Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Page 33
Verðlaun vegna
skila á merkjum
úr lax- og
silungsveiði
Þann 18. maí síðastliðinn afhenti
veiðimálastjóri verðlaun vegna skila
á merkjum úr lax- og silungsveiði á
árinu 2004 en verðlaunahafarnir voru
dregnir úr hópi veiðimanna sem höfðu
skilað inn til embættis veiðimálastjóra
og Veiðimálastofnunar á því ári 598
örmerkjum og annars konar merkjum.
Slík verðlaun hafa verið veitt árlega til
margra ára og hafa þau eflaust glætt
áhuga veiðimanna á að skila merkjum.
Rafn Afreðsson teknr við fyrstu verðlaunum
fyrir merkjaskil úr hendi veiðimálastjóra.
Eftirtaldir veiðimenn hlutu verðlaunin að þessu
sinni:
1. verðlaun, "Fenwick Iron Hawk"
flugustöng, hlaut Rafn Alfreðsson, Þorláksgeisla 29,
Reykjavík fyrir laxahrygnu veidda í Elliðaám 31. júlí 2004.
2. verðlaun, "Fenwick Night Hawk" fluguhjól, hlaut Skúli
Kristinsson, Seli II Selfossi fyrir laxahæng veiddan í Eystri-
Rangá 23. ágúst 2004.
3. verðlaun, "ABU Ambassadeur" kasthjól, hlaut Thomas
Zahniser, Fífulind 1, Kópavogi fyrir laxahrygnu veidda í
Elliðaám 16. ágúst 2004.
4. verðlaun, "ABU Conolon Speedlock" kaststöng, hlaut
Jóhannes Hinriksson, Eyrarvegi 14, Selfossi fyrir laxahæng
veiddan í Eystri-Rangá 1. ágúst 2004.
5. verðlaun, "Berkley Lightning” kaststöng, hlaut ísleifur
Jónasson, Kálfholti, Ásahreppi fyrir laxahæng veiddan í
Þjórsá 22. júlí 2004.
Hér á landi er lax og silungur merktur með ýmiss konar
merkjum. Helstu merkin eru örmerki, sem komið er fyrir
í trjónu laxaseiða á gönguseiðastigi og slöngumerki sem
sett eru undir bakugga á eldri laxi eða silungi. Notkun
útvarpsmerkja og mælimerkja hefur farið vaxandi.
Árvekni stangaveiðimanna og forsvarsmanna veiðifélaga
er forsenda þess að fiskmerkingar nái tilætluðum árangri.
Veiðimenn þurfa að grannskoða fiskinn sem þeir veiða
með tilliti til útvortis merkinga, uggaklippinga og almenns
ástands á uggum. Klipptur veiðiuggi er ætíð vísbending um
örmerki í trjónu laxins en trosnaðir eða eyddir uggar geta
verið vísbending um að fiskurinn hafi sloppið úr eldiskví
þótt slíkt sé ekki einhlítt og þurfi staðfestingar við t.d. með
hreisturlestri.
ÁRSSKÝRSLA VEIÐIMÁLASTOFNUNAR FYRIR ÁRIÐ 2QM
STANGAVEIÐIN METIN Á 8-9 MILLJARÐA Á ÁRI
Kannanir sýna að þriðjurigur (slendinga, eða um 60 þiisund
manns á aldrinum 18 - 75 ára, stundar stangaveiði. Þessu til
viðbótar er talið að um fimm þúsund erlendir veiðiinenn komi
til íslárids árlega. Þegar horft er til landsins alls er framboð
stangardaga í laxvéíði urn 34 þúsund dagar árlega. Heildarfjöldi
veiðidaga íslendinga er hins vegar liðiega 400 þúsurid á hverju
ári. Það má því ljóst vera að silungsveiðin er mun stærri í
sniðum reiknuð í fjölda veiðimanna og stangardaga. Þrátt fyrir
þessar háu tölur kemur 1 Ijós að veiðidagar á mann eru færri á
íslandi en á hinum Norðurlöndunum.
OG VERÐMÆTIN...
Óbein og afleidd efnahagsfeg áhrif stangaveiða eru 7.8 - 9.1
milljarðurkrónaáári, segir í ársskýrslu stofnunarinnar. Af jressari
upphæð eru beinar tekjur til veiðiféiaga 1-1,2 milljarður króna.
Þetta þýðir að hverjar þúsund krónur sem veiðimaður eyðir í
veiðileyfi átt- til nífaldast þegar á heildina er litið. Þá er bent á í
skýrslunni að á bílinu 1000 - 1200 störf verði beinlínis til vegna
stangaveiði. Og áfram er haldið rneð áhugaverðar staðreyndir.
Sýnt er frant á að um helmingur atvinnutekna í landbúnaði á
Vesturlandi komi frá stangaveiði, Sigurður Guðjónsson hendir á
í yfirlíti sínu um stárfsemi stofnunarinnar að Veiðimáíastofnun
fékk á síðustu fjárlögum 49,2 milljónir króna. Þegar Sigurður
er búinn að tala um umsvif stangaveiði á íslandi og draga
fram verðmætin sem greinin skapar færir hann rök fyrir því að
fjárframlagið sé ekki einasta lágt heldur verði að leita leiða til að
treysta fjárhagsgrundvöll starfseminnar.
STANGAVEIÐIN ÁRIÐ 2004
Aflinn 184,6 tonn
Árið 2004 var eitt af stóm árunum í stangaveiði á íslandi.
Tæplega 46 þúsund laxar veiddust á stöng í fyrra. Aukningin
frá árinu áður er hvorki meiri rié minni en 34,4%. Þegar búið
er draga: frá ríflega 7 þúsund laxa sem sleppt var aftur leggur
heildaraflinn sig á 109 tonn. Urriðaveiðin var um 45 tonn eða
tæplega 40 þúsund fiskar og bleikjuaflinn 30,6 tonn eða um 35
þúsund fiskar. 2004 var metár í urriðaveiði og kom fram aukning
í öllum landshlutum. Veiðimálastofnun spáir áframhaldandi
aukningu í urriða- og sjóbirtingsveiði. Bleikjuveiðin hefur
haldist stöðug í um tíu ár og árið 2004 skar sig ekki úr þar.