Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Síða 10

Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Síða 10
Frábœrt dœmi um HFF. Stór og breiður sjóndeildarhringur veiðimannsins endurspeglast í fluguboxinu. Hann leyfir sérgott úrval en veit sem er að allt eru þetta líklegar púpur fyrir silung, eitthvað sem hefur gefið, á eftir að gefa, aðeins spuming um að geta sér til um rétta tímann. Afflupfimiim skuluð þið þekkja þá Ég er þeirrar skoðunnar að tvö hættulegustu orðin í heiminum þegar fluguveiðar eru annars vegar séu: Ég veit. Sá veiðimaður sem veit allt getur heldur ekki lært neitt nýtt. Stór hluti þess að stunda fluguveiðar er tíminn þegar maður er alls ekki að veiða. Það er trúlegt að margir veiðimenn eyði engum minni tíma í að hnýta flugur og raða þeim fram og aftur í flugubox eða gamla vindlakassa eins og í veiðina sjálfa. Þetta er vitaskuld bara ágiskun en fjarska góð ágiskun, finnst mér. Fluguboxið segir að mínu viti margt um veiðimanninn, kannski óþægilega margt. Það er eins konar sálarspegill eða opinn lófi sem spákona les úr alls konar möguleika, hugsanlega hamingju, óvæntan happdrættisvinning eða von um 22 punda lax í nánustu framtíð. Bleik og búin á'ðí Ég flutti í fyrra í handfarangri tvö eða þrjú flugubox með laxaflugum fyrir frábæran fluguhnýtara sem hafði selt þær veiðimanni fyrir norðan. Ég freistaðist til að skoða boxin á leiðinni og verð að segja að frágangurinn var vel yfir meðallagi. Það sem vakti ekki síður athygli mína var hversu vel flugunum var raða upp, eftir litum og stærðum og gerðum. Það er ekki alltaf þannig. Það kemur strax upp í hugann fremur ókræsilegt svart plastbox sem ég sá í vetur leið. Þegar það var opnað komu í ljós fjarskalega skýrar andstæður. Hægra megin var slatti af laxaflugum, þokkalega hnýttum meiraaðsegja. Ég fékk strax á tilfinninguna að síðasta sumar hafi fært veiðimanninum nokkra gæfu, næstum hárlaus Hairy Mary angaði af meðalstórum laxi en útilokað að veiðimaðurinn hafi fengið fleiri sökum þess að Mary elskan var næstum komin úr öllu. Vinstra megin lá svo ein og yfirgefin silungafluga. Hún heitir svo svakalegu nafni að varla er óhætt að skrifa það upp í svona virðulegu veiðiblaði. Eg læt skammstöfununina nægja: IPB. Þetta er kannski ekki alveg jafn kunnugleg skammstöfun og BSÍ eða FBI en jafnvel Leyniþjónusta Bandaríkjanna gæti ekki fengið botn í þann harmleik sem þessi fluga bjó yfir. Það var eitthvað svo sorglegt að sjá kvikindið liggja frammá lappir sínar, brostnar vonir í bleiku, og óvíst hvort þetta eintak verði nokkru sinni sett á flot framar. 10 Veiðimaðurinn Júní 2005

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.