Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Blaðsíða 13
Aflahæsta á landsins
* Klukkutíma akstur frá
* Meðalveiði síðustu 8 ára 2200
* Alltaf nóg vatn
* Nokkrar lausar stangir
■ jt'-S
er hjá Einari Lúðvíkssyni,
símar 894 1118, 487 7868
netfang einar@ranga.is
veffang www.ranga.is
Eystri-Rangár
Hér á landi hafa laxfiskar verið merktir með ýmis konar
merkjum. Algengust eru örmerki, sem skotið er inn í trjónu
laxaseiða. Merkið sést því ekki en allir fiskar með slík merki
hafa verið veiðiuggaklipptir sem seiði. Örmerki eru nýtt í
tengslum við rannsóknir á heimtum laxa við sleppingar í ár.
Jafnframt er skylt að örmerkja a.m.k. 10 % af þeim
laxaseiðum, sem sett eru i eldiskviar. Þetta er gert til að geta
rakið uppruna flökkulaxa úr eldi til ákveðinnar slysasleppingar.
Skil á örmerkjum eru því einstaklega mikilvægur þáttur i því að
kanna, hvort eldislax komi í veiðiár hér á landi.
Önnur merki í notkun eru slöngumerki, sem sett eru fyrir
neðan bakuggann á fiskinum eða mælimerki, sem ýmist eru
sett fyrir neðan bakugga eða í kviðarholi. Ef merki er í
kviðarholi stendur slanga út úr maga fisksins við kviðugga.
Ef merktur fiskur veiðist skal tilgreina það í veiðibók. Skrá skal
númer og lit slöngumerkis ásamt öðmm upplýsingum um fiskinn
en skera skal snoppuna af þeim fiskum, sem eru veiðiuggaklipptir
og þar af leiðandi örmerktir. Öllum merkjum ásamt snoppum
fiskanna skal skila til embættis veiðimálastjóra ásamt upplýsingum
um veiðiá og veiðistað, lengd, þyngd og kyn fisksins auk
upplýsinga um nafn og heimilisfang veiðimanns. Allir, sem skila inn
merkjum, fá sent viðurkenningarskjal og verða sjálfkrafa
þátttakendur í happdrætti.
Skit á tn&ikjum ew mjög. mifátucng (keði uwtdandi
fafoauuiðáíltwt ag. ðtjáwsýðtu í aeidimátum.
Örmerkiö er i snoppu fisksins.
Merki þarf að finna og lesa
með sérstökum tækjum.
Skera þarf af snoppuna við
augu.
Velðlugga venter
S kem
örmerki
Maelimerki inni
i kviðarholi
Mælimerki
við bakugga
Slöngumerki
í mars 2006 verður dregið úr innsendum
merkjum frá sumrinu 2005 og veitt
fjölbreytt verðlaun.
VEIÐIMÁLASTJÓRI
Directorate of Freshwater Fisheries
Vagnhöfða 7
110 Reykjavik
Simi: 567 6400
Simbréf 567 8850
www.veidimalastjori.is