Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Síða 47

Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Síða 47
Crœnfriðungur Flugur með reynslu Stærsta nýjungin á flugumarkaðnum í ár er án efa endurkoma flugna Kristjáns Gíslasonar. Flugur Kristjáns hafa ekki fengist hér á landi í ein sex ár en margar af flugum hans eru landsþekktar fyrir að vera afar gjöfular í lax- og silungsveiði. “Við töldum litlar líkur á því að við myndum finna framleiðanda að flugum föður míns sem gæti framleitt þær með þeim gæðum sem hann var þekktur fyrir. Lengi vel var því ekki ætlunin að setja þær á markað aftur en síðan duttum við niður á erlent fyrirtæki í eigu íslendings. Handbragðið þar á bæ er með hreinum ólíkindum og mikið lagt upp úr því að flugurnar séu sterkar og vel lakkaðar sem er grundvallaratriði,” segir Stefán Kristjánsson hjá krafla.is. Að krafla.is stendur fyrirtækið Skrautás ehf. sem er í eigu sonar Kristjáns, Stefáns og Sólveigar Ögmundsdóttur. Sjálfur veiddi Kristján Gíslason eingöngu á eigin flugur. Alls fékk hann á annað þúsund laxa á löngum ferli sem fluguveiðimaður. Þar af rúmlega 100 laxa 20 pund eða stærri og nokkur hundruð laxa á bilinu 15-19 pund. Margar af flugum Kristjáns eru annálaðar stórlaxaflugur. Nægir þar að nefna Kröflurnar í öllum litum, Elliða rauðan, Skrögg og Grænfriðung. Ekki er nóg með að flugur Kristjáns séu nú fáanlegar aftur heldur eru þær margar í boði i nýjum útfærslum sem gárutúpur og örflugur í stærð 16. Einnig má nefna að nokkrar af flugum Kristjáns eru nú fáanlegar á krafla.is í stærð 10 og 12 sem tvíkrækjur. í þessum stærðum eru flugur Kristjáns afar skæðar silungaflugur. “Kristján hannaði á sínum tíma hátt í 100 flugur. Lítill hluti þeirra hefur verið til sölu hér á landi og fjölmargar hafa aldrei sést opinberlega. Það er langtímamarkmið okkar á krafla.is að framleiða allar flugur Kristjáns í öllum litum og stærðum. Við eigum enn eftir að koma með mjög margar flugur á markaðinn en munum bæta nýjum flugum jafnt og þétt í netverslunina í framtíðinni,” sagði Stefán ennfremur og bætti við að allar flugur eftir Kristján sem kæmu til sölu á krafla.is í framtíðinni væru flugur með mikla “reynslu” og hefðu mörg líf laxa á samviskunni frá því í gamla daga. í netversluninni krafla.is eru einnig seldar hinar landsþekktu silungaflugur Krókurinn, Mýslan og Beykir eftir Gylfa Kristjánsson, son Kristjáns. í byrjun júlí kemur nýjasta fluga Gylfa, Beygla, til sölu á krafla.is en Beyglan hefur þegar sannað sig í vor og sumar sem afar sterk fluga í silungsveiði og hefur vakið mikla athygli. PUKB FiSHING Umboð/Þjónusta: Veiðitækni Cardinal Ambassadeur fenimck NightHawk ÞESSAR URVALS VEIÐIVÖRUR FÁST I BETRI VEIÐIBUÐUM UM LAND ALLT

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.