Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Page 56
Nr. 19 Engjabakki
Hægt er að veiða þennan stað af báðum bökkum en betra er
að vera vestan megin. Aðkoman er þægilegri að austanverðu
en þar þarf að vaða og kasta langt til að ná til laxins. Þarna
er gott að byrja töluvert ofan við klappirnar og veiða niður
á brotið, helst má finna lax utan við klappirnar er neðar
dregur.
Nr. 20 Skarðsbreiða
Þessi veiðistaður er beint neðan við bæinn Skarð og er
veiðistaðaskiltið ofan við túnið á vesturbakkanum. Þar er
gott að byrja og veiða niður breiðuna, vaða ekkert í fyrstu
en færa sig utar er neðar dregur. Hægt er að veiða þennan
stað frá báðum bökkum en að austanverðu er áin aðeins
nokkra metra frá veginum. Við Skarðsbreiðu var sett upp
sleppitjörn og sleppt um 4.000 gönguseiðum vorið 2004 sem
væntanlega skila sér sem fullorðnir laxar í sumar.
Veiðisvæði 2
Almennt um veiðisvæðið
Veiðisvæði tvö nær frá svæðamerki ofan við Skarðsbreiðu
upp að merki ofan við Hringsbreiðu, númer 36, neðan
við gamla veiðihúsið Flúðasel. Merktir veiðistaðir eru nr.
21-36 og þar fer að veiðast lax um og upp úr 10. júlí en
silungur jafnvel fyrr. Sumarið 2004 veiddust 133 laxar á
veiðisvæðinu. Fyrir nokkrum árum var komið upp eldis- og
sleppitjörn fyrir ofan Sandinn (34) og eftir það hafa bestu
staðirnir á svæðinu verið Ferjupollur (33) og Sandur. Hvor
um sig gaf 48 laxa sumarið 2005.
Flesta veiðistaði á þessu svæði er betra að veiða vestan
árinnar og er hægt að aka að þeim eftir slóða meðfram allri
ánni. Þá er farið út af þjóðveginum neðan við Víkurskarð og
niður með ánni í átt að Draflastöðum og þaðan slóða niður
að Sandi. Þessi vegur á vesturbakkanum er seinfarinn eftir
að komið er niður fyrir Ferjupoll og margir kjósa að keyra
aðalveginn austan megin og vaða yfir ána til að veiða staði
neðan við Sand og Ferjupoll.
Veiðimenn skipta svæðinu á milli sín eftir samkomulagi en
ágætt er að skipta Sandi og Ferjupolli á milli stanganna á
vaktinni og gera samkomulag um aðra veiðistaði.
Nr. 21 Húsbreiða
Veitt að vestanverðu. Efst á veiðistaðnum gengur klöpp út í
ána og neðan við klöppina er lítil sandvík. Þarna getur verið
bleikja mjög nálægt landi og lax aðeins utar og einnig neðan
við sandvíkina.
Nr. 24 Skuggapollar
Betra að veiða að vestanverðu og er veiðistaðurinn aðeins
ofan við girðinguna sem nær þarna niður að ánni. Vestan
til í ánni brýtur á grjótum, gott er að
byrja aðeins ofan þeirra og veiða
töluvert niður fyrir þau, ekki þarf að
vaða mikið.
Nr. 26 Biskupsbreiða
Þessi veiðistaður er meðfram brattri
brekku á veginum vestan við ána.
Gott er að aka upp brekkuna til að fá
yfirsýn yfir staðinn. Áin skiptist þarna
og myndast hólmi í ánni. Betra er að
veiða að vestanverðu og byrja töluvert
ofar en þar sem áin kvíslast. Ekki þarf
að vaða mikið og helst er að finna lax
á gróðurskilunum og við efri enda
hólmans.
Nr. 28-29 Árbugsárós
og Vaðnesbreioa
Segja má að hér sé um að ræða tvo eða
jafnvel þrjá veiðistaði. Þar sem þveráin
kemur út í Fnjóská er alltaf hægt að
finna bleikju og hafa margir fengið
góða veiði þar. Þá er farið að austanverðu og strengirnir og
flatinn neðan við þá úr þveránni veiddir. Gott er að veiða
andstreymis á kúluhausa. Ofan við ármótin er laxastaðurinn
og má segja að Árbugsárós (28) og Vaðnesbreiða (29) séu
nánast einn veiðistaður. Gott er að vaða aðeins út í ána
ofarlega og veiða niður breiðuna. Sérstaklega ætti að fara vel
yfir svæðið þar sem brýtur á áberandi stórum grjótum miðja
leið niður að beygju. Þegar komið er þangað sem áin fer að
beygja til norðvesturs er ráðlegt að veiða nálægt bakkanum
í fyrstu en vaða svo utar og reyna við laxana úti í miðri á og
er þá gott að miða við staðinn á móts við þar sem lækurinn
fellur út í ána að austanverðu.
Nr. 30 Hólmahylur
Þessi veiðistaður hefur breyst mikið undanfarin ár en gefur
stöku lax. Eins og aðstæður eru núna er betra að veiða að
vestanverðu og þá í vestari kvíslinni og aðeins niður fyrir
kvíslamótin.
Nr. 32 Böðvarsnesklif (Neðraklif)
Hér er betra að veiða að vestanverðu og er stutt ganga
frá Ferjupolli niður að klifinu. Vaða þarf út tæplega hálfa
56 Veiðimaðurinn Júni 2005