Fréttablaðið - 14.02.2023, Blaðsíða 30
Þetta er orkumikið
popp með hipp hopp-
áhrifum.
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA
Fréttavaktin býðum landsmönnum upp á
fjölbreytta fréttaumfjöllun í opinni dagskrá.
Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir fréttayfirlit
dagsins ásamt því að fá til sín góða gesti að
ræða helstu mál líðandi stundar.
Fréttavaktin er á dagskrá alla virka daga á
Hringbraut, dv.is og frettabladid.is
26 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 14. FeBRúAR 2023
ÞRiðJUDAGUR
Izleifur er listamannsnafn Ísleifs Elds Illugasonar, sem á ekki langt að sækja sköpunargleðina. Hann byrjaði ferilinn
sem upptökumaður, en svo bara „byrjuðu lögin að koma til mín“. Mynd/ Erlingur FrEyr ThoroddsEn
Á Valentínusardegi sendir
tónlistarmaðurinn Izleifur
frá sér splunkunýtt lag sem
hæfir deginum, en hundruð
laga urðu til í kolli hans á
síðasta ári.
ser@frettabladid.is
Hann reyndi að semja tvö lög á dag,
allt síðasta ár, en það gekk ekki alveg
eftir, en næstum því. „Ja, þau urðu
einhvers staðar á milli 400 og 500,“
segir Ísleifur Eldur Illugason sem var
að senda frá sér nýjasta lagið sitt á
miðnætti í tilefni af degi ástarinnar.
Það heitir Á heilanum – og nú er
bara spurning hvort landsmenn fái
það ekki á heilann. „Þetta er orku-
mikið popp með hipp hopp-áhrif-
um,“ segir lagasmiðurinn sem von-
ast auðvitað eftir því að tónsmíðin
verði rifin út af streymisveitunum
á næstu dögum og vikum, en vert
er að bera sig eftir listamannsheiti
kappans á þeim vettvangi, sem er
Izleifur.
Tilgangslaust að hata
Er þetta ástarlag? „Já, eiginlega,“
svarar hann um hæl. „Maður á
að elska, það er eina vitið,“ og svo
bætir hann við þeim heimspekilega
þanka að það sé í öllu falli miklu
þægilegra en að leggja fæð á annað
fólk. „Það er tilgangslaust að hata,“
segir popparinn.
Þessi tuttugu og þriggja ára mið-
borgarstrákur kveðst vera búinn
að gera tónlist í hálfan áratug, en
raunar hafi hann byrjað ferilinn
sem upptökumaður.
„Svo byrjuðu bara lögin að koma
til mín án þess að nokkru væri við
ráðið,“ rifjar hann upp og kveðst
semja allt heila safnið á tölvur sem
hjálpi til við tónsmíðarnar. „Tölvur
geta allt,“ bendir hann á. „Og þetta
er einfalt. Það þarf bara mig og
tölvuna.“
Opnari fyrir leiklistinni
Hann er sonur þeirra landskunnu
hjóna Guðrúnar S. Gísladóttur
leikkonu og Illuga Jökulssonar, rit-
höfundar og sögumanns, svo það
hefur enn ein listgreinin bæst við
fjölskylduna. Sjálfur segist hann
heldur opnari fyrir leiklistinni en
sögugrúski föður síns og systur,
Veru Illugadóttur útvarpskonu,
hvað svo sem síðar verði.
„Núna á tónlistin hug minn allan
– og stefnan er sett á plötu í byrjun
apríl,“ segir Ísleifur Eldur Illugason,
eða listamaðurinn Izleifur, með
nýja lagið sitt Á heilanum. n
Maður verður að elska –
það er eina vitið
toti@frettabladid.is
Þótt langt sé í næstu jólabókaver-
tíð snúast hjólin hratt og víða hjá
glæpasagnakónginum Arnaldi
Indriðasyni sem er á góðri siglingu
í Frakklandi þar sem Sigurverkið
hans er nýkomið út og virðist ætla
að standa undir titlinum.
Góðir dómar hrannast upp þar
í landi á meðan kvikmyndaútgáfa
þriðju bókar hans, Napóleons-
skjölin, dregur landann í bíó álíka
hratt og örugglega og leikstjórinn
Óskar Þór Axelsson keyrir atburða-
rásina áfram.
Sigurverkið kom út 2021 og
skilaði höfundinum tilnefningu til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
en franska útgáfan, sem er þegar
farin að gera vart við sig í efri lögum
sölulista þar í landi, er fyrsta útgáfa
bókarinnar erlendis.
„Sigurverkið er mögnuð saga sem
gagntekur lesandann, miðja vegu
milli spennusögu og vægðarlauss
ævintýris með sammannlega skír-
skotun, saga tveggja einstaklinga
sem nálgast hvor annan þrátt fyrir
allt sem aðskilur þá,“ segir í dómi
um bókina í Livres Hebdo.
Aðrir dómar, hingað til, eru á
svipuðum nótum en Lire Magazine
Littéraire segir Arnald endurnýja
sig „með glæsibrag með þessu nor-
ræna tilbrigði við Þúsund og eina
nótt þar sem rakin er hörmunga-
saga Íslands“.
Og gagnrýnandi Le Télégramme
segir söguna nánast töfrum slungna
og hefur meðal annars þetta að
segja: „Harmræn saga sem sam-
einar tvo einstaklinga sem eru hvor
sínum megin taflborðsins. Konungi
opnast þar með sýn á íslenskan
veruleika og sína eigin sögu.“ n
Allt að gerast hjá Arnaldi
Arnaldur Indriðason hefur ærna
ástæðu til þess að brosa breitt
þessa dagana.
FréTTablaðið/anTon brink