Veiðimaðurinn - 01.12.1950, Síða 39
ferðir Iaxíds.
Hvað verður a£ laxinum, þegar hann
seinnihluta vetrar yfirgefur árnar, og
hvar halda laxaseyðin sig, eftir að þau
hafa leitað sjávarins? Þetta er spurning,
sem rnargur veiðimaðurinn hefur áreið-
anlega oft velt fyrir sér. Heldur hann sig
nálægt árósunum eða leitar hann á haf
út? Þetta er ekki fullkunnugt ennþá, en
þó má telja það nokkurnveginn víst, að
laxinn er æði víðförull og fer vítt um haf.
Talið er að hann haldi sig nær yfirborð-
inu og leiti ekki ætis við botninn, eftir að
lengra út er komið, ella mætti gera ráð
fyrir því, að hann veiddist við og við í
botnvörpu hér við land, en þess munu fá
eða engin dæmi.
Laxamerkingar hafa varpað nokkru
ljósi yfir ferðir laxins t. d. við Noreg, en
þar hafa merkingar á laxi farið fram um
margra ára skeið. Þar liafa þær sýnt, að
laxinn fer oft fleiri hundruð kílómetra
um regin haf. Aftur á móti hefur það
komið í ljós, að stjóbirtingurinn eða sjáv-
arurriðinn lieldur sig mjög í námunda
við árósana.
Á s.l. ári hófu ameríkumenn merk-
ingar á Kyrrahafslaxinum út af strönd-
Litla Blómabúðin.
urn Californíu, en við vesturströndina
er þessi lax mikið veiddur í sjónum,
bæði á stöng og í net. Merktir voru 69
laxar, og af þeim höfðu í lok ágústmán-
aðar s.l. 12 laxar veiðst aftur. Lengsta
ferðalag eins þeirra, sem merktur var
norður af Farallon eyjunum 21. júlí og
veiddur út af Cairmanah oddanum í
Vancouver mánuði síðar, var 2400 kíló-
metrar. Annar lax, sem merktur var
sama dag og veiddist í Columbia-ánni
32 km. frá sjó þann 12. ágúst, hafði far-
ið á 22 dögum að meðaltali 32 km. á dag.
Flestir hinna merktu laxa, sem aftur
komu fram, voru veiddir í sjónum út
af ströndum Californíu eða í nálægum
ám. í ár voru merktir 365 laxar. Vísinda-
stofnunin, sem um merkingarnar sá,
fékk ókeypis aðstoð áhugamanna við
veiðarnar 20 bátar, með 6 veiðimönn-
um á hverjum, veiddu laxinn, og komust
færri að en vildu.
Hér á landi hafa laxamerkingar verið
stundaðar í nokkur ár, og þá aðallega í
Elliðaánum, til þess að fá vitneskju um
göngur laxins í árnar. En í sambandi
við þær merkingar hefur komið í ljós,
að af 50 löxum úr Elliðaánum, sem
merktir voru og fluttir í Flókadalsá í
Borgarfirði, komu 5 frani í Elliðaánum
árið eftir. Hvort nokkuð er um ferðir lax-
ins milli ánna á Norður- og Suðurlandi
er okkur ekki kunnugt, en mjög væri
fróðlegt að fá vitneskju um það.
BRJ.
Veioimaðurinn
37