Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Qupperneq 21
Dr. Jónas skrifar
Litaðar gáru- og örtúpur
Ein alskemmtilegasta laxveiði sem þekkist er að veiða á
gárutúpu. Ég gleymi því ekki hvað ég reyndi lengi að fá
fyrsta laxinn á gárutúpu. Ég hafði heyrt af mönnum með
þessar túpur í nokkurn tíma og reyndi þær en ekkert gekk.
Svo var það einn morgun á Bryggjunum í Norðurá í byrjun
júlí að ég setti Langá Fancy gárutúpu undir og kastaði. Þá
var ég reyndar búinn að kasta öðrum flugum án árangurs.
Árni Steinsson veiðifélagi minn sat uppi í brekku og fylgdist
með. Ég starði á túpuna þegar hún skautaði á hylnum. Þeir
sem til þekkja vita að þarna er afar breiður hylur og oft liggur
lax úti um allt. Allt í einu lyftist áin upp rétt við túpuna
og Árni kallaði, "sástu þetta?" Ég kallaði á móti, "á ég að
gera eitthvað?" En ekkert gerðist annað en að ég byrjaði að
skjálfa í hnjáliðunum. Aftur kastaði ég og eftirvæntingin var
mikil. Aftur kom ólga og nú stríðari og stærri og fiskur tók
í fluguna. Af gömlum vana tók ég á móti og hann var á.
En það hefði ég betur látið ógert því ég missti hann eftir
snarpa viðureign. Fram að þessum tíma hafði ég í laxveiði
með flugum og túpum varla séð tökurnar heldur bara orðið
var við tog. Nú varð ekki aftur snúið. Ég reyndi aftur í sömu
ferð og fékk annan lax á sömu túpu í Myrkhyl. Sá kom upp
úr og tók. Síðan hef ég veitt fleiri laxa með þessari aðferð og
hef því fengið tækifæri til að prófa ýmsar útfærslur. Ég hef
komist að því að nauðsynlegt er að vera með beitta króka á
gárutúpunum og hefur mér líkað best við Kamasan nr. 14 í
stærri túpur og VMC með víðum bug í þær minni.
En nú hafa gerst tíðindi í heimi gárutúpa. Eins og flestir
vita kom Mikael Frödin hingað til lands um árið í boði
Veiðihornsins. Hann kynnti hnýtingar á keilutúpum sem ég
svo aðlagaði íslenskum aðstæðum og hefur Frances keilan
sem ég hnýtti slegið í gegn og einnig eru afar vinsælar
Black and Blue, Green Butt og fleiri. Allar þessar túpur voru
hnýttar á glært túpuefni. Nú hefur Mikael Frödin bætt um
betur og búið til litað túpuefni. Mér þykir það afar fallegt
og veiðilegt. í framhaldi af því hef ég hannað gárutúpur úr
þessu efni. Eins og áður hefur komið fram endurhanna ég
gjarnan gamlar flugur með nýju efni. Eins og myndirnar
sýna eru þetta Green Highlander (hnýtt úr flúorgrænu
túpuefni), Green Butt með flúorgrænu, Black Sheep með
svörtum legg, Black and Yellow með flúorgulum búk og
Green Butt með flúorgrænum legg. Að lokum fannst mér
við hæfi að hnýta hina frægu, skosku flugu Alley's Shrimp
með appelsínugulum legg. Enn ein nýjung sem ég nota í
þessum túpum er að nú set ég silfraðar tvíkrækjur í þessar
túpur, öngla sem eru með útstætt agnhald. Þessir krókar
voru hannaðir af Hugh gamla Falkus sem er frægur enskur
veiðimaður. Hann hannaði þá með það í huga að þeir héldu
fiskinum betur. Það hefur tekist vel því maður missir síður
fiska af þessum krókum en öðrum tvíkrækjum. Auk þess eru
tvíkrækjurnar léttari en þríkrækjur sem veldur því að túpan
gárar betur.
Að lokum fylgir með ein Green Butt gáruörtúpa og einnig
örtúpa sem er hnýtt úr sama flúorgræna túpuefninu. í
túpuna er notaður VMC þríkrókur nr. 14 og 16 sem gengur
upp í túpuna.
Að lokum hvet ég alla þá sem veiða á gárutúpur að hafa
eitt í huga þegar laxinn tekur. Bíðið bara róleg þangað til
þið sjáið fiskinn taka og flugulínan er lögð af stað á eftir
fiskinum - þá fyrst má lyfta stönginni og taka á móti.
Meö von um gleðilegt veiðisumar,
Dr. Jónas
JÚIÚ2005 Veiðimaðurinn 21