Verktækni - 2021, Page 15
Icelandic Journal of Engineering // Verktækni
Verkfræðingafélag Íslands // Association of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 15
Mynd 1 – Ratsjármynd sem sýnir þáttahópana 7 og hvernig myndrænt má sjá einkunnir sem fást með
aðferðinni.
Umræða
Aðferðafræðin sem hér var kynnt veitir ekki ítarlegt mat á frammistöðu heldur gefur hún
vísbendingar – hún er einhvers konar hitamælir á frammistöðuna. Við heimildarýnina fundust
nokkrar aðferðir sem nota má til að meta frammistöðu teyma og er gaman að setja
aðferðafræðina sem kynnt var hér í samhengi við nokkrar þeirra. Til að byrja með er heimspekileg
nálgun (Soltanzadeh & Mooney, 2016). Aðferðafræðin sem kynnt er hér er blanda af kerfisbundinni
nálgun þar sem heildin er skoðuð og stigveldi. Heildstæða nálgunin tekur á umbreytingarferlinu
frá ílagi, umbreytingu yfir í frálag en stigveldisnálgunin í eðli sínu brýtur kerfið niður í viðráðanlega
búta sem hægt er að meta og draga saman í lokin. Grundvallarmælikerfið (Rouse et al., 1992) í
aðferðafræðinni sem kynnt er í þessari grein er í flokknum munnleg / skrifleg skýrsla en ekki
reynslu (e. empirical)- eða greiningarlíkan (e. analytical modelling). Aðferðin miðar að því að finna
vandamálasvæði og viðtöl henta mjög vel til að fá skjóta innsýn. Sama gildir um grundvallarsviðin
sem aðferðin fjallar um. Það eru þrjú meginsvið, nýmyndun gilds hugtaks (e. the synthesis of a
valid concept) stjórnun auðlinda og innri starfsemi teymis (Keefe, Glancey, & Cloud, 2007) og fjallar
PAINTER um þau öll. Aðferðin beinist að því að greina hvort markmið viðskipta og hönnunar séu
þekkt og notuð við framkvæmd verkefnisins (Dong et al., 2004). Og svo hvort þessi markmið séu í
takt við innri starfsemi teymisvinnunnar. Aðferðin tekur bæði tillit til ytri og innri frammistöðu
teymisins (Zhang & Zhang, 2015). Aðferðin fjallar þó ekki um ítarlegri þætti eins og mæliaðferðir
(Andersson, Rankin, & Diptee, 2017), mælingarvandamál (Mendibil & Macbryde, 2005) eða hvernig
0
0,1
0,2
0,3
0,4
0,5
0,6
0,7
0,8
0,9
1
Innri virkni liðs
Samskipti
Liðsmeðlimir
Verk Liðsstjórnun
Liðsskipulag
Liðsumhverfi
RITRÝNDAR FRÆÐIGREINAR 2021- 27- (1)