Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Side 41
Stefán með vorlax úr ánni Dee í Skotlandi. Þessi var um lOpund og var veiddur í apríl sem leið.
öðrum veiðisvæðum sem Lax-á er að selja og það er alltaf
eftirspurn eftir leyfum í svona frábærar ár." Salan er þegar
hafin fyrir árið 2006 en Stefán vill ekki opinbera verðið.
Hann segir hins vegar að það hafi ekki komið veiðimönnum
á óvart. Mikið hafi verið fjallað um tilboðið í fjölmiðlum
og menn hafi því ekki verið undrandi þegar þeir heyrðu
verðið.
Erum við ekki að tala um hátt í 200 þúsund krónur á dag
stöngina með öllu yfir besta tímann?
Stefán vill ekki játa því, segir að það sé of há tala og bendir
á að verðlagningin verði með þeim hætti að leyfin muni
seljast.
Maður heyrir tvennt í framhaldi af samningum milli
H&S og Víðidalsárbænda. Annars vegar að Miðfjarðarár-
bændur hafi krafist þess að fá sömu upphæð og að það
sé frágengið? Stefán játar því að samningar hafi verið
endurskoðaðir við Miðfjarðarárbændur en vill ekki
nefna nákvæma tölu, Árni Baldursson hafi séð um þau
samningamál fyrir Lax-á.
Hitt sem heyrist er frá hinum almenna veiðimanni. Þeir
óttist þessa þróun og sjái fram á að geta nú ekki einu
sinni keypt köldu og blautu septemberdagana. Allar ár
muni hækka í kjölfarið?
"Það munu ekki allar ár hækka. Það eru nokkrar ár sem eru
í sama gæðaflokki og Víðidalsá, má þá nefna Miðfjarðará,
Selá, Hofsá, Haffjarðará, Þverá/Kjarrá og Laxá á Ásum.
Verðið á þeim er hátt og þær eru dýrar í leigu.”
En þetta staðfestir væntanlega endanlega það sem margir
vita að ísland er orðið langdýrasta laxveiðiland í heimi?
"Það gæti verið alveg rétt hjá þér og líka langbest, samt má
ekki gleymast að allar ár sem eru í einkaeigu erlendis af
svipuðum staðli og þær ár sem við höfum heima á íslandi
eru mjög sambærilegar í verði ef ekki dýrari."
Því hefur gjarnan verið haldið fram að yfirboð og barátta
um laxveiðiárnar sé einhver fjandsamlegasta aðgerð sem
hægt er að framkvæma þegar horft er til hins almenna
laxveiðimanns. Eru þið óvinir laxveiðimanna?
"Nei, ef við leigðum ekki árnar væru aðrir fljótir að taka
við þeim. Lax-á hefur ekki verið í neinum yfirboðum upp
á síðkastið og ég vil minna þig á að H&S átti ekki hæsta
tilboðið í Víðidalsá. Við fengum ána eftir að kosið var á milli
þriggja aðila og var ansi mjótt á munum. Það eru komnir nýir
aðilar inn á markaðinn og þeir eru að láta til sín taka," segir
Stefán. Hann bendir á að ýmsir hafi gert sig gildandi á þessu
sviði og er ekki langt síðan markaðurinn fékk áfall vegna
verðhækkana sem virðast hafa gleymst í ummræðunni. Þó
svo Stefán nefni ána ekki á nafn fer ekki á milli mála að
hann á við Grímsá.
Hvað þola þessar ár miklar hækkanir svo hægt verði að
selja þessi leyfi? Erum við búin að sjá toppinn í þessu?
"Á þessum tímapunkti eru margar af þessum ám komnar
nálægt þakinu. Hins vegar getur það breyst. Þetta er svo
Júni2005 Veiðimaðurinn 41