Verktækni - 2021, Blaðsíða 33
Icelandic Journal of Engineering // Verktækni
Verkfræðingafélag Íslands // Association of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 33
Erfitt er að mæla einhlítt árangur þjöppunarvinnunnar en þó má nálgast hann með því t.d. að meta
breytingu holrýmdar í lausu botnlögunum, og þá miðað við að sig í grunninum við framkvæmdina
sé eingöngu vegna þess að lausu lögin þjappist saman og holrýmd í þeim minnki þar með.
Sé sem dæmi miðað við ástand þar sem þykkt lausra botnlaga hafi verið 2 m fyrir þjöppun og þau
þjappast saman um 0,5 m fæst holrýmd n ákvörðuð út frá eftirfarandi líkingu:
n = 1 – ( γ / (1 + w) γs)
Hér er: n holrýmd í lausu botnlögunum (tölugildi)
γ (meðal)rúmþyngd í lausu botnlögunum hér: 15 kN/m3,
w (meðal)rakastig í lausa botnlögunum (tölugildi), hér: 70 %
γs (meðal)kornarúmþyngd í lausu botnlögunum, hér: 28,0 kN/m3
Holrýmd fyrir djúpþjöppun:
Með því að setja tölugildi þessara efnisþátta inn í líkinguna fæst að holrýmd í lausu
botnlögunum sé 68,5 %.
Holrýmd eftir djúpþjöppun:
Miðað við að botnlögin á tilteknum stað í grunninum hafi verið 2 m þykk og þjöppast saman í 1,5
m. Þá reiknast holrýmd eftir þjöppun, án tillits til rakabreytinga, 58 % og meðalrúmþyngd þar eftir
þjöppun 20 kN/m3. Reikningsleg holrýmd hefur samkvæmt því minnkað um 10 % við aðgerðirnar.
Á þessum niðurstöðum eru þó m.a. þeir annmarkar að við vitum að vatn þrýstist eitthvað út úr
botnlögunum við þjöppunina svo rakastig eftir hana er í reynd nokkru lægra en það sem hér er
notað og holrýmd eftir þjöppun því líklega nær 55 %.
Útreikningarnir sýna að okkar mati trúlegar niðurstöður og benda til þess að botnlögin hafi
þjappast að því marki að sig í þeim undan húsinu verði takmarkað.
Árangur þjöppunar í N52-58 grunni – hönnun undirstaðna
Áhrif þjöppunar með tveimur titurvölturum á mismunandi tíðni á yfirborði grunnsins hefur
væntanlega náð niður í gegnum fyllinguna og hún því býsna vel þjöppuð í heild.
Á hinn bóginn náðist ekki á þann hátt að þjappa lausu botnlögin alls staðar í grunninum jafnmikið,
sbr. kaflann hér á undan. Lausu botnlögin eru samkvæmt borununum breytileg að þykkt, sjá
jarðlagasnið, mest allt að 8 m.
Að því er tekur til áhrifa af djúpþjöppuninni er rétt að nefna að þegar reynt var að endurreka
titurstaurinn á svæði sem áður hafði verið þjappað reyndist mjög erfitt að koma staurnum niður í
gegnum þjappaða lagið.
Til góða kemur að álagið frá húsinu dreifist með aukinni dýpt og þess gætir því hlutfallslega minna
þeim mun neðar sem er í grunninum.
Lögð var áhersla á að við hönnun undirstaðna yrði tekið tillit til aðstæðna með því að ganga svo
frá steyptu undirstöðunni að platan og neðsti hluti veggja yrði stíf heild, sem yfirfæri álag og jafni
það sem best út.
AÐRAR GREINAR 2021- 27- (1)