Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 50
Húsnœði SVFR er í suðausturhorni hússins við Háaleitísbraut 68.
Félagsheimili
Innréttingar hefur Helgi Hallgrímsson teiknað,
en smíði þeirra annast Húsgagnastofa Þórs og
Eiríks.
Merkur áfangi hefur náðst í sögu Stangaveiði-
félags Reykjavíkur, en félagið hefur nú fest kaup
á rúmgóðu húsnæði við Háaleitisbraut 68.
Verður skrifstofa félagsins þar til húsa fram-
vegis, svo og fundarherbergi stjórnar, en að auki
salur, sem hentar vel til hvers konar félagsstarf-
semi, enda er ætlunin með húsakaupunum öðru
fremur að koma upp félagsheimili.
Er félagsheimilið verður tekið í notkun, síðar
á þessu hausti, hefur rætzt gamall draumur fé-
lagsmanna um að eignast húsnæði yfir starfsemi
sína, bæði þá, sem fram hefur farið í leiguskrif-
stofu, svo og aðra starfsemi, víðs vegar um bæinn.
Ættu húskaupin því að geta orðið félagsstarfsem-
inni í heild mikil lyftistöng.
Á framhaldsaðalfundi félagsins á liðnum vetri,
var gerð samþykkt, þar sem skorað var á stjóm
SVFR að vinna að því að koma upp eigin hús-
næði félagsins. Stjórnin gekkst síðan fyrir útboði,
og var það tilboð, sem barst í húseignina við
Háaleitisbraut 68, talið hentugast, bæði með til-
liti til skilmála og sjálfs húsnæðisins.
Var málið síðan lagt undir dóm almenns félags-
fundar, þar sem það hlaut samþykki.
Axel Aspelund, jormaður SVFR, skoðar framkvæmdir. —
Fundarherbergi stjómar er í baksýn.
48
VEIÐIMAÐURINN