Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Blaðsíða 6

Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Blaðsíða 6
Ljósmynd Einar Falnr Frá ritstjóra Gífurlegar verðhækkanir á laxveiðileyfum eru framundan. Svimandi háar upphæðir voru boðnar í Víðidalsá og í framhaldi af því hækkar leiga fyrir Miðfjarðará um tugi milljóna króna. Ef horft er til þessara tveggja laxveiðidrottninga á Norðurlandi er gaman að velta fyrir sér tölum. Samtals er leigan fyrir þessar tvær ár næsta sumar 105 milljónir króna. Þá á eftir að taka tillit til verðbólgu. Á fimm árum verður leiga fyrir árnar því hátt í 600 milljónir króna. Og vel á minnst, þetta er verð til bænda sem heildsalinn greiðir. Smásöluverð á þessum fimm árum, raunar með veiðihúsum og öðru tilheyrandi, er því nálægt einum milljarði króna. Hvar endar þetta? Það er alveg ljóst að meðal stangaveiðimaðurinn kaupir ekki veiðileyfi í þessum ám. Þær eru ekki lengur á landakorti hins venjulega launamanns. Þetta verða laxveiðiár forréttindahópa og alþjóðlegra milljarðamæringa. En það er ekki víst að það verði til góðs fyrir eigendur. Ætla íslensk fyrirtæki að kaupa veiðileyfi í þessum ám? Nú er uppsveifla í veiðinni. Árið 2004 var eitt af bestu laxveiðiárum í langan tíma. Spáð er góðu sumri fram undan. En hvað svo? Við vitum að miklar sveiflur eru í veiði. Það verða mögur ár og hvernig ætla menn þá að selja þessar ár á ofurverði? Það verður í besta falli mjög erfitt. Og ekki mun verðið lækka, það hefur ekki gerst á íslandi í hinum stærri ám að leiga lækki. Sennilega hitti formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, Bjarni Júlíusson, naglann á höfuðið í viðtali í síðasta tölublaði Veiðimannsins þegar hann talaði um hrunadans og bætti því jafnframt við að félagið myndi ekki taka þátt í þeim dansi. Gott litlit Öllum ber saman um að útlitið sé gott fyrir sumarið. Hvort sem um er að ræða silung eða lax. Raunar tala menn sig upp í hæstu hæðir á þessum tíma ár eftir ár. En það er allt í lagi. Við viljum fara bjartsýnir til veiða. Nú lítur út fyrir gott smálaxasumar og miðað við fjölda smálaxa í fyrra vonast menn til þess að mikið komi af tveggja ára fiski. Ef það fer saman, góðar göngur bæði af eins og tveggja ára fiski úr sjó, fáum við mjög gott veiðisumar. En við erum að fjalla um náttúruna og þar eru ýmsir kraftar að verki sem við kunnum ekki full skil á og geta því sett strik í reikninginn. Á þessari stundu er útlitið gott og það er þægileg tilhugsun að sjá fyrir sér ár fullar af fiski. Vöxtur í urriðaveiði í fyrra veiddist meira af urriða en nokkru sinni frá því að skráning hófst. Hér fer væntanlega tvennt saman, annars vegar betri og markvissari skráning á veiði og hins vegar aukin fiskgengd. Vart verður verulegrar aukningar í öllum landshlutum og samkvæmt áliti okkar fremstu sérfræðinga á þessu sviði er búist við áframhaldandi aukningu í sumar. Þessi spá tekur bæði til staðbundins urriða og sjóbirtings. í Veiðimanninum er einmitt birt tafla frá Veiðimálastofnun yfir valin veiðisvæði bæði bleikju og urriða. Þar geta menn séð þessa þróun. 30 pundari í sumar? Eitt aðalefni blaðsins að þessu sinni er tilraun til að taka saman upplýsingar um stærstu fiska sem veiðst hafa á stöng á íslandi. Þetta hefur ekki verið gert áður með þessum hætti. Vonast ég eftir því að menn verði duglegir að bæta við þessa lista og fylla inn í þær eyður sem þarna eru. Það vekur óneitanlega athygli að síðasti 30 punda lax veiddist á íslandi árið 1987 og það sumar voru þeir reyndar þrír í þessum stærðarflokki. Ef horft er lengra til baka má sjá að með nokkuð reglubundnu millibili veiðast fiskar í þessum stærðarflokki. Það skyldi þó ekki vera einhver náttúruleg sveifla sem ræður þessu? Ég yrði ekki hissa þó svo að slíkur fiskur veiddist í sumar, eftir að hafa skoðað þá tilhneigingu sem kemur fram í samantektinni. En það er rétt að lesandinn myndi sér sjálfur skoðun á þessu. Góða skemmtun í sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.