Fjarðarfréttir - 04.05.2022, Page 20
20 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022
HELSTU STEFNUMÁL
a. Börn sem náð hafa 12 mánaða aldri
fái leikskólavist.
b. Ungt fólk hafi kost á því að kaupa
ódýrt húsnæði.
c. Bæta almennings og hjólreiða
sam göngur innanbæjar og í tengingu
við nágrannasveitarfélögin.
BÆJARSTJÓRAEFNI
Ef þessi möguleiki kæmi upp myndi
ég af sjálfsögðu ekki skorast undan því.
Ég myndi leggja mikinn metnað í það
að standa mig vel sem bæjarstjóri. Hins
vegar höfum við verið á þeirri skoðun
að farsælast sé að ráða faglegan bæjar
stjóra.
STYÐUR
FLOKKURINN
„SAMSTÖÐUPÓLITÍK“?
Okkar óskastaða er sú að það væri
enginn meiri og minnihluti. Teljum að
með þannig fyrirkomulagi myndi
árangur af starfi bæjarfulltrúa verða
mun meiri en í dag. Því miður fer allt of
mikill tími og orka í óþarfa karp og
bókanir sem skipta á endanum engu
máli.
STÓRSKIPAHÖFN Í LANDI
ÓTTASTAÐA?
Við teljum að það eigi að skoða
þennan möguleika í fullri alvöru. Hins
vegar finnst mér spennandi kostur að
íbúðabyggð þróist suður með
strandlengjunni í fjarlægri framtíð.
GÖNG UNDIR
SETBERGSHAMARINN
Nei, við teljum þann valkost ekki
koma til greina. Samkvæmt upplýs ing
um frá Vegagerðinni liggja jarðfræði
rannsóknir ekki fyrir. Líklega er um að
ræða gisið hraunlag og þar með erfiðara
við að eiga en ef um berg væri að ræða.
Göngin þyrftu að vera um 1 km að
lengd og myndu kosta lauslega áætlað
um 22,4 milljarða króna með tengingum
sem er dýrasta lausnin. Gatan í stokk
virðist vera besti kosturinn en forsenda
þess er að Álftanesvegurinn og/eða
ofanbyggðarvegur verði að veruleika.
TIL KJÓSENDA:
Bæjarlistinn er óháð framboð sem
lætur ekki stjórnast af hagsmunaöflum.
Bæjarlistann skipar kröftugt fólk með
víðtæka reynslu og þekkingu sem hefur
brennandi áhuga á að vinna sem best að
framfaramálum í Hafnarfirði. Við von
um, kjósandi góður, að við eigum sam
leið með þér. Að þú treystir okkur til að
vinna fyrir þig og aðra Hafn firðinga.
Bæjarlistinn
Sigurður Pétur Sigmundsson
oddviti Bæjarlistans
HELSTU STEFNUMÁL
a. Halda áfram þeirri kröftugu upp
byggingu fjölbreytts húsnæðis líkt og
hafin er í Hamranesi og á þéttingarreitum
víðsvegar um bæinn.
b. Halda áfram að þróa og nútíma
væða þjónustu við íbúa og styðja vel við
bakið á fjölskyldufólki, t.d. með því að
halda áfram á þeirri vegferð að skóla
máltíðir í grunnskólum verði að fullu
gjaldfrjálsar.
c. Fullgilda samning Sameinuðu þjóð
anna um réttindi fatlaðs fólks og hafa
hann að leiðarljósi í öllu starfi með
fötluðu fólki.
BÆJARSTJÓRAEFNI
Ég er oddviti flokksins hér í Hafnar firði.
Við þurfum auðvitað að sjá hver niður
staða kosninganna verður og mun um
vinna með þá niðurstöðu í þessu máli eins
og öðrum í samvinnu við aðra flokka.
STYÐUR FLOKKURINN
„SAMSTÖÐUPÓLITÍK“?
Ég hef unnið vel með öllum flokkum
sem formaður fjölskylduráðs á kjör
tímabilinu. Við í Framsókn erum
miðju og samvinnuflokkur og munum
leggja mikið upp úr samvinnu og sam
starfi í bæjarstjórn.
STÓRSKIPAHÖFN Í LANDI
ÓTTASTAÐA?
Í gildandi aðalskipulagi er búið að
taka frá land fyrir slíka höfn og við
styðjum uppbyggingu stórskipahafnar í
landi Óttastaða.
GÖNG UNDIR
SETBERGSHAMARINN
Ekki hægt að svara þessari spurningu
já eða nei án frekari skýringa. Það er
ljóst að þetta er kafli sem þarf að leysa
og því ánægjulegt að í samgönguáætlun
sé gert ráð fyrir 13,1 milljörðum króna
í vegakafla Lækjargata Álftanesvegur.
Nú er ákveðin vinna farin að stað þar
sem mismundi kostir eru kannaðir.
Þetta er einn þeirra, en við þurfum að
jafnframt að skoða aðra kosti til að fá
bestu niðurstöðuna í málið hratt og vel.
TIL KJÓSENDA:
Kæri Hafnfirðingur. Kosningarnar
snúast um það hverjum þú treystir til að
fara með stjórn bæjarins. Við í Fram
sókn erum tilbúin í það verkefni og
höfum á að skipa öflugu fólki sem vill
vinna vel fyrir bæinn. Við ætlum að
gera góðan bæ enn betri, komdu með
okkur í þá vegferð.
Framsókn
Valdimar Víðisson
oddviti Framsóknar
HELSTU STEFNUMÁL
Píratar vilja efla gagnsæi, íbúalýðræði
og borgararéttindi. Þetta viljum við gera
með öflugum hverfisráðum og með því
að efla samráðsvettvanginn Betri
Hafnarfjörð. Með stofnun embættis
umboðsmanns bæjarbúa tryggjum við
að íbúar hafi málsvara í málum sínum
gagnvart bænum.
Píratar eru með samþættar áherslur í
aðgengis, jafnréttis og fjölmenningar
mál um sem snúast um að virða mann
réttindi og tryggja mannlega reisn íbúa í
Hafnarfirði. Þetta viljum við gera meðal
annars með því að vinna aðgerðastefnu
gegn kynjaðri mismunun og með því að
koma á fjármálastefnu sem taki tillit til
fjölbreytileika íbúa. Fatlað fólk þarf að
njóta sama aðgengis og aðrir bæjarbúar
og upplýsingar þurfa að vera að
gengilegar á helstu tungumálum.
Að lokum vilja Píratar vinna markvisst
að fjölskylduvænum Hafnarfirði. Þetta
viljum við gera með því að styðja við
frekari styttingu vinnuvikunnar, brúa bil
milli fæðingarorlofs og leikskóla og
auka sveigjanleika í vistunartíma á
leikskólum. Við viljum stórauka fræðslu
barna um réttindi sín og málefni sem
þau varðar, auk þess að bjóða upp á
sveigjanlegri frístundastyrk. Við viljum
innleiða hringrásarhagkerfi og stórefla
uppsetningu heima og hraðhleðslu
stöðva, vernda græn útivistarsvæði og
varðveita sérstöðu Hafnarfjarðar með
því að styðja við fjölbreytni í hönnun og
listum.
BÆJARSTJÓRAEFNI
Píratar vilja faglega ráðinn og utanað
komandi bæjarstjóra. Ef niðurstaðan er
flokks pólitískur bæjarstjóri þá er sú staða
ævinlega samningsatriði.
STYÐUR FLOKKURINN
„SAMSTÖÐUPÓLITÍK“?
Eins og staðan er núna í bæjarmálum
er slíkt samstarf ólíklegt, þar sem
yfirlýst markmið núverandi minnihluta
er að „gefa Sjálfstæðisflokknum frí“.
Fordæmi fyrir slíku samstarfi eru þó
þekkt og Píratar myndu vissulega taka
þátt í því ef til kæmi. Píratar vinna að
góðum málum hvaðan sem þau koma.
STÓRSKIPAHÖFN Í LANDI
ÓTTASTAÐA?
Afar litlar upplýsingar virðast liggja
fyrir um þessa hugmynd. Í ljósi þess
hvernig farið hefur um sumar hafnar
framkvæmdir í nágrannasveitar félög
um, svo sem í Helguvík er ljóst að það
þarf langt um meiri upplýsingar um
þetta mál svo að hægt sé að taka um
það upplýsta ákvörðun.
GÖNG UNDIR
SETBERGSHAMARINN
Píratar vilja stuðla að fram tíðar
skipulagi sem styður við fjölbreytta
ferðamáta. Ef jarðfræðilegar aðstæður á
svæðinu eru nægilega hagstæðar virðist
þessi kostur afar álitlegur, sér í lagi
vegna þess að væntanlega er truflun á
umferð á framkvæmdatíma minni en
við aðra framlagða kosti.
TIL KJÓSENDA:
Ég hvet fólk til að standa vörð um
lýðræðið með því að mæta á kjörstað
eða kjósa utankjörstaðar og jafnframt
að ígrunda vel atkvæði sitt, því engin
ástæða er til að láta gamlan vana ráða
ferðinni. Píratar eru nútímavæddur
flokkur með innihaldsríka stefnu og
framúrskarandi fólk. Við erum tilbúin.
Píratar
Haraldur Rafn Ingvason
oddviti Pírata