Fjarðarfréttir - 04.05.2022, Qupperneq 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022
A ð a l s k o ð u n | H j a l l a h r a u n 4 | H a f n a r f j ö r ð u r
Ko m d u m e ð b í l i n n í s k o ð u n .
E n g a r t í m a p a n t a n i r, b a r a m æ t a .
Virkt íbúasamráð er forsenda farsællar
ákvarðanatöku. Meiri sátt ríkir um
ákvarð anir bæjarstjórnar sem
byggja á virku samráði í stór
um málum sem smáum.
Áherslan á lýðræði og lýð
ræðis leg vinnubrögð er grunn
stoð í stefnu Samfylkingarinnar.
Í huga jafnaðarmanna er lýð
ræðið meira en bara kosningar á
fjögurra ára fresti. Lýð ræðis leg
vinnubrögð fela í sér marg
víslega möguleika fyrir almenn
ing til að hafa áhrif á gang mála og
ákvarðanir stjórnvalda á milli kosn inga,
allt frá einföldum hverfafundum yfir í
allsherjar íbúakosningar um stærri mál.
STÓR SKREF STIGIN UNDIR
FORYSTU
SAMFYLKINGARINNAR
Þegar Samfylkingin stýrði málum í
Hafnarfirði varð bærinn leiðandi á meðal
sveitarfélaga í þróun lýðæðismála og
nýsköpun í stjórnsýslu. Þá voru stigin stór
skref til aukinnar þátttöku íbúa í
mikilvægum ákvörðunum. Árið 2002 var
bæjarbúum tryggður réttur til þess að
krefjast atkvæðagreiðslu um einstök mál.
Einnig höfðu jafnaðarmenn forgöngu um
að stofna notenda og ráðgjafaráð og í
dag eru starfandi ungmenna og
öldungaráð og ráðgjafaráð í
mál efnum fatlaðs fólks og
fjölmenningaráð. Aðkoma ráð
anna að málum sem varða
hags muni þeirra er ómetanleg
og við eigum að halda áfram
styðja þau og bæta umgjörð
þeirra til að sinna verkum
sínum. Jafnaðarmenn vísa því
með stolti til fyrri verka sinna í
lýðræðismálum í Hafnarfirði og
við ætlum að gera enn betur.
AUKUM ÞÁTTTÖKU ÍBÚA
Ávinningurinn af samráðsmenningu
innan sveitarfélags er margvíslegur. Slík
menning ýtir undir ánægju íbúa og virkari
þátttöku þeirra í starfsemi, stefnumótun
og ákvarðanatöku sveitarfélagsins. Það er
því til mikils að vinna og með markvissum
aðgerðum eigum við hiklaust að stefna að
því að leita meira til íbúa og auka þátttöku
þeirra í stjórnun og stefnumótun sveitar
félagsins. Og það munu jafnaðarmenn
gera í meirihluta á næsta kjörtímabili að
sjálfsögðu.
Höfundur skipar 3. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.
Íbúalýðræði
forsenda vandaðra
ákvarðana
Árni Rúnar
Þorvaldsson
Rampar eru sennilega það sem flest
okkar hugsa um þegar talað er um
að gengi. Vissulega eru háir þröskuldar,
tröppur, stigar og þrengsli mörgu fólki
hindrun, en í stóra samhenginu eru
að gengismál miklu víðtækari og ná m.a.
utan um félagslegt aðgengi, stafrænt
aðgengi og aðgengi fólks að umhverfi
sínu og þjónustu. Aðgengismál í víðu
samhengi snerta því mikinn fjölda fólks.
Undir félagslegt aðgengi falla mögu
leik ar fólks til að taka virkan þátt í sam
félag inu, stunda nám og sinna áhuga mál
um. Þessir möguleikar takmarkast oft af
félags legri stöðu eða fjárhagslegri getu.
Skortur á þjónustu eins og túlkum getur
takmarkað aðgengi fólks og sömuleiðis
geta tekjuöflunarmöguleikar fatlaðs fólks
verið takmarkaðir.
Sífellt meira af þjónustu bæjarfélaga,
fyrirtækja og þjónustustofnana fer fram
yfir netið. Markmiðið er að einfalda lífið
og spara tíma og fyrirhöfn. Stundum
gleym ist samt að gera ráð fyrir fólki sem
einhverra hluta vegna á erfitt með að nýta
þessar lausnir og hefur krafa um rafræn
skilríki við slíka þjónustu valdið fötluðu
fólki erfiðleikum. Þá getur hönnun vef
um hverfisins sjálfs verið ófullnægjandi
og það því illfært fólki sem glímir við
alvarlega sjónskerðingu, lit eða lesblindu.
Áðurnefndir rampar eru dæmi um
eftirálausnir þegar aðgengi að umhverfi
hefur verið ófullnægjandi og ekki tekið
tillit til algildrar hönnunar. Ójafnar gang
brautir, skarpir kantar og skortur á merk
ingum fyrir sjónskerta geta valdið vand
ræðum og óhöppum. Nýlega hafa verið
tekin í notkun snjallskýli fyrir almennings
samgöngur sem sýna í rauntíma hvenær
næsti strætó kemur og númer hvað hann
er. Upplagt væri að bæta við talgerfli til
að koma þessum upplýsingum til sjón
skertra farþega – svipað og er í nýrri
strætisvögnum, sem segja farþegum
sínum hvaða stoppistöð er næst.
Píratar leggja áherslu á aðgengi í víðum
skilningi. Nauðsynlegt er að algild
hönnun sé viðhöfð í öllu skipulagi og að
virkt og raunverulegt samráð sé haft við
alla íbúa í allri þjónustu.
Höfundar eru frambjóðendur í 1. og
2. sæti fyrir Pírata í Hafnarfirði
Aðgengismál í stóra
samhenginu
Haraldur R.
Ingvason
Hildur Björg
Vilhjálmsdóttir