Verktækni - 2021, Side 11

Verktækni - 2021, Side 11
 Icelandic Journal of Engineering // Verktækni Verkfræðingafélag Íslands // Association of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 11 Tafla 1 – Þættir er hafa áhrif á flækjustig verka (e. Complexity contributory factors). Einkenna hópur Áhrif á flækjustig: (+) eykur og (-) minnkar flækjustig Markmið/frálag Skýrleiki (-), Magn (+), Árekstrar (+), Varakerfi (-), breytingar (+) Ílag Skýrleiki (-), Magn (U-laga), margbreytileiki (+), ónákvæmni (+), hraði breytinga (+), Varakerfi (-), Árekstrar (+), Vanskipulögð aðstoð (+), Misræmi (-), Ekki vanabundnir atburðir (+) Ferli Skýrleiki (-), Fjöldi leiða (+), fjöldi aðgerða (+), Endurtekning (-), Vitsmunalegt álag af aðgerð (+), Líkamlegt álag af aðgerð (+) Tími Samtímakeyrsla (+), Þrýstingur (+) Framsetning Uppsetning (veltur á verktegund), Misleitni (+), Samhæfni (-) Frammistöðumælirinn Markmið þessarar greinar er að koma með matsramma sem auðveldar mat á frammistöðu teymisvinnu í verkfræðikennslu og er ætlað að bera kennsl á vandamálasvæði. Höfundar tóku saman alla þætti sem taldir eru hafa áhrif á frammistöðu liða og skilgreindu safn þátta sem eru mikilvægastir í samhengi við verkfræðivinnu. Samantekt af öllum þáttum og skilgreiningu á þeim má sjá í Tafla 2. Til að fá yfirlit yfir frammistöðu liðs þarf að meta alla þessa 43 þætti. Tafla 2 – Samantekt og skilgreining á öllum 42 þáttum í 7 hópum. Liðsstjórnun (e. team management) Liðssamhæfing (e. team coordination) er hversu vel teymi vinnur saman og hvernig liðsmeðlimir hugsanlega víkja frá leikreglum, eins og þegar sumir vilja ekki vinna með öðrum eða fara út fyrir verksvið sitt (e. go off on tangents). Ákvörðunartaka (e. decision making) er hvernig liðið tekur ákvarðanir. Þessar ákvarðanir munu hafa misvísandi markmið, eru teknar í breytilegu umhverfi, krefjast forystu, eru ígræddar í skipuheild og oft í fjölmennum teymum. Liðsíhugun (e. team reflexivity) er hvernig meðlimir velta sameiginlega fyrir sér markmiðum, aðferðum og ferlum liðs. Liðsendurgjöf (e. team feedback) er miðlun upplýsinga sem veittar eru af utanaðkomandi aðila varðandi aðgerðir, atburði, ferla eða hegðun í samhengi við verklok eða teymisvinnu. Liðsstjórnunarferli (e. team management processes) eru um að koma á fót, miðla og skilja markmið liðsins sem sameiginlega dagskrá liðsins sem og að koma á rekstrarhópsskipulagi sem gerir kleift að auðvelda þverfagleg samskipti (e. cross-functional inter-relationships). Þessir ferlar þurfa að takast á við mál eins og: félagslega leti, gagnkvæman tilgang, sérstök markmið, skilvirkni teymis (e. team self-efficiency) og átök. Markvirkni liðs (e. team effectiveness) er mat á árangri ferlanna (e. outcomes of the processes). Markmið & sýn (e. mission & vision) er að leggja fram skýr markmið og stöðuga sýn fyrir verkefnið. Skýr markmið snúast um það að hve miklu leyti meðlimir telja markmið liðs síns mikilvæg, skilja markmið liðs síns og afleiðingar árangurs liðs. Árangursendurgjöf (e. performance feedback) er að nota endurgjöf sem fékkst til að útskýra hvers vegna árangur náðist (eða skortur á slíkum), gefa dæmi um aðferðir sem geta skýrt þetta, velta fyrir sér hvort aðrir möguleikar séu til staðar til að bæta árangur og að lokum að setja sér markmið og þróa áætlanir fyrir næsta verkefni. Liðsumhverfi (e. team environment) Skipuheildarígræðsla (e. organizational embedding) er hvernig samtökin nota teymi til að leysa vandamál, bæta ferla og virkja starfsmenn í teymisvinnu. Nægar auðlindir (e. sufficient resources) snýst um það hvort skipuheildin úthluti fullnægjandi auðlindum til að hjálpa liðinu að starfa og ná markmiðum sínum. Tilvist trausts (e. existence of trust) milli skipuheildar og liðs. Árangursmælingarkerfi (e. system for performance) bæði til að mæla og meta árangur RITRÝNDAR FRÆÐIGREINAR 2021- 27- (1)

x

Verktækni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.