Verktækni - 2021, Blaðsíða 30

Verktækni - 2021, Blaðsíða 30
 Icelandic Journal of Engineering // Verktækni (2021) 27 1 Verkfræðingafélag Íslands // Association of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 30 Mynd 8 Sigplötur í fargi á húsgrunni nr. 52-58. Á Mynd 8 eru niðurstöður mælinga á þær sigplötur sem auðkenndar eru á Mynd 7, en mælingar hófust sem fyrr segir um mitt ár 2016. Plöturnar hafa sigið mjög mismikið, frá um 30 mm plata 54, sem er í SV horni lóðarinnar, upp í um 120 mm, sigplata nr. 51 í NA horninu. Hinar tvær sigplöturnar; nr. 52 í SA-horni og nr. 53 um mitt hús nr. 54, hafa einnig sigið umtalsvert. Mynd 9 Sigmælingar á fargi í grunnum nr. 52-58. Ólíkt sigi á öðrum lóðum á svæðinu sigu mælipunktar í lóðinni mismikið, sjá Mynd 8. Út frá þekkingu á aðstæðum við sigmælana, var áætlað hversu miklu heildarsigi mætti að óbreyttu búast við á hverjum stað miðað við svipað álag. Sigferlarnir bentu enn fremur til að mismunasig þarna yrði óviðunandi og að framhald sigs yrði þarna talsvert, hraðast fyrst, en síðar mundi hægja á því. Með tímanum drægi úr hvoru tveggja sighraða og sigi. Mesta sigið yrði í norðaustur horni lóðarinnar, minnkandi bæði til suðurs og vesturs. Icelandic Journal of Engineering // Verktækni Verkfræðing félag Íslands // Asso iation of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 30 AÐRAR GREINAR2021- 27- (1)

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.