Vesturland - 01.12.1986, Blaðsíða 13
13
|MB1
Borðhaldið fór fram með mikilli viðhöfn og gleði.
verður niðurstaðan sú, að hann
hafi farið með piltunum út í
eyju. Á aðfangadagsmorgun
voru eyjafararnir komnir heim,
varð það þá ljóst að drengurinn
var ekki með þeim, og að þeir
vissu ekkert um hann, eftir því
sem þeir sögðu, og vandaðist nú
málið. Biskup skipaði þegar að
leita þar heima og í kring, því að
drengurinn hefði orðið bráð-
kvaddur, ef allir segðu satt.
Þetta var gert, en árangurslaust,
sem eðlilegt var.
Öllum aðfangadagsverkum
var snemma lokið, því að aft-
ansöngur átti að verða. Nú voru
sett fram borð um alla Hóla-
baðstofu, þar sem allt fólk stað-
arins átti að sitja að, eftir vanda
á jólanóttina. Var biskup vanur
að ganga sjálfur um, er sest var
undir borð, veita vín og telja
fólkið.
Konur báru nú laufabrauð og
kertatrog til baðstofu, en piltar
voru allir komnir saman þar að
þvo sér.
Þá kemur biskup fram; var
hann sjáanlega mjög hnugginn
og alvarlegur, segir að nú verði
skert fyrir sér og líklega fleirum
þar, jólagleðin, þar sem litla
vininn sinn vanti í hópinn; „og
vildi ég,“ sagði biskup, „að ég
mætti vona að enginn af þess-
um álitlega hóp geymdi þann
mann í brjósti, að hann vissi um
drenginn og segði ekki til.“
Þá tekur til máls maður einn,
er hafði á hendi lambahirðingu
— hafði hann aldrei verið við,
er drengsins var leitað, og segir:
„Hvað er þetta? Er það satt, að
Kristján litla vanti? Á Þorláks-
dagsmorgun var ég í hálfbjörtu
eða fyrr að reka lömbin hérna
upp fyrir; þá voru piltarnir að
fara úteftir, og þóttist ég sjá
drenginn hlaupa á eftir þeim út
og ofan úr túninu. En birtan var
lítil og þori ég því ekki að full-
yrða þetta.“ — Við þessi orð brá
einum manninum, sem verið
hafði í Drangeyjarferðinni, svo
greinilega, að biskup var nógu
aðgætinn til að sjá það. Kallar
hann þá félaga alla inn á skrif-
stofu sína, en þurfti lítið fyrir að
hafa, áður en þessi hinn sami
opinberaði sannleikann.
Hann sagði glöggt frá öllum
atvikum frá byrjun ferðarinnar,
eins og hér að framan er frá
sagt, og svo að hann einn hefði
verið á móti því, eftir mætti
sínum, að svona væri skilið við
drenginn; sér væri óþolandi að
hafa þetta á meðvitundinni, og
yrði feginn að mega þannig
segja frá öllu, eins og komið var.
„En nú verð ég“, segir hann,
„að njóta verndar yðar, herra,
gegn varmennum þessum.“
Jafnskjótt lætur biskup taka
þá alla (fimm) og setja í höft,
skipar að bera allar vistir burtu,
„og skulu hvorki ég né aðrir
neyta neins af þeim, fyrr en
fengin er sönn fregn um,
hvernig Kristjáni líði.“
Skipar hann nú átta mönnum
að taka jafnmarga eldishesta og
ríða til skips. Klæðnað og fæði
lætur hann fara með, ef Krist-
ján litli kunni að hittast lifandi,
og ullarábreiðu til þess að vefja
um hann.
Ekki er að segja af ferðum
þeirra, fyrr en þeir koma til
eyjarinnar. Ber þá heldur en
ekki kynlega sjón fyrir þá, er
þeir sjá hina ljómandi birtu í
sauðaborginni. Þeir verða
hræddir og undrandi, því að
þeir skilja ekki hvernig dreng-
urinn geti hafa haft ráð á að
kveikja sér eld.. Ganga þeir nú
að borginni og verða ekki
minna undrandi, er þeir sjá
Kristján litla þarna búinn dýr-
indis guðvefjar möttli, og tónaði
og söng alveg eins og biskupinn.
Þeim leist nú ekki á blik-
una, þó að pilturinn væri fund-
inn; héldu að hann væri búinn
að missa vitið að miklu leyti. En
hann gat sagt þeim í stuttu máli
sögu sína og sagðist vilja, að
þeir neyttu þess að nokkru sem
á borðunum var, og það gerðu
þeir. Engu öðru hreyfðu þeir, en
slökktu öll ljósin og bjuggust
sem skjótast til heimferðar.
Á jóladagsmorgun komu
sendimenn aftur heim að Hól-
um. Hófst þar gleði mikil, þegar
sást að Kristján var í förinni,
auðþekktur til að sjá, í stórri
loðskinnskápu af biskupi. Þá
gekk biskup um gólf fyrir
kirkjudyrum, er flokkurinn reið
heim. Gengur Kristján auð-
mjúkur fyrir biskup og biður
hann fyrirgefningar á burt-
hlaupi þessu, og var það auð-
fengið; sagði honum síðan alla
söguna, og þótti biskupi mikils
um vert; sagðist mundi fara
með honum til eyjarinnar eftir
nýárið; þess, sem í borginni
væri mundi verða vitjað á ný-
ársnótt, annars aldrei.
Nú vildi biskup að Kristján
gengi til hvílu, en drengur var
ófús til þess. Heldur vildi hann
klæðast nýju fötunum sínum og
ganga til kirkju, og fékk hann
að ráða því. Að þessu búnu
settust menn að jólaveislu, og
voru nú allir glaðir, nema þeir
fyrrnefndu fimm menn, er sátu í
höftum, enda var biskup þeim
hinn reiðasti.
Undir borðum lagði biskup
þá spurningu fyrir Kristján,
hvernig hann mundi hafa dæmt
þessa menn, ef hann hefði verið
lögmaður.
„Ég hefði dæmt þá svo vægt,
sem mætti,“ sagði drengur.
„Láttu mig þá heyra,“ sagði
biskup. „Hvernig heldurðu að
þú hefðir dæmt þá?“
„Ég hefði fyrst lofað þeim að
sitja jólaveisluna í kvöld.“
„Svo skal gert,“ sagði biskup
og lét sækja þá. Þegar þeir voru
sestir niður, sagði biskup þeim,
hvers drengurinn hefði óskað.
Urðu þeir þá mjög sneyptir og
báðu hann nú fyrirgefningar.
Hann kvaðst mundu gera það
fyrir sig, en það mundi þeim
ekki vera nóg. Að svo mæltu
tóku þeir þátt í veislunni; en er
staðið var upp frá borðum, spyr
biskup Kristján litla enn,
hvemig hann mundi hafa dæmt
þá.
„Ekki mundi ég,“ segir
drengur, „hafa sótt eftir lífi
þeirra, þótt þeir sæktu eftir
mínu, en óhelga mundi ég
dæma þá ævilangt innan um-
merkja yðar biskupsdæmis,
herra.“
Þá klappaði biskup á koli
hans og sagði: „Þú ert efni í
lögréttumann, Kristján litli.“
Sagan segir, að dómur yfir
þessum mönnum hafi fallið,
eins og hann kvað hér á.
Eftir nýárið fór biskup til
eyjarinnar, og var Kristján litli
með í förinni. Þar var allt ó-
hreyft, eins og þeir skildu við.
Varð biskupi að orði, er hann
leit inn í borgina: „Hvort er
sauðaborg mín orðin konungleg
höll? Undir þínu nafni, Uristján
litli, slæ ég hendi yfir allt, sem
hér er.“ — Þeir höfðu þegar
heim með sér allt það af góss-
inu, er þeir gátu með komist, en
hitt var síðar sótt. Var mikill
vandi að koma því óskemmdu.
Þegar það var komið heim,
sagði biskup, að hann léti allt
þetta skraut fara til útlanda, því
að það væri samboðið kon-
ungshöllum einum, og mundi
þar þó sjaldséð annað eins.
Einn bikar undantók hann
samt, er hann gaf Hólakirkju og
er hann sagður enn til. Var
hann aðeins notaður meðan
biskupar voru þar, og þegar þeir
sjálfir tóku sakramenti.
Kristján litli Þorsteinsson
varð eigandi alls þess, er fékkst
fyrir dýrgripi þessa, og var það
enginn smáræðis skildingur.
Hafði biskup umsjón þess. Fór
þá drengur að stunda bóknám
til prests, því að það vildi hann
verða, af því að hann langaði
svo til að syngja og tóna. Fór
svo að lokum, að hann varð
prestur. Veitti biskup honum
gott brauð, er lá allnærri stóln-
um og gifti honum Ástríði dótt-
ur sína.
Séra Kristján varð góður
prestur, og prófastur í mörg ár,
og átti mörg mannvænleg börn
með konu sinni. Gamla Anna,
sem hann fylgdi forðum, naut
styrks og athvarfs hjá honum í
elli sinni. Og er þá lokið sög-
unni.
Sögn Guðrúnar Einarsdóttur á
Húsavík 1905. Handrit Jakobs
Hálfdánarsonar á Húsavík.
Óskum starfsfolki okkar
og vidskiptavinum gleðilegra jóla,
árs og friðar, og þökkum jafnframt
samstarf og viðskipti á líðandi ári.
tmt
straumur
Óskum starfsfólki okkar og við-
skiptavinum gleðilegra jóla, árs
og friðar, og þökkum jafnframt
samstarf og viðskipti á líðandi
ári.
Sölusamband íslenskra
fiskframleiðenda
Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum
gleðilegra jóla, árs og friðar, og þökkum jafnframt
samstarf og viðskipti á líðandi ári.
Flateyrarhreppur