Verktækni - 2021, Qupperneq 27
Icelandic Journal of Engineering // Verktækni
Verkfræðingafélag Íslands // Association of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 27
Lóðin Naustavör 52-58 er næstvestasta lóðin í Bryggjuhverfinu á norðanverðu Kársnesi. Mynd 3
sýnir vestari hluta Naustavararsvæðisins.
Mynd 4 Lóðir við Naustavör, hús nr. 52-58 eru auðkennd bleik á lit.
Samkvæmt borunum eru botnlög á svæðinu almennt 4-5 m þykk, einkum fremur fíngert set, mis-
skeljaríkur fínsandur og sylti. Reyndar er þetta ekki einhlítt, því lausu botnlögin í N52-58 lóðinni
eru sums staðar allmiklu þykkri auk þess sem þeim hallar miklu meira til NA en almennt er þarna.
Björgun hf hóf að fylla á svæðið upp úr síðustu aldamótum. Fyllingarefnið var að mestu eða öllu
leyti fíngerð, á köflum skeljarík, sendin möl úr námum þeim sem fyrirtækið nýtti þá í sjó. Mölinni
fylgdi nokkuð af fínsandi og sylti, sem skildist mjög frá þegar efninu var dælt á land. Fíngerðasti
efnishlutinn flaut vestur eftir fyllingunni eftir að hún náði upp úr sjó. Fleytið settist til ýmist
vestarlega á henni eða rann í sjó fram. Vegna þessa eru líkur á einhverri lagskiptingu í fyllingunni
og undirliggjandi botnlögum.
Við upphaf framkvæmda á svæðinu var ströndin 150 m sunnar í Fossvogi en nú er.
Boranir
Þegar einsýnt þótti að frekari ráðstafana væri þörf til þess að komast hjá skaðlegu mismunasigi
húsanna að Naustavör 52-58 var afráðið að kanna lausu botnlögin í grunninum frekar. Fyrirtæki
Árna Kópssonar var fengið til þess að bora sex rannsóknarholur sem ná niður í gegnum lausu
botnlögin. Sýni voru tekin í borholunum og jarðlagaskipting í þeim greind með 0,5 m nákvæmni
eða svo. Vatnshæðarmælar voru settir í holurnar til þess að fylgjast eftir atvikum með
vatnsþrýstingsbreytingum við þjöppun lausu botnlaganna.
Rannsóknir þessar leiddu í ljós að milli fyllingar og klappar og/eða jökulruðnings eru misþykk,
fremur laus, misskeljarík fínsands- og syltarlög, svo sem og við mátti búast skv. niðurstöðum
sigmælinga.
Að öðru jöfnu veldur slík lagskipting hvoru tveggja; auknum sighraða og styrk. Botnlögin eru
þykkust í NA-horni grunnsins og þynnast þaðan til suðvesturs að því marki, að suðvestast í lóðinni
eru þau, ef einhver þá óveruleg.
AÐRAR GREINAR 2021- 27- (1)