Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Síða 16
Simastrengur. Þar er nú verið að rífa hesthúsin.
Af þeim um 1400 löxum, sem gengu um teljar-
ann, veiddust 616. Þá ættu að vera eítir 784. Hluti
þeirra hefur vafalítið drepizt, eins og venja er,
og 40—50 komu í ádráttinn. Má því telja, að
allur hrygningarstofn ánna sé ekki yfir 700 laxar,
eins og er, en það er um 300 löxum undir þvi lág-
marki, sem talið er að þurfi til þess eins að við-
halda stofninum. Hér virðist því aðgerða þörf,
og án þeirra er vart við því að búast, að um veiðar
í þeirri mynd, sem þekkzt hafa síðustu ár, verði
að ræða, á næstunni.
Fram hjá því verður ekki litið, í þessu spjalli,
að margir hafa viljað kenna laxleysi í ánum, á
liðnu sumri, því, að um stórstreymið, fyrst í júlí,
hafi Elliðavogurinn verið moldarlitaður, vegna
aksturs í uppfyllinguna. Þetta er rétt, vogurinn
var moldarlitaður um þetta leyti. Hins vegar gekk
meginið af laxinum einmitt fyrstu þrjár vikumar
í júlí, en síðan hætti lax að ganga, svo að umtals-
vert væri. Var þó vogurinn þá að mestu hreinn.
Til samanburðar má geta, að lax hélt um þetta
leyti enn áfram að ganga í nálægar ár, og stórar
göngur áttu þá eftir að skila sér í Kollafjörð.
Að sjálfsögðu er ekki hægt að skjóta fyrir það
loku, að lax, sem átti að skila sér í Elliðaámar,
hafi ekki gengið í aðrar ár, vegna moldarlits á
vognum, og sérkennilegrar lögunar sjálfs Elliða-
áróssins. Hins vegar er rétt að hafa í huga, að
samdráttur í göngum hlýtur að vera tengdur flóð-
unum; hér verður reynslan að skera úr um, hvort
þeim einum er til að dreifa, eða moldarlitur og
óslögun eiga líka sinn þátt; en bíðum næsta árs,
er vogurinn verður vonandi hreinn.
Víkjum þá að veiðinni í einstökum hyljum:
Við Steininn . . .... 5 ( 12 — 19)
Holan .... 10 ( 7 — 33)
Jónshola .... .... 9(4— 6)
Breiðan .... .... 31 ( 10 — 36)
Fosskvörn . . . .... 25 ( 9 — 25)
Fossinn .... .... 173 (155 — 99)
Hornið .... . . . . 8(1 — 7)
Neðri-Móhylur .... 18 ( 21 — 8)
Móhylsstrengur . .... 1(8— 0)
Efri-Móhvlur . . .... 102 (201 — 221)
Krókur .... .... 5 ( 47 — 68)
14
VEIÐIMAÐURINN