Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Side 10

Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Side 10
Veiðiskýrslur 1950. Skýrslur hafa enn ekki borizt frá öll- um veiðiánum, og er ástæða til þess að minna á það einu sinni enn, að skylt er að senda þær til skrifstofu veiðimála- stjóra strax og veiðitímanum er lokið. Hér er því um vanrækslu að ræða, sem engin réttmæt afsökun getur verið til fyrir. Samkvæmt eindreginni ósk frá skrifstofunni beinir Veiðimaðurinn því til allra, sem hlut eiga að máli, að senda bækurnar hið allra fyrsta og gæta þess framvegis, að þessarar áminningar verði eigi oftar þörf. Skrifstofunni er mjög nauðsynlegt að fá þessi gögn strax á haustin, því að hún gerir eftir þeim margskonar athuganir og skýrslur, sem margar eru þannig, að hagkvæmast er að geta unnið úr öllum veiðibókunum samtímis. Veiðimönnum leikur einnig hugur á að fá sem fyrst fréttir af veiðinni á hin- um ýmsu stöðum á landinu. En eigi að vera hægt að birta þær allar í síðasta tölublaði Veiðimannsins ár hvert, þurfa þær að berast veiðimálaskrifstofunni strax að veiðitímanum loknum, því það Síld & Fiskur. er mikið verk að vinna úr öllum bókun- um á þann hátt, sem æskilegast væri. ★ Veiðin s.l. sumar var víðast hvar miklu lakari en í fyrra, bæði hvað fjölda og þyngd snertir. Norðurá í Borgarfirði er eina áin þar sem fleiri laxar veiddust nú, en eins og flestir veiðimenn munu vita, var laxinn þar óvenjulega smár í ár, og meðalþyngdin því miklu lægri en í fyrra. Það er einnig eftirtektarvert, að meðalþyngd hrygnanna þar er tals- vert hærri en hænganna, eins og í Mið- fjarðará í fyrra. Það er áhyggjuefni margra veiðimanna, hvað fiskurinn fer smækkandi í Borgaríjarðaránum, og þó sérstaklega Norðurá. Er enginn vafi á þvi, að hin gegndarlausa netaveiði á sinn mikla þátt í þessu. Það eru ekki ýkja- mörg ár síðan Norðurá var ein af beztu veiðiám landsins, bæði að fiskimagni og stærð. Það var algengt að menn veiddu þar 22—27 pd. fiska og oft sáust þeir stærri. Nú er það orðin hrein undan- tekning, ef 20 punda fiskur fæst þar, og í ár t. d. náði enginn þeirri þyngd — flestir voru neðan við 5 pund! Það Kjöt & Grænmeti 8 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.