Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Side 15

Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Side 15
fram af kappi og fullri einurð við hvern, sem í hlut dtti, og hikaði aldrei við að benda á það, sem honum þótti aflaga fara í stjórnarfari eða bæjarmálefnum, hvort sem flokksmaður eða andstæðingur áttu þar sök á. Þó var Sigbjörn vinmargur og vin- sæll maður, bví ljóst var að hér fór dreng- ur góður og heill í huga. Við fráfall Sigbjörns Ármann höf- um við stangveiðimennirnir misst einn af okkar beztu og traustustu forustu- mönnum. Með ævistarfi sínu í þágu stangveiðimálanna hefur hann reizt sér óbrotgjarnan minnisvarða. Hann verður áreiðanlega minnisstæður þeim fjölda manna, sem kynni höfðu af honum, en við vinirnir söknum hans, og þeir mest. sem þekktu hann bezt. M. J. Br. ófarin á þeirri braut, en væri þó lengri ef Sigbjörns hefði ekki notið við. — Því var hann líka samherji okkar, þó að hann keppti við okkur um umráðin yfir veiðiánum. Hann var harður í horn að taka, enda kappfullur mjög, en ávallt drengilegur. Það er eftirsjón að slíkum keppinaut sem hann var. Við þökkum hinum látna heiðurs- manni starf hans og brennandi áhuga, en fyrst og fremst fordæmi hans, það, að leitast við að skila hverri á, sem hann kom nærri, betri en hún var þegar hann tók við henni. Sigbjörn var víkingur í íslenzkum veiðimálum. Málefnisins vegna skulum við vona, að hann hafi ekki verið „síð- asti víkingurinn." Gunnar J. Möller. ★ Mér þykir hlýða að láta fylgja þessum minningarorðum um Sigbjörn heitinn Ármann nokkur kveðju- og þakkarorð frá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. Við lát hans á félagið á bak að sjá framsýnum brautryðjanda, harðvítugum keppinaut og traustum samherja. Brautryðjandi var hann, því að hann vísaði veginn til að gera íslenzkar veiði- ár að því hnossi, sem þær geta orðið bæði eigendum þeirra og þeim, sem veiði- íþróttina stunda — veg ræktunar og auk- innar veiðimenningar. Enn er löng leið Amerískt veiðimannablað skýrði frá því fyrir nokkru síðan, að talið sé, að veiðar með gerviflugu hafi byrjað á þriðju öld, því að þá hafi Makedón- íumenn veitt sérstakan, dröfnóttan fisk, sem auð- sýnilega hafi verið silungur, f ánni Astraeus, á gervibeitu, sem btiin hafi verið til tir ull og fjöðr- um. Ennfremur skýrði blaðið frá því, að fyrsta bók- in um fluguveiðar hafi verið rituð af konu að nafni frú Juliana Berners, á 15. öld, og f henni vísi hún til annarra fiskibóka. Sé þvf auðsætt, að bæk- ur um þetta efni hafi verið til fyrir hennar tíma. (jL&ilecj' jól! Bemhard Petersen. Ásgeir Ólafsson, Vonarstræti 12. Veiðimaðurinn 13

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.