Vesturland - 01.12.1986, Blaðsíða 8
8
Þróunarstofnun
Hálandanna og eyjanna
Punktar úr Skotlandsferð
Laxeldi í sjókvium. Miklu fé hefur verið veitt til fiskeldis.
Samband íslenskra sveitarfé-
laga efndi til kynnisferðar til
Skotlands 25. október — 1.
nóvember s.l. Tilgangur farar-
innar var að kynnast sveitarfé-
lögum í Skotlandi, stjórnun
þeirra og þeim aðferðum sem
beitt er í strjálbýlli héruðum
Skotlands til að koma í veg fyrir
fólksfækkun. í þessu skyni var
stefnan sett á Hálönd Skotlands
og jafnframt ákveðið að heim-
sækja Suðureyjar, sem eru
undan vesturströnd Skotlands.
Þátttakendur í ferðinni .voru
aðalega sveitarstjómarmenn
utan höfuðborgarsvæðisins.
Höfnin í UHapool.
Það er óhætt að segja að menn
hafi sýnt öllu því sem laut að
eflingu byggðar, sérstakan á-
huga, enda byggðamál ofarlega
í huga þátttakenda. Flestir
komu frá Akureyri, 3 bæjar-
fulltrúar og bæjarritari. Auk
þess var Sigfús Jónsson bæjar-
stjóri þeirra fararstjóri hópsins.
Framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambands Norðurlands var
einnig með í för. Þannig urðu
Akureyringar alls 6. Frá
Blönduósi komu þrír fulltrúar,
Isfirðingar voru tveir, auk und-
irritaðs Kristinn Jón Jónsson,
og einn fulltrúi annarra sveitar-
félaga, Kjalarneshrepps, Bisk-
upstungnahrepps og Jökuldals-
hrepps. Auk þess voru fram-
kvæmdastjóri Samtaka sveitar-
félaga á Suðurlandi, formaður
Sambands íslenskra sveitarfé-
laga og skrifstofustjóri þess með
í hópnum. Mikil samstaða
skapaðist með mönnum og á-
hugi fyrir því að árangur yrði
sem mestur og bestur.
HEIMSÓKN I ÞRÓUNAR-
STOFNUNINA
Að afloknum hádegisverði
þriðjudaginn 27. október, en
hann var snæddur í verk-
menntaskóla, Invernes Techn-
ical College, hélt hópurinn til
aðalstöðva Highlands and Is-
lands Development Board.
I íslenskri þýðingu heitir
stofnunin Þróunarstofnun Há-
landanna og eyjanna. Stuart
Edmond starfsmaður hennár
tók á móti okkur. Sem fyrr í
ferðalaginu voru veittar miklar
upplýsingar á stuttum tíma.
I máli hans kom fram að
stjóm er skipuð sjö mönnum.
Þar af eru 4 í fullu starfi.
Starfssvæðið nær yfir skosku
Hálöndin og Suðureyjar, Orkn-
eyjar og Hjaltland. A eyjunum
búa alls um 72 þúsund manns,
þar af 30 þúsund á Suðureyjum.
Alls búa um 250 þúsund manns
á öllu svæðinu. Um er að ræða
7% af íbúafjölda Skotlands, en
helming lands. Borgin Inver-
ness, sem er stærsta borgin telur
46.000 íbúa. Þar er stofnunin til
húsa.
Þess var getið að alls hefði
stofnunin til umráða á líðandi
fjárhagsári 36 milljónir punda,
þar af 7,5 milljónir af greiðslu
vaxta og afborgana. Hinar 28,5
milljónir punda leggur Skot-
landsmálaráðuneytið til.
Meðal þess sem stofnunin
hefur unnið að síðan henni var
komið á fót 1965, er uppbygg-
ing flugvalla. Flugsamgöngur á
Myndir og texti
Ólafur Helgi
Kjartansson.
svæðinu eru taldar mjög góðar.
Flugbrautir eru á flestum eyjum
í eyjaklösunum þremur. Óhætt
er að segja að fleirum en undir-
rituðum hafi orðið hugsað
heim, undir þessum þætti fyrir-
lestrarins. Alls mun hafa verið
aðstoðað við byggingu 39 flug-
valla.
Okkur var sýnt myndband
frá ýmsum atvinnurekstri, sem
stofnunin hefur fjármagnað.
Til dæmis um árangur af
starfseminni má nefna að 1965
voru fiskveiðar á svæðinu nærri
aflagðar. En vegna þrákelkni
eins manns innan stjórnar var
snúið við blaði. Ullapool, bær á
vesturströndinni með u.þ.b.
2.500 íbúa er nú orðinn töluvert
stór löndunarstaður. En hins
vegar er of lítið unnið úr aflan-
um og í mörgum tilvikum er
hann settur beint um borð í
rússneska verksmiðjutogara,
sem greiða fyrir aflann þokka-
legt verð. Það eru aðallega
fiskimenn frá austurströndinni
sem stunda þessar veiðar. Þeir
fara svo heim um helgar. Allt
þetta þótti okkur ótrúlegt. Þegar
við komum til Ullapool frá
Suðureyjum þremur dögum
síðar sáum við ótrúlega sjón,
sem sannfærði okkur. Veður
var mjög slæmt og umhverfis
Ullapool hélt gríðarlegur fjöldi
rússneskra verksmiðjuskipa sjó.
Eitt augnablik hefði mátt halda
að við værum í Rússlandi en
ekki Skotlandi.
NÁNAR UM STJÓRN OG
STARFSEMI
Stjórnin sem er skipuð sjö
mönnum, sem fyrr er getið,
hefur sér til ráðuneytis 36
manna ráðgjafarnefnd, sem
kosin er í tengslum við sveitar-
stjómarkosningar. Skotlands-
málaráðherra skipar stjómar-
menn til 5 ára í senn, en á mis-
munandi tímum. Með því er
tryggt að þeir séu ekki allir
reynslulausir eða -litlir. Þeir á-
kveða sameiginlega stefnu en
hver um sig hefur svo ákveðið
verksvið. Auk þess hafa þeir á-
byrgð á ákveðnum héruðum.
Starfsmenn eru um 250,
flestir í aðalstöðvunum, en fá-
einir í útibúum á nokkrum
stöðum í eyjunum og Hálönd-
unum. Sem fyrr segir fær stofn-
unin yfir 80% af tekjum sínum
úr ríkissjóði. Helstu svið eru
fiskveiða- og fiskeldissvið, iðn-
þróunarsvið, landnýtingarsvið
og ferðaþjónustusvið. Að und-
anförnu hefur verið lögð á-
hersla á eflingu útibúa með 3—
4 starfsmönnum á nokkrum
stöðum. Eitthvað er mismun-
andi hvert verkssvið þeirra er. I
sumum er fyrst og fremst tekið á
móti umsóknum og þeim komið
áfram til aðalstöðvanna. í öðr-
um eru unnin ýmis staðbundin
verkefni. Allar umsóknir fara
fyrir stjórnarfundi, en starfs-
menn mega meta umsóknir um
aðstoð sem ekki nær 10.000
pundum.
ÖRLÍTIÐ UM LÁN OG FRAM-
LÖG
Stofnunin getur veitt lán eða
framlög sem nema 50% afg
stofnkostnaði (í undantekning-
ariilvikum 70%). Framlög eru
alla jafna ekki hærri en 20% af
stofnkostnaði. Hámarksaðstoð
sem stjórn getur afgreitt er
250.000 pund (u.þ.b. 15 mill-
jónir króna) en með samþykki
Skotlandsmálaráðherra getur
aðstoðin farið upp í 400.000
pund.
Veitt hefur verið fé til flestra
sviða atvinnulífs nema hefð-
bundinnar smásöluverslunar.
Lán stofnunarinnar eru 3 —
4% undir bankavöxtum, sem nú
eru 7,5%.
Á tíu ára tímabili 1975—84
veitti stofnunin lán og framlög
til um 8 þúsund fyrirtækja,
samtals að upphæð 185 mill-
jóna punda (verðlag 1984) eða
u.þ.b. 11,1 milljarða króna.
Rúmlega fjórðungur fór til
Mikið átak hefur verið gert í ferðamálum. Sumarhús í Spey Dalnum.