Fjarðarfréttir - 04.05.2022, Side 6

Fjarðarfréttir - 04.05.2022, Side 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022 A ð a l s k o ð u n | H j a l l a h r a u n 4 | H a f n a r f j ö r ð u r Ko m d u m e ð b í l i n n í s k o ð u n . E n g a r t í m a p a n t a n i r, b a r a m æ t a . Virkt íbúasamráð er forsenda farsællar ákvarðanatöku. Meiri sátt ríkir um ákvarð anir bæjarstjórnar sem byggja á virku samráði ­ í stór­ um málum sem smáum. Áherslan á lýðræði og lýð­ ræðis leg vinnubrögð er grunn­ stoð í stefnu Samfylkingarinnar. Í huga jafnaðarmanna er lýð­ ræðið meira en bara kosningar á fjögurra ára fresti. Lýð ræðis leg vinnubrögð fela í sér marg­ víslega möguleika fyrir almenn­ ing til að hafa áhrif á gang mála og ákvarðanir stjórnvalda á milli kosn inga, allt frá einföldum hverfafundum yfir í allsherjar íbúakosningar um stærri mál. STÓR SKREF STIGIN UNDIR FORYSTU SAMFYLKINGARINNAR Þegar Samfylkingin stýrði málum í Hafnarfirði varð bærinn leiðandi á meðal sveitarfélaga í þróun lýðæðismála og nýsköpun í stjórnsýslu. Þá voru stigin stór skref til aukinnar þátttöku íbúa í mikilvægum ákvörðunum. Árið 2002 var bæjarbúum tryggður réttur til þess að krefjast atkvæðagreiðslu um einstök mál. Einnig höfðu jafnaðarmenn forgöngu um að stofna notenda­ og ráðgjafaráð og í dag eru starfandi ungmenna­ og öldungaráð og ráðgjafaráð í mál efnum fatlaðs fólks og fjölmenningaráð. Aðkoma ráð­ anna að málum sem varða hags muni þeirra er ómetanleg og við eigum að halda áfram styðja þau og bæta umgjörð þeirra til að sinna verkum sínum. Jafnaðarmenn vísa því með stolti til fyrri verka sinna í lýðræðismálum í Hafnarfirði og við ætlum að gera enn betur. AUKUM ÞÁTTTÖKU ÍBÚA Ávinningurinn af samráðsmenningu innan sveitarfélags er margvíslegur. Slík menning ýtir undir ánægju íbúa og virkari þátttöku þeirra í starfsemi, stefnumótun og ákvarðanatöku sveitarfélagsins. Það er því til mikils að vinna og með markvissum aðgerðum eigum við hiklaust að stefna að því að leita meira til íbúa og auka þátttöku þeirra í stjórnun og stefnumótun sveitar­ félagsins. Og það munu jafnaðarmenn gera í meirihluta á næsta kjörtímabili ­ að sjálfsögðu. Höfundur skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Íbúalýðræði ­ forsenda vandaðra ákvarðana Árni Rúnar Þorvaldsson Rampar eru sennilega það sem flest okkar hugsa um þegar talað er um að gengi. Vissulega eru háir þröskuldar, tröppur, stigar og þrengsli mörgu fólki hindrun, en í stóra samhenginu eru að gengismál miklu víðtækari og ná m.a. utan um félagslegt aðgengi, stafrænt aðgengi og aðgengi fólks að umhverfi sínu og þjónustu. Aðgengismál í víðu samhengi snerta því mikinn fjölda fólks. Undir félagslegt aðgengi falla mögu­ leik ar fólks til að taka virkan þátt í sam­ félag inu, stunda nám og sinna áhuga mál­ um. Þessir möguleikar takmarkast oft af félags legri stöðu eða fjárhagslegri getu. Skortur á þjónustu eins og túlkum getur takmarkað aðgengi fólks og sömuleiðis geta tekjuöflunarmöguleikar fatlaðs fólks verið takmarkaðir. Sífellt meira af þjónustu bæjarfélaga, fyrirtækja og þjónustustofnana fer fram yfir netið. Markmiðið er að einfalda lífið og spara tíma og fyrirhöfn. Stundum gleym ist samt að gera ráð fyrir fólki sem einhverra hluta vegna á erfitt með að nýta þessar lausnir og hefur krafa um rafræn skilríki við slíka þjónustu valdið fötluðu fólki erfiðleikum. Þá getur hönnun vef­ um hverfisins sjálfs verið ófullnægjandi og það því illfært fólki sem glímir við alvarlega sjónskerðingu, lit­ eða lesblindu. Áðurnefndir rampar eru dæmi um eftirálausnir þegar aðgengi að umhverfi hefur verið ófullnægjandi og ekki tekið tillit til algildrar hönnunar. Ójafnar gang­ brautir, skarpir kantar og skortur á merk­ ingum fyrir sjónskerta geta valdið vand­ ræðum og óhöppum. Nýlega hafa verið tekin í notkun snjallskýli fyrir almennings­ samgöngur sem sýna í rauntíma hvenær næsti strætó kemur og númer hvað hann er. Upplagt væri að bæta við talgerfli til að koma þessum upplýsingum til sjón­ skertra farþega – svipað og er í nýrri strætisvögnum, sem segja farþegum sínum hvaða stoppistöð er næst. Píratar leggja áherslu á aðgengi í víðum skilningi. Nauðsynlegt er að algild hönnun sé viðhöfð í öllu skipulagi og að virkt og raunverulegt samráð sé haft við alla íbúa í allri þjónustu. Höfundar eru frambjóðendur í 1. og 2. sæti fyrir Pírata í Hafnarfirði Aðgengismál í stóra samhenginu Haraldur R. Ingvason Hildur Björg Vilhjálmsdóttir

x

Fjarðarfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.