Verktækni - 2021, Síða 13

Verktækni - 2021, Síða 13
 Icelandic Journal of Engineering // Verktækni Verkfræðingafélag Íslands // Association of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 13 o.s.frv..) og vitræna getu (e. cognitive ability) sem er almenn andleg geta sem felur í sér rökhugsun, lausn vandamála, skipulagningu, óhlutbundna hugsun, skilning á flókinni hugmynd og að læra af reynslu. Verk (e. task) Umfang (e. scope) er rétt val og samsvörun verka við hæfni liðsmanna, samþætting auðlinda og árangur teymisins. Vinnuálag (e. workload) er skilgreind út frá tveimur þáttum: tímapressu og eftirspurn eftir auðlindum. Samhengi verka og skjala (e. task coherence) er hversu vel skjöl samræmast við hönnunarverkefni. Flækjustig verka (e. complexity of task) er samansafn hvers konar eiginleika verka er hefa áhrif á frammistöðu verks. Verk einkennum (e. task characteristics) er hægt að skipta í sex hópa: markmið, inntak, ferli, framleiðsla, tími og framsetning. Hver hópur hefur nokkra þætti sem hafa jákvæð (+) eða neikvæð (-) áhrif á flækjustig (sjá alla þætti í Tafla 1). Gagnvirkni verka (e. task interdependence) vísar til þess að hve miklu leyti liðsmenn þurfa upplýsingar, efni og stuðning hver frá öðrum til að geta sinnt verkum sínum. Samskipti (e. communication) Innri samskipti (e. internal communication) eru samskiptin innan teymisins. Tengist tíðni samskipta, verkfærum sem eru veitt til að hjálpa til við samskipti, eðli samskipta og hversu mikil samskipti eru. Misræmi í samskiptum (e. miscommunications) fjallar um ekki gagnleg samskipti og misskilning. Misræmi getur verið allt frá því hvernig yfirfærsla merkingar er í eðli sínu gölluð, minniháttar misskilningur, talinn (e. presumed) persónulegri annmarkar, mismunandi tilvísanir í markmið, munur á hópa- / menningarlegu viðmiði (e. group/cultural norm) í máli og samskiptum, hugmyndafræðilegur rammi tals upp í félags-menningarlegt valdamisvægi (e. socio-cultural power imbalances). Ytri samskipti (e. external communication) vísar til samskipta utan teymisins, til skipuheildarinnar eða viðskiptavina. Tillagan er að nota viðtöl við kennara og liðsmenn til að fá yfirsýn yfir stöðuna. Þættirnir 43 sem áður voru skilgreindir (sjá Tafla 2) eru leiðbeinandi við framkvæmd viðtalsins. Við mat á þáttum er nauðsynlegt að hafa skilgreiningarnar við höndina. Þar sem ramminn er ekki hannaður til að vera mjög nákvæmur er nóg að meta hvern þátt á einfaldan þriggja stiga tölukvarða; núll fyrir að þáttur virkar ekki fullnægjandi, einn fyrir fullnægjandi frammistöðu og tveir fyrir góða frammistöðu. Tafla 3 sýnir dæmi um niðurstöður úr mati þar sem stuðst er við þess konar einkunnakvarða, sjá ítarlegri umfjöllun í Unnthorsson og Oddsson (2020). Tafla 3 – Dæmi um niðurstöður einkunnagjafar fyrir alla 43 frammistöðuþættina og heildarstig hvers þáttarhóps. Li ðs st jó rn un Liðssamhæfing 2 Li ðs sk ip ul ag Liðseiginleikar 2 Ákvörðunartaka 0 Liðssamsetning 2 Liðsíhugun 0 Skipulagðir ferlar 1 Liðsendurgjöf 0 Upplýsingageymsla 1 Liðsstjórnunarferli 1 Starfsemi á mörgum tímalínum 0 Markvirkni liðs 0 Samstaðsetning 2 Markmið / sýn 0 Þátttökutími í liði 0 Árangursendurgjöf 0 Samtals (hámark 14) 8 Samtals (hámark 16) 3 Li ðs m eð lim ir Fyrirbyggjandi félagsmótunarhegðun 2 Li ðs um h ve rf i Skipuheildarígræðsla 0 Hvatning 2 Nægar auðlindir 1 Verkhæfni 0 Tilvist trausts 1 Mannleg hæfni 1 RITRÝNDAR FRÆÐIGREINAR 2021- 27- (1)

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.