Fréttablaðið - 02.03.2023, Page 4

Fréttablaðið - 02.03.2023, Page 4
Ef miltisbrandur kemst í meltingarveginn fá menn gríðarlegar bólgur, blæðingar og drep í meltingarfærin. Sigurður Sigurðarson, dýralæknir Á Íslandi eru 160 þekktar miltisbrandsgrafir. Óþekktar eru sennilega mun fleiri. Ef jörð er raskað í slíkri gröf getur lífshættulegur sýkill losnað úr læðingi og drepið manneskju á örfáum dögum. kristinnhaukur@frettabladid.is umhverfismál Miltisbrandsgrafir víða um land eru tifandi tíma­ sprengjur. Brýnt er að fólk sé vakandi fyrir einkennum sjúkdómsins. Sýk­ illinn getur lifað neðanjarðar í dvala í hundruð ára og vaknað við jarðrask. „Ég held að stjórnvöld séu hálf­ sofandi fyrir þessu, því miður,“ segir Sigurður Sigurðarson dýralæknir sem hefur skrifað um og varað við þessum gröfum í 18 ár. Hann og Ólöf Erla Halldórsdóttir, eiginkona hans, hafa ferðast um landið á eigin kostnað og merkt grafirnar. Það er að segja þær sem er vitað um. „Ef rótað er í smituðum jarðvegi geta menn andað að sér sýklunum sem er lífshættulegt,“ segir Sigurður. „Ef miltisbrandur kemst í meltingar­ veginn fá menn gríðarlegar bólgur, blæðingar og drep í meltingarfærin. Ef hann kemst í snertingu við sár á húð verður þar til kolsvart drep. Ef fólk andar þessu að sér getur það fengið lífshættulega lungnabólgu.“ Horfur fara eftir því hversu fljótt fólk áttar sig. Fúkkalyf vinna á sjúk­ dómnum en annars getur fólk dáið, jafnvel á tveimur til þremur dögum ef þetta kemst í meltingarfærin og þá fylgja miklar kvalir. Sigurður hefur skrifað skýrslur um miltisbrand fyrir ráðuneyti, sveitarstjórnir og meira að segja ábúendur einstakra jarða þar sem hann hefur grasserað áður fyrr. Sig­ urður segir nauðsynlegt að merkja vel alla staði til að jörð sé ekki raskað. En meðal þekktra miltis­ brandsgrafa má nefna Klambra­ tún, við Hlemm, á Jófríðarstöðum í Hafnarfirði og við Suðurströndina á Seltjarnarnesi. Alls eru 160 þekktar grafir á 130 stöðum. Vandinn er hins vegar sá að grafirnar eru vafa­ laust mun fleiri, og sums staðar er nákvæm staðsetning ekki þekkt. Miltisbrandur kom til Íslands á ósútuðum húðum stórgripa, hesta og nautgripa, til leðurgerðar. Dansk­ ir kaupmenn fluttu inn húðirnar frá Asíu og Afríku þar sem miltisbrand­ ur er enn landlægur. Fyrsta staðfesta tilfellið á Íslandi kom upp árið 1866 í Miðdal í Mosfellssveit. Þar drápust 30 stórgripir á tveggja ára tímabili. Lýsingar á eldri sjúkdómstilfellum á Íslandi geta þó átt við miltisbrand. Næstu áratugi komu reglulega upp miltisbrandstilfelli. Voru gripir samstundis grafnir en ekki brennd­ ir eins og nú yrði gert. Á annan tug manna dó úr sjúkdómnum. Meðal annars karlmaður í Vestmanna­ eyjum fyrir tæpum 100 árum. „Hann var að raka húð á beru hnénu og skar sig. Þar með sýktist hann og dó,“ segir Sigurður. Jaðarkot í Flóa er nýjasta miltis­ brandsgröfin sem fundist hefur, en Sigurður hefur fengið ábend­ ingar úr rituðum heimildum og munnmælum. Síðasta tilfellið var á Vatnsleysuströnd þar sem þrjú hross drápust og það fjórða var fellt eftir að hafa étið úr sýktu beitilandi. Hrossin höfðu gengið í hólfi við sjó­ inn nálægt stað þar sem gröf sýkts stórgrips var í sjávarkambi. Sjórinn hafði smám saman rutt kambinn og dreift sýklunum yfir beitilandið. Sýklarnir mynda dvalargró sem lifa ekki á yfirborðinu því sólin eyðir þeim. En neðanjarðar lifa þau lengi. Alvarlegast er ef fólk eða dýr innbyrðir eitthvað sem inni­ heldur gróin, svo sem vatn, mat eða fóður. n Dýralæknir segir stjórnvöld sofandi fyrir hættu af miltisbrandsgröfum Merkt miltis- brandsgröf stendur við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Fréttablaðið/ anton brink erlamaria@frettabladid.is Kjaramál Yf irstandandi verk­ föllum Eflingar hefur verið frestað í kjölfar miðlunartillögu sem settur ríkissáttasemjari, Ástráður Haralds­ son, lagði fram í gær í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Miðlunartillögunni svipar til þeirrar tillögu sem lögð var fram í lok janúar og gerir ráð fyrir fullri afturvirkni til 1. nóvember og svip­ uðum samningi og Starfsgreina­ sambandið hafði samið um við SA. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar frá fyrri tillögu. Þær taka meðal annars til aukagreiðslu til olíubílstjóra Skeljungs og Olíudreif­ ingar, ábata til hafnarverkamanna og bílstjóra Samskipa, breytinga á starfsheiti starfsfólks á gistihúsum og breytinga á röðun í launaflokka. Tillagan fer í rafræna atkvæða­ greiðslu hjá SA og Eflingu. Hefst hún á hádegi á morgun. Henni lýkur svo miðvikudaginn 8. mars og munu niðurstöður liggja fyrir samdægurs. Sólveig Anna Jónsdóttir, formað­ ur Eflingar, segist ekki sátt við það að Samtök atvinnulífsins hafi neitað að gera kjarasamning við Eflingu. „Þetta er ekki kjarasamningur sem samninganefnd Eflingar hefur gert við deiluaðila. Þetta er miðl­ unartillaga. En ég met það svo á þessum tímapunkti að þetta sé sú niðurstaða sem unað verði við,“ segir Sólveig Anna. n Uppfærð miðlunartillaga á borðinu Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari, lagði fram miðlunartillögu í gærmorgun í kjaradeilu SA og Eflingar. Fréttablaðið/anton brink ser@frettabladid.is DÓmsmál Forkólfar hópsins Gráa hersins hyggjast áfrýja dómi Hæsta­ réttar Íslands frá byrjun nóvember á síðasta ári í málum þriggja liðs­ manna hans til Mannréttinda­ dómstóls Evrópu í Strassborg og hafa málin þegar verið send dóm­ stólnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gráa hernum, en þar segir jafn­ framt að með áfrýjuninni sé gerð úrslitatilraun til að fá það viður­ kennt að núgildandi skerðingar­ reglur almannatryggingalaga séu úr hófi og standist hvorki íslensku stjórnarskrána né Mannréttinda­ sáttmála Evrópu. „Við neitum að gefast upp í þessu máli,“ segir Helgi Pétursson, for­ maður Landssamband eldri borg­ ara. Mál þremenninganna, þeirra Ingibjargar Sverrisdóttur, Sigríðar J. Guðmundsdóttur og Wilhelms Grái herinn áfrýjar til Mannréttindadómstóls Evrópu Helgi Pétursson, formaður LEB ragnarjon@frettabladid.is GriKKlanD Costas Karamanlis, samgönguráðherra Grikklands og fyrrverandi forsætisráðherra, sagði af sér í gær eftir eitt alvarlegasta lest­ arslys í sögu landsins. Hann segist taka fulla ábyrgð á mistökum gríska ríkisins í málinu. Stöðvarstjóri hefur verið ákærður fyrir manndráp. Minnst 38 létust eftir að farþegalest rakst á flutninga­ lest á leið frá Aþenu til Þessalóníku. Um 350 manns voru um borð. n Ráðherra segir af sér eftir lestarslys ragnarjon@frettabladid.is BanDaríKin Lori Lightfoot, borgar­ stjóri Chicago, hlaut ekki útnefn­ ingu til embættis borgarstjóra og mun því ekki ná endurkjöri. Verður hún fyrsti borgarstjóri Chicago í yfir 40 ár sem ekki nær endurkjöri. Lightfoot er fyrsta svarta konan sem gegnir embættinu ásamt því að vera fyrsti samkynhneigði ein­ staklingurinn sem gegnir því. Mikil glæpaalda hefur gengið yfir Chicago á stjórnartíma Lightfoot en hún þykir ekki hafa brugðist nægi­ lega við, sem talið er hafa skaðað álit kjósenda á henni. n Lightfoot nær ekki endurkjöri Lori Lightfoot, borgarstjóri í Chicago Wessman, á hendur ríkinu, hafi að sögn Gráa hersins ekki snúist um fjárkröfur þeim til handa, heldur hafi tilgangurinn verið að freista þess að ná fram niðurstöðu, sem myndi neyða ríkisvaldið til að breyta regluverki almannatrygg­ inga í það horf að það samræmdist grundvallarreglum réttarríkisins. Með dómnum hafi Hæstiréttur hins vegar hafnað öllum rökum kærendanna og gefið ríkinu grænt ljós á gildandi skerðingarreglu­ verk. Rétturinn viðurkenni þó að umræddu svigrúmi séu einhver tak­ mörk sett, en láti þó ógert að upp­ lýsa hvar þau mörk liggi og veiti því lítil sem engin svör við því sem fyrir hann hafi verið lagt. „Við teljum einfaldlega að Hæsti­ réttur hafi ekki tekið afstöðu til okkar kæruatriða og förum því með málið á meginlandið,“ segir Helgi Pétursson. „Við ætlum að láta reyna á þetta alla leið,“ bætir Helgi við. n 4 fRéttiR FRÉTTABLAÐIÐ 2. mARs 2023 fiMMtUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.