Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 15
173 laxar (155 — 99). Af þessum 173 löxum voru
hins vegar 128 komnir á land, þann 20. júlí. Var
þó Fossinn mikið stundaður eftir þetta, enda áin
oft mjög ásetin, og flesta daga veitt með fimm
stöngum, að minnsta kosti fyrir hádegi, verulegan
hluta veiðitímans. I venjulegu veiðiári heldur lax
áfram að veiðast mun lengur í Fossinum, og þá
oft gjarnan nokkrir í senn, að morgni. Reyndar
sýnir þróunin í Efri-Móhyl það sama. Þar veidd-
ust nú 102 laxar (201 — 221), og úr honum komu
aðeins um hundrað laxar í ádrætti, daginn eftir
síðasta veiðidag. Hafa laxar þó venjulega legið
þar, svo að hundruðum skiptir, á þeim tíma.
Astæðan fyrir þessum mikla samdrætti í göngu
í sumar er vafalítið flóðin. Má í því sambandi
hafa eftirfarandi í huga. Flóðin urðu tvö ár í
röð (snemma árs 1968 og 1969), og í hvort skipti
voru fjórir árgangar náttúruklaks og seiða í ánni.
Þar af urðu þrír árgangar fyrir báðum flóðunum.
Með það í huga, að tæp fimm ár líða frá því, að
hrogn taka að klekjast í botni og þar til Elliðaár-
lax skilar sér úr sjó (1 ár í sjó), má gefa sér eftir-
farandi: *
1968: I. Klak. Skilar sér 1972.
II. Seiði. Skila sér 1971.
III. Seiði. Skila sér 1970.
IV. Seiði. Skila sér 1969.
1969: I. Klak. Skilar sér 1973.
II. Seiði. Skila sér 1972.
III. Seiði. Skila sér 1971.
IV. Seiði. Skila sér 1970.
Árgangurinn, sem átti að skila sér í ár (III. 1968
og IV. 1969), lenti því tvisvar í flóðunum. Sama
er að segja um árgangana, sem eiga að skila sér
1971 og 1972. Þá hefur árgangurinn, sem á að
skila sér 1973, verið á frumstigi í flóðunum 1969.
Árgangurinn, sem skilaði sér í fyrra, var næst
því að ganga í sjó, er hann varð fyrir flóðunum
1968 (stærst seiði), og því sennilega harðastur af
sér. Þá ber að hafa í huga, að vorið 1968, eftir
fyrri flóðin, var sleppt í ámar um 20.000 göngu-
* Rannsóknir Árna Friðrikssonar, frá 1938—’39,
sýndu, að langflest seiðanna í Elliðaánum ganga
til sjávar, þegar þau eru þriggja ára.
Margir telja umgengninni við ósinn ábótavant.
Um teljarann munu liafa farið ljOO laxar í sumar.
seiðum, en meginið af þeim hefði átt að skila sér
1969. Hliðstæðar ráðstafanir voru ekki gerðar
1969, og hafa ekki verið gerðar síðan. Virðist allt
því benda til þess, að göngur næstu 2 ár verði
ekki meiri en í ár, og göngur 1973 eru undir því
komnar, hvernig hrognunum, sem voru að klekjast
út 1969, reiddi af, verði ekki gert ræktunarátak.
í þessu sambandi er og rétt að hafa í huga, að
allt bendir til þess, að hrygningarstofninn, sem
eftir varð í ánum í haust, sé í algeru lágmarki.
Eftir veiðitíma í haust, var dregið á árnar til
klaks, á öllu svæðinu frá Árbæjarstíflu niður að
Fossi. Árangurinn varð tæpir tvö hundmð laxar,
og var enginn lax eftir á því svæði.
VEIÐIMAÐURINN
13