa um þetta,“ segir Björgvin og bendir á hendur sínar. „Að hlusta á sönginn og öll lætin sem voru í restina þótt við værum að spila upp á sæti sem mögulega skipta engu máli. Að fá þennan stuðning var bara unaðslegt og ástæðan fyrir því að maður er enn þá í þessu.“ Leikur Vals og Benidorm hefst klukkan 19.45 í kvöld. n Meiðslin stöðva Björgvin Pál ekki Björgvin Páll þarf að vera með umbúðir eftir meiðslin fyrir helgi. Það bítur hins vegar ekkert á kappann sem er harðákveðinn í að taka þátt í mikilvægum Evrópuleik Vals gegn Benidorm í kvöld. fréttablaðið/ valli Helgi Fannar Sigurðsson helgifannar @frettabladid.is Umgjörð í sérflokki Björgvin er gífurlega stoltur af þeim stuðningi sem Valur hefur fengið í Evrópudeildinni það sem af er, sem og umgjörð félagsins. Hann hvetur fólk til að mæta á völlinn í kvöld. „Það myndi ekki skemma fyrir að vera með fullt hús og flotta stemningu. Þetta hefur verið ótrúleg upplifun hingað til, hvort sem það er heimaleikurinn á móti Flensburg, Ystad eða hver sem er. Þetta er alltaf sama stemning, Evrópukvöldin á Hlíðarenda. Það smitast inn á völlinn. Menn eru alveg meðvitaðir um hvað er að gerast. Þetta er eitthvað annað. Það hjálpar okkur líka að mæta liðum sem eru í smá sjokki yfir okkar umgjörð. Benidorm sem dæmi er með eina slökustu umgjörð sem ég hef upplifað á ferlinum. Við spilum fyrsta útileikinn í Evrópu gegn þeim og þeir voru aðeins að læra á þetta líka. En þeir leggja ekki eins mikið í sölurnar og við þegar kemur að umgjörð. Við erum stoltir af umgjörðinni og félaginu. Það er búið að setja standard fyrir framhaldið, félög sem komast í Evrópudeildina.“ 16 íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 14. FeBRúAR 2023 þriÐJUDAGUr

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.