Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Side 13
ir að konurnar gefa karlmönnunum
ekki eftir, ef þær fara út í veiðiskap-
inn, og má í því sambandi minna á, að
það var kona, frú Soffía Sigurjónsdótt-
ir, sem veiddi bikarlaxinn 1949.
Laxar á flugu.
Þá hefur til gamans verið athugað
í nokkrum veiðibókunum, hve marg-
ir fiskar veiddust á flugu.
Laxá i Aðaldal:
Af 1043 löxum veiddust 316 á flugu.
Norðurá:
Af 622 veiddust 239 á flugu.
Bugða:
Af 116 veiddust 54 á flugu.
Laxá i Kjós:
Af 682 veiddust 236 á flugu.
Miðjarðará:
Af 612 löxum voru aðeins 102 á
flugu.
Elliðaárnar:
Af 960 voru 536 veiddir á flugu.
Eins og sjá má af framangreindum
tölum, skipar fluguveiðin ekki þann
sess, sem henni ber, hjá íslenzkum veiði-
mönnum ennþá.
Sem kunnugt er, má ekki veiða á
annað en flugu í efri-hluta Elliðaánna.
Árangurinn er sá, að meira en helming-
ur af allri veiðinni í þeirri á er á flugu.
og er þó veiðin þar hlutfallslega eins
mikil og annarstaðar.
Það er t. d. mjög illa á haldið, að í
Norðurá skuli ekki nema rúmur þriðj-
ungur veiðinnar vera á flugu, eins á-
gæt fluguá og hún er. Sama er að segja
um Laxá í Aðaldal. í Miðfjarðará er
aðeins i/6 hluti á flugu. Það mætti vel
hugsa sér að veiðimennirnir þar hefðu
gripið til hennar í vandræðum — hafi
orðið uppiskroppa með maðk, eða því-
umlíkt!
Ef ísl. veiðimenning á að verða sambæri-
leg við það, sem er hjá öðrum þjóðum
verður þetta að breytast. Það er enginn
vafi á því, að fiskurinn tekur fluguna
engu síður en maðkinn á miklu fleiri
stöðum en margir halda. Og menn verða
að láta sér skiljast það, að sportveiði er
jluguveiði.
Að lokum skal þess getið, að fram-
anritaðar skýrslur eru frá skrifstofu
veiðimálastjóra, og kann blaðið Einari
Hannessyni, starfsmanni þar, beztu
þakkir fyrir lipurð hans og hjálp í þessu
efni.
Hann: (upp úr svefninum) „Þetta er sú lag-
legasta, sem ég hef krækt í ennþá. Sérðu hvað hún
er stinn og bústin. Hún Dóra ætti að sjá hana,
þá er ég viss um að hún mundi skilja mig.“
Dóra: „Mig langar hvorki til að sjá hana né
skilja þig, og vaknaðul"
Hann: (hrekkur upp). „Af hverju varstu að vekja
mig, góða mín? Mig var að dreyma að ég var að
enda við að Ianda fallegustu hrygnu, sem ég hef
nokkrum tíma séð.“
Dóra: „Ó þetta var svo ægilegt ,eins og þú
sagðir það, að ég gat ekki þolað það, þó að það
væri bara draumur."
GUEÐILEG JOL!
og gott nýtt ár. -•*
Verzl. B. H. Bjamason.
VvrniMAmrRTNN
11