Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Side 39

Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Side 39
hugsaði ég um leið og ég renndi í straumharðan fosshylinn. Þarna stóð ég í dágóðan tíma og velti fyrir mér umhverfinu en vaknaði svo upp við að gripið var ruddalega í og enn sauð á hljólinu þennan morgun.Eftir tíu mínútur lá á bakkanum sjö punda hængur sem ég mátti elta niður með fossgljúfrinu og gat loks strandað á bergsyllu. Þegar þarna var komið var mér öllum lokið og satt best að segja fór ég að hugsa hvort ég hefði sett Löduna hans föður míns út af einhvers staðar á Holtavörðuheiðinni og væri kominn til veiða hinum megin móðunnar miklu. Eftirmáli Er í hús var komið sló þögn á viðstadda er ég sveiflaði inn þriðja laxinum. Höfðu helstu veiðistaðir árinnar verið reyndir af veiðifélögunum, ekki branda sést í hyljunum og satt best að segja var öllum orða vant yfir heppni minni. Skemmst er frá því að segja að sá tími sem eftir lifði af þessari tveggja daga veiðiferð á hjara veraldar leið hratt í góðra vina hópi. Það var því með bros á vör sem ég hélt heim á leið og hrakfarir sumarsins áður voru löngu fyrirgefnar. Þó var eitt sem sat í mér. Seinasta morguninn sá ég stakan stórlax ofarlega í ánni, ekki ósvipaðan að stærð og fjórtán punda hrygna sem ég landaði úr Norðurá nokkrum dögum áður. Leiddi ég ósjálfrátt hugann að því að þarna væri laxamóðir í leit að sveinum sínum en reyndi þó að velta ekki mikið fyrir mér þeim möguleika. Það var svo ekki fyrr en um haustið að ég virkilega gerði mér grein fyrir því hversu einstök veiði þetta hafði verið. Þá fékk forsvarsmaður hópsins símtal frá einhvejum umsjónarmanni sem vildi fá staðfestingu á veiðinni. Upp úr dúrnum kom að þetta voru einu laxarnir sem veiddust úr Goðdalsá umrætt sumar og það sem meira var, þennan morgun hafði ég landað fleiri löxum úr ánni en höfðu veiðst seinustu fjögur undangengin ár til samans. I ljósi þessa hugsa ég enn þann dag í dag til Goðdalsár og um það hvort ég hafi í fáfræði minni, einn bjartan ágústmorgun, hreinlega haldið á brott úr þessum hrikalega dal með laxastofn árinnar í skottinu á Lödunni. Haraldur Eiríksson Höfundur ungur að árm rmð þriðjung laxastpfr 'tiendi sér. , W-

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.