Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Page 40
Vænum laxi gefiö líf í Hafralónsá. "Að sleppa Laxi er mjög viðskiptavænt."
Verðsprengja í Víðidal
Stefán Sigurðsson, sölustjóri hjá Lax-á ehf er
nýja nafnið í íslenskri laxveiði. Stefán á og rekur
fyrirtækið H&S ísland ehf sem nýlega undirritaði
samninga um leigu á Víðidalsá frá og með sumrinu
2006. H&S ísland ehf er að fullu í eigu Stefáns
og konu hans sem heitir Harpa Hlín Þórðardóttir
og vinnur einnig hjá Lax-á ehf og er titluð
framkvœmdastjóri sölusviðs. Þessi samningur er
merkilegur fyrst og fremst fyrir metfjárhœð sem
greidd er fyrir veiðirétt. Leiguverðið er 52 milljónir
og 180 þúsund krónum betur fyrir hvert sumar. í
Víðidalsá eru átta stangir sem skiptast á fjögur
laxasvœði. Sem sagt tvær á svœði. Einnig er inni
í heildartölunni leiga á silungasvæðinu neðst í
ánni og er þar um að rœða tvær stangir.
Þið vinnið bæði hjá Lax-á. Hver eru tengslin milli H&S
íslands og Lax-ár?
Það er rétt, við höfum bæði starfað hjá Lax-á í fjölda ára og
eigum hluti í Lax-á. H&S ísland er aðeins tengt Lax-á að því
leyti að við Harpa höfum hagsmuni af báðum fyrirtækjunum.
Því var ákveðið að Lax-á muni sjá um að selja fyrir okkur
veiðileyfi í Víðidalsá þar sem Lax-á býr yfir mikilli þekkingu
og er með tengiliði um allan heim.
Eru þetta óeiginlegir fjármunir að einhverju leyti svo sem
eins og seiði, bygging húsa eða slíkt?
"Nei. Þetta er bara reiðufé en samt að vissu leyti fer alltaf
hluti leigunar í rekstrarkostnað veiðifélagsins, t.d. seiði,
viðhald húsnæðis o.fl. þó að ég sé enginn milligöngumaður
með þann hluta.
Gengur þetta upp peningalega?
"Já, þetta gengur upp. Við eyddum góðum tíma í að reikna
og spá áður en við sendum inn tilboðið."
Hver er hugsunin á bak við þetta?
"Víðidalsá er alveg einstök og hvern dreymir ekki um að
veiða í slíkri perlu. Veiði í Víðidalsá hentar líka vel með
40 Veiðimaðurinn Júni 2005
J